20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (3432)
150. mál, fiskimálanefnd
Ólafur Thors:
Ég hefi ekki látið neitt í ljós um það, hvort uggur minn og ótti stafi eingöngu af innanlandsástandi, eða því, hvort frv. þetta og ákvæði þess geti mætt mótspyrnu frá viðskiptaþjóðunum. Hæstv. ráðh. veit, að það getur brugðið til beggja vona í þeim efnum. Hinsvegar sé ég ekki ástæðu til þess að fara að gera þá hlið málsins að umræðuefni hér í hv. d. Ég tel réttara að tala um það við hæstv. ráðh. sjálfan sem þann mann, sem hér ræður mestu um, og mun ég gera það, að svo miklu leyti sem tilefni gefst til. Hitt get ég sagt hér og nú þegar, á hverju ég byggi það, sem hæstv. ráðh. telur ástæðulausan ótta, að sölusamlagið springi vegna ákvæða þessara laga. Rök mín eru þessi: Til þessa hafa fiskframleiðendur ekki átt annars úrkosti en halda saman um fisksölusamlagið, eða horfa fram á taumlausa samkeppni um sölu fiskjarins. En með frv. er opnuð sú leið, sem ég geri ráð fyrir, að margir vilji gjarnan aðhyllast, að einstakir menn eða fél. geti orðið útflytjendur fiskjar, lögverndaðir og sérréttinda aðnjótandi. Með þessu er ýtt undir þær óskir, sem vera má, að vaki hjá einstöku kaupsýslumönnum, að reka sjálfir verzlunina með fiskinn. Munu þeir vinna gegn framhaldandi starfsemi samlagsins, rægja undan því fylgi og leggja það að velli. En fari svo, er ég mjög hræddur um, að fyrr en vari taki við hrein einkasala á þessari vöru. Get ég og mun síðar færa að því sterk rök. Það er sjálfsagt rétt, að samlagið hafi haft einhverja örðugleika vegna þess hve menn eru seinir til að ákveða sig um þátttöku. En það, að samlagið fái ekki að vita nú þegar um þátttökuna næsta ár, skiptir ekki höfuðmáli. Eins og nú er, kallar ekkert sérstakt að um það, þar sem ennþá eru fleiri mánuðir til stefnu þangað til sala hefst á hinni nýju framleiðslu. Af þeim ástæðum er því gersamlega óþarft að skipa þessum málum með lagafyrirmælum nú á þessu þingi, og mundi með öllu skaðlaust að bíða til febrúarþingsins og sjá, hvað útvegsmenn sjálfir hafast að. Er ég þess fullviss, að sé ekki verið að hampa fríðindum og sérréttindum framan í þá, sem samtökin vilja rjúfa, munu framleiðendur halda saman svo sem verið hefir.
Enda þótt hæstv. ráðh. gæfi að nokkru leyti tilefni til að hefja á ný umr. um fiskiráðsfrv. mitt, mun ég ekki gera það. Hann gat rétt til, hverju ég myndi svara honum. Ég er sannfærður um, að þær till., sem ég ber þar fram. myndu koma að fullum notum til lausnar þessu vandamáli, svo fremi þær fengju fram að ganga, því að ég tel enga ástæðu til að grípa fram í fyrir framleiðendum með valdboðum, þegar þess gerist ekki þörf.