10.12.1934
Efri deild: 57. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)

77. mál, áfengislög

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég skal nú f. h. n. fara nokkrum orðum um þær brtt., sem fyrir liggja frá einstökum dm., og jafnframt svara með fáeinum orðum þeim aths., sem gerðar hafa verið við ræðu mína áðan og brtt. n. Ég vil þó hafa einn formála að því er snertir svar mitt til þeirra hv. ræðumanna, er hér hafa talað. Hér liggja fyrir á þskj. 714 brtt. frá tveimur hv. dm. þeim 2. þm. S.-M. og 4. þm. Reykv. Hv. 2. þm. S.-M. talaði fyrir þessum brtt. allrækilega, en svo skeði sú nýlunda, að meðflm. hans hefir þótt grg. hans heldur ófullkomin, svo hann þurfti að standa upp á eftir honum og halda hér langa ræðu. Hélt hann upp aftur ræðu hv. 2. þm. S.-M., þó með heldur lakari rökstuðningi, það sem það var, heldur en fyrri ræðumaðurinn hafði haft. Ég mun því algerlega ganga framhjá hans ræðu, og að svo miklu leyti sem ég svara ummælum, sem hér hafa fallið, halda mér aðeins við ræðu hv. 2. þm. S.-M., því það er ekki til annars en tefja tímann að taka upp aftur svör við alveg sömu aths., sem fram hafa komið áður. Hið eina, sem ég tók eftir, að væri frumlegt í ræðu hv. 4. þm. Reykv., var það, að hann sagði, að till. þeirra væru komnar frá „okkur, sem höfum fullkomna þekkingu á þessu máli“. Ég efa nú ekki, að þeirra þekking sé mikil, en að þeir séu alvitrir í þessu máli eða öðrum, get ég efast nokkuð um. En ég skal ekki fara frekar út í það. Sem sagt, ég geri þá hv. 2. þm. S.-M. ábyrgan fyrir því, sem báðir þessir hv. þm. hafa sagt, og held mér við ræðu hans, að svo miklu leyti sem ég þarf að svara þeim.

Hv. 2. þm. S.-M. byrjaði ræðu sína á því, að það hefði verið brotin þingvenja að því er þetta mál snerti, þar sem því hefði verið vísað til fjhn., en ekki til allshn. Það kann að vera, að þetta sé talsvert óvenjulegt, en það er líka nokkuð óvenjulegt, að meiri hl. n., sem búizt er við, að máli verði vísað til, rísi upp við 1. umr. þess og haldi hverja ræðuna á fætur annari á móti málinu. Það er venjulegt, að þeir menn, sem búast við að fá málið til meðferðar í n., séu ekki mjög margorðir um það við 1. umr. Annars var ég ekki tillögumaður að því, að því frv., sem hér liggur fyrir, var vísað til fjhn., og kærði mig ekkert sérstaklega um að fá það þangað, en ég býst við, að það hafi verið bein afleiðing af þessari framkomu þeirra hv. 4. þm. Reykv. og hv. 2. m. S.-M. við 1. umr.

Þá taldi hv. þm., að árangurinn af starfi fjhn. í þessu máli væri lítill. Það verður nú vitanlega álitamál. En mér virtist hann sjálfur fallast á, að sumt af því, sem fjhn. hefir að málinu unnið, væri til bóta. Ég geri ráð fyrir, að þetta mál sé búið að fá allmikla athugun áður, bæði utan þings og innan. Og ég hygg, að mælikvarðinn á það, hvort n. vinnur vel eða illa að málinu, sé ekki sá, hvað hún flytur margar brtt. við þau, heldur hvað þær eru nauðsynlegar og skynsamlegar.

Þá skal ég snúa mér að þeim brtt., sem þessir tveir hv. þm. flytja á þskj. 714. Fyrst er till. um það, að heimildin til þess að hafa óinnsiglaðan skipsforða af áfengi falli niður. Ég vil benda á, að ef þessi till. væri samþ., sem breytir bæði 2. og 4. málsgr. 3. gr., þá þyrfti einnig að breyta 3. málsgr. gr., því þar er líka minnzt á óinnsiglaðan skipsforða. N. sem heild hefir óbundin atkv. um þetta atriði, og sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um það né leggja sérstaklega á móti till. Aðeins má benda á, að skip hafa þennan rétt nú, og sýnist eðlilegt, að þau hafi hann áfram, því sú lagabreyt., sem hér stendur til að gera, er nú ekki yfirleitt í þá átt að herða á böndunum.

