27.11.1934
Efri deild: 48. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (3330)

77. mál, áfengislög

Forseti (EÁrna):

Mér skilst, að hv. þdm. séu ásáttir um, að þessari umr. sé nú lokið, og vil ég því lýsu því yfir, að 1. umr. um þetta mál er lokið.

Í þingsköpum er það tekið fram, að vísa skuli sama máli að jafnaði til samskonar n. í báðum þd. Nú skilst mér það þó ekki á móti þingsköpum að vísa máli þessu til annarskonar n. en þeirrar, sem hafði málið til meðferðar í Nd., sem var allshn. Ber ég því fyrst upp til atkv. þá till., sem fyrr kom fram, um að vísa málinu til fjhn.