17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2342 í B-deild Alþingistíðinda. (3379)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Sigurður Kristjánsson:

Ég hefi ekki mælt með 2 brtt., sem ég hefi flutt, enda þarf ég þess ekki, þar sem samgmn. hefir gert það, bæði form. n. og hv. 2. þm. Árn., og hafa þeir gert það mjög vel. Ég vil nota tækifærið og þakka n. fyrir undirtektirnar.

Út af skrifl. brtt., sem fram er komin, vil ég segja það, að ég vildi gjarnan hafa borið hana fram sjálfur, en ég gerði það ekki af því, að sá maður, sem á hér hlut að máli, er mér skyldur. Ég vildi ekki láta líta svo út, sem ég væri að halda honum fram af þeim sökum. Það er rétt hjá hv. 2. þm. N: 91., að þessi maður hefir öll opinber störf á hendi fyrir sína sveit og verður að fara daglega alllanga leið í síma í Skálavík. Ég veit, að hann fær sér einkasíma, ef ekki er annað að gert, því hann getur ekki lengur án símans verið. Það hefði auðvitað þurft að bera málið undir landssímastjóra, en ég veit, að hann samþykkir þetta, þegar hann veit, að frá þessu heimili ganga öll erindi, er snerta sveitarmál, og þessi maður er trúnaðarmaður fyrir sveit sína og hefir nýlega verið settur í n., þar sem hann þarf oft að ná símasambandi suður til Rvíkur og víðar. Ég veit, að þetta mundi koma sér mjög vel fyrir hann, og vil ég eindregið mæla með því, að þessi brtt. yrði samþ., þó að ég játi, að það hefði verið æskilegra, að þetta hefði verið borið undir landssímastjóra.