12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (3357)

77. mál, áfengislög

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Það er þægilegt fyrir mig, áður en ég stend upp, að fá yfirlýsingu frá hv. 5. landsk. um það, að það sé vindlingurinn en ekki ölið, sem komi æskumanninum út á ofdrykkjubrautina. (GL: Ég talaði aðeins um vindlingana, en nefndi hitt ekki á nafn). Ég get vel tekið undir þetta með hv. þm. Margir unglingar hafa tilhneigingu til þess að neyta tóbaks og gera sér þá ekki grein fyrir afleiðingunum, frekar en þeir, sem drekka öl í óhófi.

Hvað fyrstu 3 brtt. snertir, get ég verið hv. frsm. þakklátur fyrir undirtektirnar. Hann lýsti því yfir sem sinni skoðun, en ekki n., að hann teldi till. réttmætar og það bæri því, samkv. sínu áliti, að samþ. þær. Aftur á móti hafa till. mætt andstöðu úr annari átt, sem sé frá hv. 5. landsk., sem fór lítið út í þetta atriði. Hann talaði af sanngirni og sagðist óttast, að erfitt yrði að framkvæma eftirlitið. Þessar ábyggjur hv. þm. eru ástæðulausar, því að ef þessi leið verður farin, sem hér er lagt til, að veita ákveðnum ölgerðarhúsum leyfi til bruggunar hér innanlands, þá ætti að vera tiltölulega auðvelt fyrir hæstv. ríkisstj. að selja eftirlit með þessum húsum, sem á að vera trygging fyrir því, að þessi heimild verði ekki misnotuð, þannig að ekki verði selt áfengi eða öl utan við ríkissöluna.

Hvað snertir innflutning og sölu hjá áfengisverzluninni, get ég ekki séð, að meiri hætta sé á misnotkun ölsölunnar en á sölu áfengisins. Það er alltaf nokkur hætta á misnotkun, því að reynslan er búin að kenna okkur, að salan hefir ekki nema að litlu leyti gengið í gegnum þær stofnanir, sem heimild höfðu til þess að selja áfengið, heldur farið í gegnum hendur lögbrjóta, bæði innlendra og erlendra. Þessa ástæðu á móti till. mínum álít ég því mjög lítils virði.

Hv. 4. þm. Reykv. kom með enn aðra ástæðu á móti þessum till. Hann hélt því fram, að hófdrykkjan væri leið til annarar áfengisnautnar. Ég vil spyrja þennan hv. þm., hvernig þetta hafi verið undanfarið. Það hefir verið kvartað yfir því, og það með réttu, að áfengisnautnin væri að aukast hér á landi á síðustu árum, og flestir, sem nú eru miðaldra, verða að viðurkenna, að nú flæðir áfengið yfir stór svæði, sem voru „þurr“, þegar þeir voru á unglingsaldri. Mjög margir þekkja þetta af eigin reynslu. Ég held, að varla verði ölinu kennt um þessa aukningu áfengisnautnarinnar hér á landi síðustu árin.

Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að meðan algert aðflutningsbann var á áfengi hér á landi, var landið samt aldrei „þurrt“. Víðast hvar á landinu var auðvelt að ná í áfengi, ef menn aðeins kærðu sig um. En hér um bil eina tegundin af áfengi, sem fáséð var og næstum óþekkt hér á landi, þegar síðustu bannlög komu í gildi, var einmitt áfenga ölið. Það er mjög skiljanlegt, að hannaður hefir verið innflutningur á því alla tíma; það stafar af því, hve fyrirferðarmikið ölið er. Þess vegna er minna smyglað af því en af sterkum drykkjum. Það er vitanlega ólíkt hampaminna að smygla inn einni flösku af koníaki eða wisky heldur en einum kassa af öli, og þó mun vera meira áfengismagn í einni flösku af áðurgreindum áfengistegundum heldur en í heilum ölkassa. Þetta er ástæðan fyrir því, að ölið er horfið.

Reynsla sú, sem fengizt hefir í þessu efni, bendir sannarlega ekki í þá átt, að það hafi verið ölið, sem kenndi fólkinu að drekka, og nú er kvartað um það fyrst og fremst, að það sé unga fólkið, sem drekki. Áfengisnautnin er mikið algengari meðal þess heldur en hjá gömlu kynslóðinni, sem alin var upp við áfengi frá barnæsku.

