10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (3297)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Frsm. (Gísli Sveinsson):

[óyfirl.]: Ég býst við, að í aðalatriðum verði samkomulag um að taka þær brtt., sem minnzt hefir verið á, aftur til 3. umr., því að engu er sleppt með því. Brtt. þessar eru margar upp teknar af n., en þær geta ekki með góðu móti orðið samþ. eins og þær eru nú. Þær þurfa að stílast upp, til þess að þær falli inn í frv. Þegar n., í samráði við landssímastjóra, hefir tekið meginið upp af þessum till. og frá flestum flm. eitthvað, þá ætti mönnum í þetta skipti að vera fullnægt. Það er alkunnugt, að brtt. á vegalögunum og símal. eru svo margar og fáránlegar, að það er engin von til þess, að hægt sé að yfirbuga andstöðu gegn slíkri þvælu.

Viðvíkjandi því, hvernig landssímastjóri sjálfur lítur á till. hv. þm. Borgf. á þskj. 532, vil ég geta þess, að hann tekur ekki illa í þær, heldur að dómi n. frekar vel. Hann gerir aths. við þær, þannig vaxnar eins og þær eru á þskj., og hefir n. ekki fallizt á, að þær beri að taka upp í þeirri mynd, gegn aths. landssímastjóra.

Landssímastjórinn segir, að línan frá Þyrli að Stóra-Botni sé aðeins framlenging af einkasímalínunni, sem nú liggur frá Saurbæ að Þyrli, og geti því ekki tekizt upp í ritsímalög. Þessu til skýringar getur landssímastjóri þess, að þótt línan Saurbær-Þyrill hafi staðið á ritsímal., þá hafi samizt svo um við héraðið, þegar línan var lögð, að hún skyldi verða einkalína, svo að allir bæirnir á leiðinni gætu komið inn á línuna, þótt hv. þm. Borgf. virðist ekki um þetta vita. (PO: Þetta er rangt, sem hv. þm. sagði um þessa línu). Þetta framhald línunnar verður að vera einkalína, enda þótt af því hljótist meiri kostnaður fyrir héraðið. En sveitirnar verða að brjóta odd af oflæti sínu og sætta sig við það, að meiri hl. af kostnaði við einkalínurnar lendi á þeim, á móti þeim fríðindum, sem einkalínur veita fram yfir landssímalínur. Hv. þm. Borgf. verður að sætta sig við, að þessar línur, sem landssímastjóri hafnar að taka upp í ritsímal., verði ekki teknar upp.

Um b-lið brtt., „lína frá Vogatungu um Leirárhverfi að Hlíðarfæti í Svínadal“, og c-lið, „lína frá Vogatungu að Melum í Melasveit“, segir landssímastjóri svo: „Báðar þessar línur eiga að vera einkalínur frá Vogatungu, þannig að allir bæirnir á leiðinni geti notið þeirra“. Þetta er sambærilegt við önnur héruð, t. d. í mínu héraði hefði verið ástæða til, út frá sjónarmiði margra hv. þdm., að taka upp í ritsímal. margar einkasímalínur. En slíkt hefir bara engum komið í hug, vegna þess að miklu meiri þægindi eru að einkasímalínum heldur en landssímalínum. Þar, sem einkasímalínan er, geta bæirnir notað símann nótt og dag, en kannske aðeins einn eða tvo klukkutíma á dag, ef línan er landssímalína, vegna þess hve landssíminn er alltaf upptekinn.

Þá er línan frá Grund um Indriðastaði að Ytri-Skeljabrekku. Um fyrri hl. þessarar línu, þ. e. Grund að Indriðastöðum (ca. 3 km.), hefir verið samið þannig, að hún verði lögð næsta sumar sem einkalína. Að sjálfsögðu á framhald hennar líka að vera einkalína.

Þá er c-liður brtt., „lína frá Stóra-Kroppi að Hæli í Flókadal“. Landssímastjóri er því meðmæltur, að þessi lína verði tekin inn í ritsímal. Hún er ca. 8 km. löng og kostnaður ca. 5500 kr.

Hv. þm. Borgf. mun sjálfsagt koma með álíka brtt. eða aðrar meiri fram á næsta hæstv. Alþ., og má þá skammt um dvelja, ef á að fullnægja öllum þessum óskum. —

Ég sé ekki ástæðu til að ræða brtt. þeirra hv. þm., sem tekið hafa þær aftur.