Þá er 2. brtt., við 9. gr., sem er um það, að atkvgr. skuli fara fram á viðkomandi stöðum áður en nýjar áfengisútsölur eru leyfðar. Brtt. gerir ráð fyrir, að einnig á þeim stöðum, þar sem áfengisútsölur eru nú, skuli fara fram atkvgr. um það, hvort þar megi selja hinar nýju tegundir áfengis, sem gert er ráð fyrir að flytja inn. Fyrsta málsgr. þessarar till. fellur alveg saman við brtt. n., svo um hana þarf ekki að ræða af minni hálfu. Ég vil benda hv. flm. á, að í 2. málsgr. þessarar till. þeirra er skakkt vitnað til eldri laga, og þyrfti það leiðréttingar við, ef till. yrði samþ. Ég get nú sagt það, þó hv. 4. þm. Reykv. kallaði mig berserk Bakkusar við 1. umr., sem allir vita hvað á að þýða, þá hefi ég í raun og veru töluverða tilhneigingu til þess að vera með þessari brtt. Það höfðu allir staðir þennan rétt til þess að greiða atkv. um, hvort þar ætti að vera áfengisútsala eða ekki, fyrir árið 1909, og mér finnst sjálfsagt, að sá réttur haldist enn. En það er bara þetta, að það er ekki á okkar valdi að afnema áfengisútsölur á þeim stöðum, sem þær eru nú, eða svo hefir a. m. k. hver stj. fram af annari litið á. Og þegar útsölur vína eru á þessum stöðum á annað borð, þá sé ég ekki, að neitt sé unnið við það í sjálfu sér, þótt útilokaðar séu fáeinar tegundir áfengis, úr því hvort sem er er hægt að kaupa þar áfengi og hafa svo mikið fyllirí sem vera vill á löglegan hátt. Ennfremur er n. ekki alveg viss um, þegar á annað borð banninu er af létt, hvort öruggt sé að samþ. svona till. vegna samninga okkar við Spánverja. Skal ég ekki leggja dóm á það. Ég verð að segja, að mér þykir að sumu leyti aðgengilegri og rökréttari till. þessara tveggja hv. þm. heldur en till. hv. 4. landsk., því ég veit ekki, hvers Rvík ætti að gjalda eða njóta, hvorn skilninginn sem maður nú vill í það leggja, ef ákveðið er, að þar verði útsala sterkra vína, en atkvgr. fari fram um það alstaðar annarsstaðar í kaupst. landsins.

Þá er 3. brtt. á þskj. 714, við 11. gr., um hvaða skilyrði skuli vera fyrir vínveitingaleyfi, og er hún í þremur stafliðum. Fyrst er, að veitingar fari aðeins fram í veitingahúsunum og einungis í sambandi við máltíðir. Þetta hefir nú verið reynt, að ákveða, að vín væru aðeins veitt í sambandi við máltíðir, og ég held, að reynslan hafi sýnt, að það komi að sáralitlu gagni. Ég held þetta hafi verið praktiserað þannig, að beðið hefir verið um einhverja ögn af mat með víninu — menn eru ekki að sjá svo mjög í það —, og þar af leiðandi verður ákvæðið áhrifalaust. Menn geta t. d. fengið eitt egg og nokkrar flöskur af víni með því. Ég er ekki að segja, að það væri neitt skaðlegt að samþ. þetta ákvæði; ég er svo sem ekkert að berjast á móti því, en ákaflega þýðingarlítið finnst mér það muni vera.

B-liður þessarar brtt. er um það, að vínveitingar megi aldrei fara fram eftir kl. 9 að kvöldi. Þetta var regla á Hótel Borg, en þótti gefast illa og var því breytt til. Því var haldið fram af þeim, sem um þetta áttu að fjalla, sem ég held að séu engir sérstakir aðdáendur vínnautnar, að þetta leiddi aðeins til þess, að menn heltu í sig sem mestu fyrir kl. 9, og svo var náttúrlega hægðarleikur að fara eitthvað annað til þess að halda drykkjuskapnum áfram. Ég er ákaflega hræddur um, að þetta ákvæði geti verkað öfugt við það, sem ætlazt er til. Að það verði í mörgum tilfellum til þess, að menn drekki örar, verði drukknari og sjái þá síður í lögbrot eftir á til þess að fullnægja löngun sinni í meira áfengi. Enda er mér ómögulegt að skilja, að ef vín er sérstaklega hollt milli kl. 6 og 9, þá verði svo mikil breyt. á, þótt kl. slái 9.