Hv. þm. kom með aðra skýringu á þessu. Hann hélt því fram, að skiljanlegt væri, að menn byrjuðu á ölinu, vegna þess að það væri ódýrast. Þetta sýnir, hversu hv. þm. er gersneyddur því, að vera skynbær á málefni þau, sem hér um ræðir. Óáfengt öl er selt hér á 50 aur. fl. í heildsölu og dálítið dýrara í smásölu, en ég geri ráð fyrir, að áfenga ölið sé selt hærra verði, því að fyrst og fremst er tollurinn á því hærri, og svo kostar meira að búa það til, geri ég ráð fyrir, og svo er álagningin á því meiri, svo að það verður ekkert ódýr vara að lokum. Allir, sem eitthvert skyn bera á þetta mál, vita, að í öli er ekki nema ¼ af alkoholi til móts við sherry og portvín, svo að það þarf margfalt meira af ölinu til þess að það hafi jafnsterk áhrif og þessar víntegundir. Ef menn nota ölið ekki til þess að drekka sig hreyfa, þá eru engin líkindi til þess, að það komi þeim út á áfengisbrautina. Til sælgætis drekka menn ekki öl, heldur sem svaladrykk.

Það er önnur hlið þessa máls, sem gerir það að verkum, að ólíklegt er, að ölið verði jafnmisnotað hjá okkur Íslendingum eins og í sumum Suðurlöndum, vegna þess að loftslagið og hitinn þar suður frá hvetur menn til þess að neyta svaladrykkja meira en góðu hófi gegnir. Ölið er almennur drykkur í Þýzkalandi, en er samt ekki notað til þess að drekka sig ölvaðan af því. Menn þamba það bara við þorstanum. Vitanlega gildir sama um öl og allan annan drykk, að það er hægt að drekka of mikið af því. Ég er ekki viss um, að til sé nokkur drykkur, sem ekki getur skaðað heilsu manna, sé hans neytt um of. Það er jafnvel hægt að drekka sér til óbóta af okkur krystalstæra Gvendarbrunnavatni, svo maður tali nú ekki um kaffi og te.

Hv. þm. sagði í þessu sambandi, að hann gæti vel skilið, að þeir menn, sem ekki álitu vínið skaðlegt, og talaði hann þá til mín, að því er mér virtist, vildu líka hafa öl, og yfirleitt talaði hv. þm. í þeim tón, sem við teldum æskilegt að neyta víns sem mest. Ég fyrir mitt leyti hefi ekki látið í ljós neina skoðun í þessu efni, en hinsvegar get ég tekið það fram, að ég hygg, að enginn skoðanamismunur sé á milli mín og hv. 4. þm. Reykv. um það, að ofnautn áfengis sé stórskaðleg ungum sem gömlum. Okkur greinir á um allt annað. Fyrst og fremst um það, hvort líklegt sé, að áfengisnautn vaxi, þótt létt sé af þeim leifum, sem eftir eru af okkar 20 ára gömlu bannlögum. Ég fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að það sé síður en svo, að afnám bannlaganna muni verða til þess, að ofdrykkja aukist, heldur muni það þvert á móti verða til þess, að áfengisnotkun fari minnkandi. Ég hefi áður gert grein fyrir þessari skoðun minni hér í þessari hv. deild, þegar ég og hv. 1. þm. Reykv. fluttum hér frv. um afnám bannlaganna. Þá var rætt um þetta mál hér á hv. þingi, og mun ég því ekki endurtaka nú það, sem ég sagði þá.

Ástæðan til þess, að ég get ekki séð neinar líkur til þess, að áfengisnautn vaxi, þótt bannið verði afnumið, er sú, að hver, sem áfengis vill neyta, hefir átt kost á að afla sér þess bæði á löglegan og ólöglegan hátt. Svo að segja hver maður í landinu getur valið um, hvort hann vill láta eftir tilhneigingu sinni eða ekki. (SÁÓ: Mun hann ekki geta gert það áfram?). Jú, það er líklegt, að hann muni geta gert það.

Vitanlega eru engin líkindi til þess, að brugg hverfi, þótt þessi breyting verði gerð.

Þeir hv. þm., sem vilja styðja að því, að þessi bannlög, ef bannlög skyldi kalla, haldist, verða ásamt öðrum skoðanabræðrum í þessum efnum að taka á sig ábyrgðina á því, hvernig komið er á þessu sviði. Brugg þekktist ekki hér á landi fram að 1915. Það var ekki fyrr en um það leyti, sem bannið var í rauninni afnumið, að bruggið gerir vart við sig hér. Við hefðum líklega aldrei komizt út í annað eins öngþveiti og raun beri vitni um, ef við hefðum ekki átt að búa við svona slæma áfengislöggjöf.

