10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2572 í B-deild Alþingistíðinda. (3414)

80. mál, eftirlit með opinberum rekstri

Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson) [óyfirl.]:

Hv. 8. landsk. og hv. þm. Snæf. hafa skilað nál. til 2. umr. En það, sem þeir færa fram móti frv., finnst mér ákaflega veigalítið. Þeir halda því fram, að þetta verði kostnaðarauki og aðeins bitlingar til gæðinga stj. Ég get ekki hugsað mér, hvernig það gæti orðið. Þegar kosningin fer fram með hlutfallskosningu í Sþ., hvernig ætti þá ríkisstj. að hafa áhrif á það, hvaða fulltrúa Sjálfstfl. og Bændafl. velja. Andstæðingar stj. koma alltaf að mönnum í ráðin. Það er skoðun okkar, að það sé nauðsynlegt að hafa nákvæmt eftirlit með rekstri ríkisstofnananna, en það er ekki hægt að ætlast til þess, að ráðh. geti annazt það nema að nokkru leyti, og er því vel viðeigandi, að það, sem hann getur ekki séð um sjálfur, sé falið sérstökum trúnaðarmönnum. Er það mjög í samræmi við það, sem tíðkast hjá samvinnufél. og öðrum hliðstæðum stofnunum þjóðfélagsins, að stærri ákvarðanir komi undir slík fulltrúaráð, sem sett eru til þess að fylgjast með rekstrinum, en hafa þó ekki úrslitavald, heldur leggja fram ráðgefandi till.

Hv. 8. landsk. sagði sjálfur, að kostnaður við stj. tveggja ríkisfyrirtækja — ríkisprentsmiðjunnar og landsmiðjunnnar — væri meiri en kostnaður við eftirlitsráðin. (GÞ: Eiga stjórnirnar að leggjast niður?). Já, það er ætlazt til þess; að vísu hefir ekki verið talað um í n. eftirlit útvarpsstjóra með viðtækjaverzluninni, en ég fyrir mitt leyti er því samþ., að það verði einnig lagt niður. Þá hefir verið ágreiningur um, hvort 400 kr. væri nóg þóknun fyrir að sitja í ráðunum. Það er að vísu ekki rétt, að það sé ákveðið að halda ekki fundi nema einu sinni í mánuði; það er aðeins lágmark. Má vel hafa fund einu sinni í viku, borið saman við kaup í mþn., þar sem menn hafa um 8—12 kr. á dag. Ég held, að hægt sé að afgr. málin á þessum tíma, ef þau eru eins vel undirbúin frá forstjórum stofnananna og venjulegt er við umfangsmikil fyrirtæki einstakra manna. T. d. er mjög einfalt að athuga við verzlanir innkaupsverð, útsöluverð, laun o. þ. h. Þessi gögn getur forstjórinn komið með og lagt fram til athugunar. Þessi mótmæli sjálfstæðismanna eru því á engum rökum reist, og ættu allir flokkar, sem telja sig fylgjandi lýðræði, að vera hlyntir slíku eftirliti, þar sem allir hafa jafna íhlutun, stjórnarfl. og stj.andstæðingar, er tryggir, að það sé síður misnotað. Annars hafa forstjórar stórra fyrirtækja ískyggilega mikið vald, ef þeir vilja misbeita því.