Þá er c-liður sömu brtt., um að banna vínveitingar í sambandi við dansskemmtanir. Það væri nú auðvitað ágætt, því það er hinn mesti ósómi að því, þegar vín er mikið um hönd haft á dansskemmtunum og fyllirí og allskonar óstand, sem af því leiðir. En ég er bara hræddur um, að það verði erfitt að koma í veg fyrir, að menn hafi þá vasapelann í staðinn, og er vandséð, hvort verra er. Þó skal ég ekkert mæla á móti þessum lið, því ég viðurkenni fyllilega þann tilgang, sem liggur til grundvallar fyrir því, að hann er fram borinn. Hv. 2. þm. S.-M. sagði einmitt um þessa 3. brtt. þeirra, að öll ákvæði hennar væru vel framkvæmanleg og þeim væri engin alvara með að vilja hafa varnir gegn áfengisbölinu, sem væru á móti þeim. En þrátt fyrir þessi ummæli hans verð ég mjög að draga í efa, að þetta sé framkvæmanlegt þannig, að það komi að nokkru verulegu gagni.

Þá kemur 4. brtt. á sama þskj. A-liður hennar er um, að útsölulaun áfengis megi aldrei fara fram úr 10%. Flm. till. rökstuddi þetta þannig, að því minni sem hagnaðarvon útsölumannsins væri, því minni hvöt hefði hann til þess að selja sem mest, og það er út af fyrir sig rétt. En hinsvegar má segja, að því lægri sem sölulaunin eru, því meira þarf að selja til þess að hafa sama hagnað, svo ég er ekki viss um, að þessi rök hans standist. Annars er ég honum alveg sammála um það, að útsölumenn áfengis ættu helzt enga prósentu að hafa af útsölunni, heldur ákveðin laun, til þess þeir hefðu alls enga hagnaðarvon af því að selja sem mest. Ég er honum sammála um, að það væri bezta skipulagið í því efni. Að því er snertir útsölu í búðum, væri auðvelt að koma því við, að þeir, sem hefðu hana á hendi, hefðu fyrir ákveðna þóknun, en ekki prósentur. Ég myndi sízt hindra, að stj. reyndi að framkvæma þetta þannig. Aftur held ég, að erfitt yrði að koma þessu við á því eina veitingahúsi, sem vínsöluleyfi hefði.

Þá er b-liður þessarar till., um að ekki megi selja heim einstaklingum meira en 5 lítra áfengis í senn. Ég get viðurkennt hugsun þá, er liggur til grundvallar fyrir þessari till. Í Svíþjóð er mér sagt, að tekin hafi verið upp skömmtun á áfengi og getizt vel. En eins og till. er orðuð af hv. flm., held ég, að hún muni koma að litlu gagni. Hversu oft má selja sama manninum? Það nefna þeir ekki. Hann gæti keypt vín hvað eftir annað á skömmum tíma. Að vísu má ekki finnast hjá honum meira en þetta, og bætir það nokkuð úr skák, en flestir myndu vafalaust geta fengið kunningja sína til að geyma fyrir sig áfengi. — Hitt væri annað, að ákveða, að ekki mætti láta til ákveðins manns nema ákveðið magn á ákveðnum tíma, T. d. á ári eða mánuði. Þessi till. þeirra á, eftir orðum hv. aðalflm., að koma í veg fyrir, að leynisala með lögleg vín komi upp. Ég held, að hún komi ekki í veg fyrir það, þó að ég viðurkenni tilganginn.

Þá er 5. brtt. þeirra á þskj. 714, við 16. gr., þar sem þeir vilja banna öllum að flytja áfengi innan takmarka þeirra lögsagnarumdæma, þar sem áfengissala hefir ekki verið leyfð. Þessi till. er þannig, að ég trúi því tæplega, að þeir hafi flutt hana í fullri alvöru. Hugsum okkur, að áfengissala væri leyfð hér í Rvík, en ekki t. d. í Árnessýslu. Svo er hér staddur maður úr Rangárvallasýslu, sem kaupir sér flösku á leyfilegan hátt. Ef till. nær samþykki, þá veit ég ekki, hvað þessi maður á að gera við flöskuna. Við verðum að hugsa okkur, að hann búi á veitingahúsi hér. Þangað inn má hann ekki hafa hana með sér, og hann má ekki flytja hana yfir Árnessýslu. Hvaða gagn er að því að setja svona löggjöf? Væri þá meira vit í að ákveða, að íbúum þeirra héraða, þar sem áfengisútsala væri ekki leyfð, mætti alls ekki selja áfengi, þótt þeir væru staddir á öðrum stöðum.

Ég býst við, að mér verði svarað, að áfengisútsalan geti sent mönnum vínið. En ég sé þá ekki betur en að hún yrði að senda það beint inn á heimili manna. Hún yrði þá helzt að senda það með pósti. En ég sé ekki, að viðtakandi mætti sækja sendinguna á pósthúsið, því að það væri að flytja áfengi um lögsagnarumdæmið. Nei, svona till. er ekki hægt að taka alvarlega. Hv. aðalflm. sagði, að ef öllum væri leyft að flytja áfengi um héruð landsins, þá sæju allir, hvað af því leiddi. Hann skýrði það ekki nánar. Ég þykist nú glöggt sjá, hvað af slíkri samþykkt sem þessari myndi leiða: Lögbrot.