Hver sem er getur nú aflað sér áfengis, þegar hann vill, löglegs eða ólöglegs. Þeir, sem vilja neyta áfengis, gera það eins og engar hömlur væru. En það er önnur hlið á þessu máli, sem máske er erfitt að færa sönnur á, en allir vita þó, að er til. Það er sú togstreita, sem hefir verið um það, að ná í ólöglegar áfengistegundir, af því að meira hefir þótt varið í að geta boðið gestum sínum upp á hin sterkari vín, af því að þau þykja betri, og auðvitað jafnframt af því, að erfiðara er að afla þeirra. Ég er ekki að mæla þessum hugsunarhætti bót, heldur að segja frá staðreyndum. En ég er þess fullviss, að þegar hinar síðustu hömlur eru teknar burt, eins og nú á að gera, þá verður sú breyting á þessu, að mönnum, sem annars hafa vín um hönd, finnst að þeir geti vel boðið gestum heim til sín án þess að veita þeim ólöglegt áfengi, eða jafnvel nokkurt áfengi.

Þegar kyrrð er komin á þetta mál og óánægjan hjöðnuð, sem verið hefir á báða bóga, meðan á því hefir staðið að leggja niður þessa ræfla af bannlögunum, hljóta af sjálfu sér að skapast betri skilyrði fyrir heilbrigða bindindisstarfsemi heldur en áður. Það, sem okkur hv. 4. þm. Reykv. og mér ber á milli, er ekki það, að við séum ekki sammála um, að drykkjuskapur sé böl og bindindi æskilegt, heldur hvaða leiðir eigi að fara, og ef til vill hvað skuli drekka. Hv. 4. þm. Reykv. vill fyrst og fremst, að menn drekki hin heitu vín, eða Spánarvínin svo nefndu, og svo auðvitað landann. Ég þekki nú landann lítið af eigin reynd, en svo mikið veit ég, að hann er misjafn að gæðum, og víst er, að ýmsir hafa beðið skaða af honum, þótt hans hafi ekki verið neytt að neinum mun, að því slepptu, að menn hafa hér á ári hverju drepið sig á eitruðu áfengi vegna bannlaganna. En ég vildi gjarnan heyra hv. 4. þm. Reykv. færa rök að því, að landi og Spánarvín séu betri og hollari til drykkjar en hin sterku erlendu vín eða öl, sem er 4% að styrkleika. Ég skal óhræddur taka upp við hann viðræður um þetta, þegar hann hefir borið fram sín rök í málinu. Hann var að tala um einhverjar vísindabækur um skaðsemi öls, sem hann hefði lesið, en ég er hræddur um, að þau vísindi eigi við aðra staðhætti en hjá okkur eru. [Fundarhlé].

Ég held ég geti nú látið úttalað um ágreininginn milli okkar hv. 4. þm. Reykv. út af brtt. hans, og skal ég þá fara örfáum orðum um mótbárur annara hv. þm. gegn brtt. mínum. Hv. frsm. andmælti síðustu brtt. minni, þar sem gert er ráð fyrir að leyfa sölu til manna, þó áður hafi gerzt brotlegir gegn áfengislögunum. Hann játaði þó, að erfitt mundi verða að framfylgja banni við slíkri sölu og það mundi verða lítt haldið, því að þessir menn mundu eiga auðvelt með að fá aðra til þess að kaupa vín fyrir sig, en hitt væri vandalítið fyrir lögregluna, að sjá um, að þessir dæmdu menn keyptu ekki vín sjálfir. Ég held nú, að lögreglan hafi annað að gera en að eltast við þá menn, sem dæmdir hafa verið fyrir áfengislagabrot, til þess að sjá um, að þeir kaupi ekki vín. Hitt er annað mál, að hún getur tilkynnt vínútsölunum, hverjir hafa verið dæmdir, en hinsvegar verður að sjálfsögðu erfitt fyrir útsölurnar að framfylgja því, að þessir menn fái ekki vín afhent.

En hv. frsm. lét eins og vind um eyrun þjóta höfuðröksemdir mínar fyrir þessari till., sem sé þær, að þegar menn eru þannig hæfilega lengi búnir að kaupa vín fyrir aðra, þá geti farið svo, að þessir menn freistist til þess að fara að kaupa vín fyrir eigin reikning. Ég sé ekki betur en að þetta sé rökrétt hugsun hjá mér, og ég get ekki skilið, að menn vilji koma þessum mönnum þannig til þess að fara að brjóta áfengislögin. Mér er því óskiljanlegt, hvers vegna hv. frsm. talar á móti þessari brtt., og er jafnvel hræddur um, að það stafi af því, að n. var búin að taka afstöðu móti till.

