22.11.1934
Neðri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (3300)
77. mál, áfengislög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Okkur hv. 11. landsk. kemur ekki saman um, hve brennivínið eigi að vera sterkt. Hann telur, að í því eigi að vera 40% af hreinum vínanda, en ég hafði haldið, að blanda mætti 3 flöskur úr 1 fl. af spíritus, en eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið síðast, mun vera fullsterkt brennivín á 3 flöskum úr 1 lítra af hreinum vínanda. Jafnvel þó að þetta sé nú svona, þá er ég samt eindregið á móti brtt. hans, því að ég álít, að 6 kr. verð á brennivínsflöskunni sé ekki nægilega hátt, og ég býst ekki við, að hv. dm. séu tilbúnir til að greiða atkv. um það nú, að brennivínið skuli selt fyrir 6 kr. flaskan, en það verður ekki meira samkv. till. hans,og blöndunarkostnaðurinn, sem hann var að tala um, mun verða hverfandi lítill. Þá sagði hv. þm. núna fyrst, að svo væri smásöluálagningin eftir, en ég hafði skilið brtt. hv. þm. svo, að hér væri átt við útsöluverð, það verð, sem almenningur á að greiða. Eigi hann við heildsöluverð, þá átti hann eðlilega að taka það fram strax. Annars ber allt að sama brunni með þetta, hvað gera eigi nú með álagningu brennivínsins. Þó aldrei nema átt sé við heildsöluálagningu, þá er ég samt á móti till., því að ég tel svo mikinn vanda að ákveða álagningu á vínin, að þar verðum við að fá reynslu annara þjóða til þess að byggja á, en engar slíkar upplýsingar liggja fyrir nú. Ég hefi aðeins heyrt, að brennivínsflaskan væri seld á 10 kr. í nágrannalöndunum, en eins og ég hefi tekið fram, þá getur hún ekki orðið hér nema 6 kr., en það álít ég of lágt. Annars tel ég ekki forsvaranlegt að slá neinu föstu um verð vínanna yfirleitt á þessu stigi málsins; það er með öllu ótímabært.
Það hefir verið talað um bruggun í þessu sambandi og talið eina ráðið til að útrýma henni að selja brennivínið nógu ódýrt. Í sambandi við það vil ég benda á, að enda þótt brennivínsflaskan væri seld á 10 kr., þá væri hægt að fá meiri vínanda í henni heldur en í öðru víni fyrir sama verð, eftir því sem vín er selt nú. Þannig hefi ég t. d. heyrt, að í einni flösku af sherry, sem seld er á 18 kr., sé ekki eins mikill vínandi og í 1 fl. af brennivíni. Þá verður það og að takast með í þessu sambandi, að menn eru vanir að kaupa vínin dýrt, og þarf því ekki að óttast, að þau seljist ekki, enda þótt verðið sé sett nokkuð hátt.