Þá er 6. brtt. á sama þskj., að fella niður ákvæði um, að lögreglustjóri geti veitt leyfi til vínveitinga í félagsherbergjum o. s. frv. N. hefir óbundnar hendur um þetta atriði. Ýmislegt mælir á móti, t. d. það, að þá myndi oft verða leitað ólöglegra ráða. Vil ég ekki leggja á þetta neinn dóm að svo stöddu.

Þá er 7. brtt. þeirra, að ríkisstj. skipi sér til aðstoðar ráðunaut í áfengismálum. Ég hefi ekki nema gott um þetta að segja, en þessi ráðunautur virðist reyndar vera til nú þegar, þar sem er yfirmaður góðtemplarastúkunnar. Virðist hann sjálfsagður til þessa. Væri því réttara að hafa till. svo, að stórtemplar skyldi spurður ráða. Hann er sá, sem álíta má, að bindindismenn landsins beri mest traust til.

Þá er a-liður 8. brtt., sem er aðeins afleiðing af 7. brtt. En b-liðurinn er þess efnis, að auglýsa skuli á skipum, veitingahúsum og pósthúsum aðalatriði þessara l. Er auðvitað ekki nema gott, að sem flestir séu l. kunnugir. En á hinn bóginn er þetta framkvæmdaratriði, sem stj. gæti gert án þess að það þyrfti að lögbjóða. Ég fyrir mitt leyti léti mér nægja yfirlýsingu frá hæstv. stj. um, að hún myndi gera þetta.

Að því leyti sem hv. 2. þm. S.-M. svaraði minni ræðu, virtist hann hafa fátt við hana að athuga. Þó var hann heldur á móti 2. brtt. n., fannst hún vera að draga úr ákvæðum frv. um meðferð áfengis. En mér virtist skoðanabróðir hans, hv. 4. þm. Reykv., vera á annari skoðun, og virtist mér hann mundu fallast á till. n.

Um þau orð, sem ég lét falla um daginn, þar sem ég taldi óviðeigandi að kalla hreppstjóra og slíka starfsmenn minni háttar embættismenn, er það að segja, að það er ekki hliðstætt því að tala um minni og meiri háttar lagabrot. Það er minni háttar lagabrot að kaupa sér vínflösku á óleyfilegan hátt, en aftur er það meiri háttar lagabrot að drepa mann. Ég sé ekki, að þetta skipti hér máli.

Þá sagði hv. þm., að ég hefði ekki talið það gera mikið til, þó að menn smygluðu og brugguðu hamla sjálfum sér. Því hefi ég ekki haldið fram. Slíkt gerir mikið til, en það gerir minna til en ef smyglað er og bruggað til þess að selja öðrum.

Þá sagði hann í lokin, að allir viðurkenndu, og við líka, að tjón myndi leiða af þessari lagabreyt. Ég hefi nú aldrei viðurkennt, að af lagabreytingunni myndi leiða tjón, heldur af misnotkun áfengis. Og ég held, að misnotkun áfengis verði minni með samþykkt þessarar lagabreyt. Út af þessum og öðrum ummælum hv. þm., sérstaklega við 1. umr., varð ég dálítið undrandi. Ég hefi þekkt þennan mann í mörg ár að því einu að vera prúðmenni og vandaður í öllum málaflutningi, nema þegar þetta mál hefir verið til umr. Því að bæði nú og eins um daginn hefir hann gert mér upp orð og lagt út af þeim. Ég tek það fram, að ég hefi aldrei annars heyrt hann viðhafa þesskonar málaflutning. Þetta sýnir aðeins, að þegar menn eru farnir að lifa í trú, en ekki í skoðun, þegar eitthvað er orðið trúaratriði fyrir þeim, hversu öll rök þeirra geta þá farið út í veður og vind. Ég veit, að Alþt. munu sýna þetta á sínum tíma, ef hv. þm. breytir þá ekki handritum skrifara. (IngP: Ég leiðrétti aldrei ræður). Ég get sýnt fram á þetta hvenær sem er, en nú gefst ekki tími til þess.

Viðvíkjandi skrl. brtt. frá hv. þm. Dal., vil ég geta þess, að n. hefir ekki tekið afstöðu til hennar, þar sem hún er fyrst fram borin á þessum fundi. Get ég því ekkert um hana sagt f. h. n., en mitt álit mun ég sýna með atkv. mínu.