Þá mælti hann einnig á móti 4. brtt. minni, þar sem lagt er til, að heimild til þess að stofna nýjar útsölur sé ekki skorðuð við kaupstaði og kauptún. Hann sagði, að hvað Rangárvallasýslu viðkæmi, þá væri ekki vorkun fyrir íbúana þar að ná víni frá Rvík, þar sem samgöngur væru svo örar á milli. Ég hefi ekki gefið neinar fullyrðingar um það, hvort Rangæingar mundu nota sér þennan rétt, þó brtt. yrði samþ., en það vil ég leggja höfuðáherzlu á, að eitt af því þýðingarmesta, sem vonað er, að náist með þessari löggjöf, er einmitt það, að heimabruggið verði kveðið niður. Það hefir verið játað, m. a. af hv. 4. þm. Reykv., að því frjálslegri sem löggjöfin yrði, því meiri von væri um, að hún gæti orðið til þess að útrýma heimabrugginu. Og ef við erum á annað borð sammála um, að það eigi að vinna á móti heimabrugginu og það verði frekast hægt með frjálslegri áfengislöggjöf, þá er það óskiljanlegt, hvernig hv. þm. geta verið á móti svo frjálslegri og sanngjarnri till. sem þessari 4. brtt. minni. Og ef þetta er vopn gegn heimabrugginu, hvers vegna á þá að neita sumum um að beita því vopni, bara fyrir það, að þeir búa ekki í þorpi eða kaupstað? Því hvað er hættulegra við að hafa útsölu í sveit heldur en í kaupstað? Þeir, sem telja það hættulegra, að menn eigi greiðan aðgang að útsölunum, ættu að sjá, að þá er sú hætta mest í þéttbýlinu. Það ætti því frá sjónarmiði þessara manna að vera minni hætta af útsölum þar, sem þéttbýlið er minna, heldur en þar, sem menn hafa útsöluna rétt við bæjarvegginn. Ég get því ekki séð, að hv. þm. hafi nein frambærileg rök fram að færa gegn þessari brtt. minni.

Ég skal svo minnast örfáum orðum á tvær aðrar brtt., sem fyrir liggja frá hv. 2. þm. S.- M. og hv. 4. þm. Reykv. og nokkrar umr. hafa orðið um. Hv. frsm. talaði um þær með velvild, og aðrir, sem hafa á þær minnzt, hafa yfirleitt tekið í sama streng. Nú vil ég benda á, að það er þegar búið að reyna þá leið að skammta mönnum áfengi. Það var gert með reglugerð, sem sett var 1922. Þar var settur viss hámarksskammtur, sem hver maður mátti fá af áfengi, en þetta ákvæði reyndist ekki betur en svo, að það var fellt niður næst þegar reglugerð var samin. Skömmtunin kom ekki að neinu liði, en olli erfiðleikum og tímatöf við afgreiðsluna. Ef einhver maður var búinn með sinn skammt, var hægurinn hjá að fá síðan skammt konunnar eða annara vandamanna, og ef þá leið þraut, var alltaf hægt að fara til kunningja, sem ekki notuðu sinn skammt.

Ég átti eitt sinn tal við mann, sem starfaði við afgreiðslu í áfengisverzluninni. Hann sagði mér, að hann væri ekki viss um nema einn mann, sem hefði verið svo löghlýðinn að nota aðeins sinn skammt, og ekki einusinni tekið út vín á nafn konunnar. Aðrir viðskiptamenn hefðu meira og minna farið í kringum þessi ákvæði reglugerðarinnar. Mér finnst ákaflega hæpið að fara nú aftur að taka upp þessi ákvæði, þegar nokkurn veginn er víst, að þau hafa engin áhrif.

