12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2219 í B-deild Alþingistíðinda. (3350)
77. mál, áfengislög
Guðrún Lárusdóttir:
Ætíð þegar verið er að tala um áfengislöggjöfina, dettur mér í hug saga um fátæka verkamannskonu, sem fór til dómara til þess að biðjast vægðar fyrir mann sinn, en hann hafði verið dæmdur fyrir glæp, sem hann drýgði í ölæði. Hún stóð þarna fyrir framan þennan volduga fulltrúa réttvísinnar, sem hafði hneppt manninn hennar í æfilangt fangelsi fyrir að hafa drepið meðbróður sinn undir áhrifum þeirrar vöru, sem þjóðfélagið leyfir sölu á. Hún gerði grein fyrir því, hvernig heimilislíf þeirra hefði verið og sagði, að maðurinn sinn hefði verið sá bezti maður, sem hægt var að hugsa sér, utan víns, en sá aumasti og argasti fantur þegar hann hafði drukkið sig fullan. Hann hefði að vísu ekki langað til þess að drekka sig fullan, en það væru margir menn, sem freistuðu slíkra manna, þegar þeir vissu, að þeim þætti sopinn góður, og hann hefði oft fallið fyrir þeirri freistingu. Og svo spurði konan að lokum: Hvernig stendur á því, að lög landsins skuli leyfa sölu og neyzlu á slíku eitri, sem svona getur farið með jafngóðan mann eins og maðurinn minn er? Dómaranum varð svarafátt, og hefir hann sjálfsagt fundið sem góður drengur, að hér var löggjöfinni nokkuð um að kenna. — Ég verð að segja, að það er erfitt að fást við málefni eins og þetta, þar sem annarsvegar varan er leyfð, og meira að segja ætlazt til þess, að landslýður noti hana, því margir gera sér miklar tekjuvonir af henni, en hinsvegar verið að reisa sem rammastar skorður við því, að þjóðinni verði skaði af þessari vöru. Það er erfitt að draga hreinar línur í slíku máli. Þessi löggjöf, sem hér liggur fyrir framan okkur, ber þess ljósan vott, að þrátt fyrir það, þó sumir vilji láta rýmka til um áfengið og veita því sem víðast, þá álíta þó hinir sömu menn, að nauðsynlegt sé að setja sem öflugastar og beztar skorður, og ég verð að segja það, að það hefir tekizt vonum framar með þessu frv., enda þótt aðalatriði frv. standi mér og öðrum áhugasömum bindindismönnum þvert um geð.
Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. við 7. gr. frv., sem gengur í þá átt, að ríkissjóður taki við sektarfénu, en ekki Menningarsjóður. Þetta er nú að vísu lítið atriði, en mér finnst enginn menningarbragur á því að láta Menningarsjóð, sem á að standa undir listum og vísindum landsins, græða á þeim glæpum, sem framdir eru í þjóðfélaginu. Mér finnst því sjálfsagt að skipta um og láta ríkissjóð taka við þessu fé, en hann láti svo renna í Menningarsjóð sem svarar þeirri upphæð, sem áður hefir komið af þessum sektum. Og því fremur er ástæða til að breyta til, þar sem gera má ráð fyrir, að þessi l. verði þýdd á öll menningarmál álfunnar, svo það kemst út um allan heim, að við látum Menningarsjóð þjóðarinnar lifa á þessum stærstu glæpum, sem drýgðir eru í íslenzku þjóðlífi. Þess vegna hefi ég borið þetta fram, og ég vona, að hv. Ed. sé svo smekkleg, að hún samþ. þetta.
Þá kem ég að 2. brtt. minni, sem er við 9. gr. frv. Þar er talað um heimild fyrir ríkisstj. til þess að setja á stofn útsölustaði áfengis, ef fengizt hefir samþykki hlutaðeigandi sýslu- eða bæjarfélags. En ef fellt hefir verið að setja útsölu á stofn, er gert ráð fyrir því, að atkvgr. skuli fara fram á ný að tveim árum liðnum, til þess að leitast fyrir um, hvort ekki muni nú fást leyfi til þess að setja á stofn útsölu. Mér fyndist samræmi í þessu, ef þar sem útsala hefir einn sinni verið leyfð skuli endurtaka atkvgr. á þriggja ára fresti. Þetta mundi gefa þeim, sem eru í andstöðu, kost á að ráða þessu, og fyndist mér þá báðum aðilum gert jafnt undir höfði. Ennfremur gæti þetta orðið hvöt fyrir bindindismenn til þess að starfa vel og rækilega að bindindismálum á þessum stöðum, og fyrir mér vakir það náttúrlega að hefta sem mest nautn áfengra drykkja, og þess vegna hefi ég borið þessa brtt. fram.
Næsta brtt. mín er aðeins orðabreyting. Við 2. umr. málsins voru felld niður eftir till. allshn. nokkur orð úr 13. gr., sem hefir valdið því, að niður hefir fallið orðið „áfengi“, því þar stendur aðeins: „bannað er að selja þeim manni áfengi, er sekur hefir gerzt um óleyfilega sölu“, en ekkert tekið fram á hvaða vöru. Þess vegna þótt mér rétt að bæta við orðunum: „eða bruggun áfengis“. Í brtt. er smá-prentvilla, þar sem stendur „og“ en á að vera „eða“.
Ég hefi þá rætt mínar brtt., því 4. brtt. er samskonar og sú fyrsta, eins og allir sjá. Ég ætla mér ekki að tala neitt um annara manna brtt. að þessu sinni, en vil aðeins segja það við hv. 2. þm. Rang., að við erum á svo öndverðum meið í grundvallarskoðunum, að það er varla hægt fyrir okkur að tala saman um þetta, því hann vill rýmka sem mest fyrir áfenginu og gera sem hægasta aðstöðuna til að selja það, en ég vil takmarka það sem allra mest, að þessar eiturtegundir komist til fólksins. Það er mín skoðun, að hér sé um að ræða stórhættulega vörutegund, sem verði undir flestum tilfellum til meira böls heldur en við getum gert okkur í hugarlund, og ég hefi enga trú á því, að þessi rýmkun verði til þess að koma í veg fyrir heimabruggið. En hitt skal ég játa, að frá skynsamlegu sjónarmiði getur verið, að þetta veika öl næði bezt þeim tilgangi að útrýma heimabrugginu. En verður ekki erfitt að hafa eftirlit með slíku bruggi? Ég óttast það. — Ég hefi áður tekið það fram við umr. þessa máls, að mér þætti vænt um allar þær uppástungur, sem gætu orðið til þess að draga úr heimabrugginu og yfirleitt þeirri skaðsemi, sem áfengir drykkir allajafna hafa í för með sér, og þegar hv. 2. þm. Rang. hefir komið með óræka sönnun fyrir þeirri skoðun, að þessi leið sé heppileg, mun ég ekki láta á mér standa að greiða atkv. með henni.