Um 2. brtt. þeirra er það að segja, að þó ég sé þeim sammála um, að það eigi alls ekki að viðgangast, að ölvaðir menn séu í bílum, sem ætlaðir eru sem farartæki fyrir almenning, og þó bæði ég og aðrir hafi rekið sig á, að slíkt veldur oft ýmiskonar leiðindum fyrir allra farþega, þá er ég sannfærður um, að till. þeirra mundi ekki hafa nein áhrif til að koma í veg fyrir þau leiðindi. Það segir í brtt. að ekki megi neyta áfengis í bifreiðum, sem farþega flytja. Nú er það, eins og hv. frsm. benti á, dálítið óeðlilegt að gera hér engan greinarmun á því, hvernig á farþegaflutningnum stendur, hvort tilteknir menn hafa slegið sér saman um bíl, eða hvort um er að ræða bíl, sem tekur hvern sem er, meðan rúm leyfir. Í sjálfu sér er ekkert fremur athugavert við það, þó menn neyti áfengis í bílum heldur en annarsstaðar, ef það er með góðu samkomulagi allra þeirra, sem í bílnum eru. Ég hefi ekki heyrt um, að slys hafi af því hlotizt, að farþegar hafi haft vín um hönd.

Svo er hitt, að þó það kæmist í framkvæmd, að áfengis væri ekki neytt í bílnum, þá væri hægurinn hjá að fá bílstjóra til þess að stöðva bílinn hæfilega oft og fara út til þess að súpa á flösku sinni þar. Ég skil ekki í öðru en áfengið hafi jafnt sin áhrif, hvort sem þess er neytt inni í bílnum eða úti á guðsgrænni jörðinni.

Ég held því, að það, sem gera þarf í þessu efni, sé það, að setja einhver víðtæk ákvæði um það, líklega helzt í bifreiðalögin, að bílstjórar megi ekki flytja ölvaða menn í bílum, sem ætlaðir eru almenningi, eða þá að setja um þetta nokkuð víðtækari ákvæði heldur en felast í till. þessara tveggja hv. þm. í áfengislögin.

Ég ætla ekki að furu að hjálpa hv. þm. S.-Þ. til þess að rekja raunasögu bannmálsins hér. Það geta allir verið sammála um, að þessi tilraun, sem gerð vur í góðum tilgangi, hefir misheppnazt. Hinsvegar er ég sannfærður um, að það er ekkert annað en heilaspuni, að hægt sé að kenna nokkrum sérstökum flokki eða sérstakri stétt í landinu um það, að þessi tilraun hefir mistekizt. Ástæðan til þess, að svo fór, er vitanlega tvennskonar. Annarsvegar sú, að þessi lög hafa sjáanlega ekki verið í samræmi við réttarmeðvitund þjóðarinnar, hún hefir aldrei getað litið á það sem glæp að neyta áfengis. Hinsvegar gerir lega landsins og hin langa strandlengja þess það að verkum, að það hefir reynzt ákaflega erfitt að framfylgja hinum ströngu áfengislögum. Ef hér ætti að hafa svo fullkomið eftirlit með innflutningi áfengis, að það væri tryggt, að meiri eða minni smyglun ætti sér ekki stað, þá þyrfti til þess miklu meiri lögreglu heldur en við höfum tök á að hafa. Og þó hefir sýnt sig, að erfiðleikarnir á því að koma í veg fyrir heimabrugg eru ennþá meiri. Aðaltilraunirnar, sem gerðar hafa verið til þess að koma í veg fyrir áfengislagabrot, hafa verið í því fólgnar, að hafa sem hörðust refsiákvæði. Á þeim hefir verið hert ár frá ári. Gífurlegar sektir og auk þess fangelsisvistir hafa verið lagðar við fjöldamörgum tiltölulega smáum brotum. En að mín áliti er mjög vafasamt, hvort þessar hörðu refsingar hafa ekki verkað öfugt við það, sem ætlazt hefir verið til. Það er eðlilegt, þegar jafngífurlegar refsingar eru lagðar við yfirsjónum, sem menn telja yfirleitt ekki glæpsamlegar, að menn hlífist við í lengstu lög að kæra kunningja sína og nágranna, þó menn viti, að þeir hafi gerzt brotlegir.

Þessum hörðu refsiákvæðum er að miklu leyti haldið í því frv., sem hér liggur fyrir, þó nokkuð sé úr þeim dregið. Og þótt ég hafi ekki komið með brtt. um að nema þau burt, m. a. vegna þess, að ég álít rétt, að menn fái endanlega reynslu fyrir, að hvaða gagni þau megn verða, þá er ég mjög í vafa um, hvort við erum ekki á villigötum í þessu efni. Og ef það er réttur skilningur hjá mér, að þessar refsingar séu ekki í samræmi við almenningsálitið í landinu, þá þarf ekki að búast við, að þær dragi úr brotum, heldur eru líkur til, að betri árangur náist með því að hafa refsiákvæðin vægari.