18.12.1934
Sameinað þing: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (345)
1. mál, fjárlög 1935
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Þær brtt., sem ég flutti við 2. umr. þessa máls, voru allar felldar. Þær fundu ekki náð fyrir augum þeirra 25 manna, sem allir stóðu fastir saman í járnum við atkvgr. Ég geri raunar ráð fyrir, að svo kunni að fara enn, en ég vil þó reyna að freista þess á ný að bera fram brtt.
Fyrsta brtt., sem ég ber fram, er um það, að fjárframlag úr ríkissjóði til vegar yfir Siglufjarðarskarð verði hækkað úr 15000 kr. upp í 25000 kr. Eins og ég tók fram við 2. umr., þá hefir það verið ákveðið af viðkomandi stjórnarvöldum, að þessi vegur skyldi nú lagður, þrátt fyrir það, að upplýst hefir verið, að hann muni kosta um 300 þús. kr. Það er vitanlegt, að sú upphæð, sem nú er veitt til þessa vegar í fjárl., 15 þús. kr., hrekkur mjög skammt til þess að koma þessum vegi áleiðis. En mér skilst, að Alþ. geti að vissu leyti staðið sig vel við að veita ríflegri upphæð til þessa vegar heldur en nú er áætlað, sökum þess að Siglfirðingar sjálfir munu vera búnir að gefa til hans um 60 þús. kr., í dagsverkum, og það sýnir, hve mikinn áhuga þeir hafa fyrir lagningu hans. Siglufjörður mun vera sá kaupstaður á landinu, sem hefir erfiðastar samgöngur, þannig að það er í raun og veru ekki hægt að komast þangað nema sjóleiðis, og er honum þó vitanlega mjög nauðsynlegt að komast í beint vegarsamband við Skagafjörð. Eins og vitanlegt er, þá er kaupstaðurinn allstór orðinn og mjög mannmargt þar að sumri til, en inn af kaupstaðnum er mjög lítið ræktað land, og er því erfitt um alla aðdrætti af landbúnaðarafurðum, og mjólk er t. d. flutt þangað að nokkru leyti frá Akureyri. En ef Siglufjörður kæmist aftur á móti í beint vegarsamband við Skagafjörð, þá er örskammt þangað vestur, og það mundi greiða fyrir markaði á þeim framleiðsluvörum, sem Skagfirðingar gætu látið í té. Ég skil því ekkert í hv. 2. þm. Skagf. að greiða atkv. móti þeirri brtt., sem ég bar fram við 2. umr. um það, að veita 55 þús. kr. til þessa vegar. Mér skilst, að hann beri ekki hagsmuni sinna kjósenda nægilega fyrir brjósti, ef hann greiðir atkv. gegn þessu litla fjárframlagi. Það er vitanlegt, að í mörg horn er að líta, en ég sé á öðrum upphæðum, sem veittar eru til vega víðsvegar á landinu, að þessi upphæð er langsamlega lægst, samanborið við hinn mikla kostnað, sem er á lagningu þessa vegar. Og að mínu áliti hefði ekkert verið við því að segja út af fyrir sig, þó Alþ. hefði tekið þá afstöðu að neita um nokkurt fé til þessa vegar vegna þess hve dýr hann er. En úr því að þegar er búið að leggja fram nokkurt fé til þessa vegar, þá virðist mér heppilegra að leggja fram ríflegri upphæð strax til þess að flýta fyrir lagningunni. Ég veit ekki betur en að það hafi verið veittar 10—20 þús. kr. til þessa vegar í vor, og það virðist því undarlegt, að í fjárl. skuli ekki vera hærri upphæð en aðeins 15 þús. kr., auk þess sem Siglfirðingar eiga sannarlega að njóta þess, að þeir hafa sjálfir lagt fram fjórfalda upphæð við það, sem hér er gert ráð fyrir.
Við 2. umr. fjárl. bar ég fram brtt. í þá átt, að veittar væru 2200 kr. til Skáksambands Íslands. Það hefir verið þannig undanfarin ár, að Alþ. hefir veitt Skáksambandinu frá 1—2 þús. kr. styrk, og er mér kunnugt um, að þm. hafa verið þessu yfirleitt mjög fylgjandi úr öllum flokkum. Ég er þess vegna sannfærður um, að það er ekki út af fyrir sig illvilji gagnvart Skáksambandinu, sem hefir ráðið því, að þessi styrkur var felldur, heldur aðeins flokkssamtök, sem gerð voru hjá stjórnarflokkunum um að fella allar till. frá andstæðingum þeirra. — Skáksambandið hefir beitt sér fyrir því, eins og vitanlegt er, að efla skáklistina innanlands og að senda skákmenn á erlend skákmót. Það hefir sent menn á skákmót í Oslo, Gautaborg og 2—3 sinnum í Kaupmannahöfn, og allar þessar ferðir hafa orðið íslenzkum skákmönnum fremur til sóma. Ég skal líka geta þess, að það hefir farið fram skákkappmót símleiðis milli Íslands og Noregs, og Íslendingar báru þar hærri hlut. Einnig hefir farið fram símtaflskák milli Íslands og Danmerkur, og báru Íslendingar þar líka hærri hlut, en í símtaflskák við Svíþjóð hafa þeir beðið lægri hlut. Loks má geta þess, að Íslendingar hafa tvisvar sinnum teflt pr. radio við Oslo og í bæði skiptin hefir orðið jafntefli. Þessar kappskákir sýna, að Ísland stendur jafnfætis hinum Norðurlandaþjóðunum að þessu leyti til, en ég hugsa, að það sé vandfundin sú íþrótt, sem Íslendingar geta mætt erlendum íþróttamönnum svo jafnfætis sem hér hefir orðið raun á. Það má þó sízt af öllu gleyma því, að Íslendingar hafa tvisvar sinnum sent 4 skákmenn á alheimsskákmótið F. I. D. E., sem kallað er. Þeim kappskákum er þannig hagað, að löndin keppa hvert við annað á þann veg, að samtímis keppa 4 menn frá hverju landi. Nú er það vitanlegt, að Íslendingar hafa út af fyrir sig ekki mörgum mjög góðum skákmönnum á að skipa, en hafa þó verið svo heppnir í bæði þessi skipti að geta fengið sína beztu skákmenn til þessarar farar, og hafa Íslendingar þó ekki verið neðstir, eins og við mátti búast. heldur hafa í bæði skiptin 3 lönd verið fyrir neðan þá. Og er það út af fyrir sig mjög góður árangur, þar sem á þessum skákmótum mæta beztu skákmenn heimsins. Þess er líka getandi, að nokkrar af þeim skákum, sem tefldar hafa verið á þessum alheimsmótum af Íslendingum, hafa vakið svo mikla eftirtekt, að þær hafa verið birtar svo að segja í öllum skákblöðum heimsins. Ég hefi hér fyrir framan mig bók, sem gefin var út 1933 og er um síðasta alheimsskákmótið, sem haldið var í Folkstone í Englandi. Þessi bók hefir inni að halda beztu skákirnar, sem tefldar voru á þessu móti. Það eru fáar skákir, sem teknar eru upp í þessa bók af öllum þeim skákum, sem þarna voru tefldar, en ég vil vekja athygli á því, að þar eru teknar 11 skákir eftir alheimsmeistarann Aljechin, og þar næst koma svo Eggert Gilfer og einn Ameríkani, með 10 skákir hvor, annar Ameríkani með 9 skákir og svo Íslendingurinn Ásmundur Ásgeirsson með 8 skákir. Á þessu má sjá, að mikið hefir þótt koma til þessara tveggja Íslendinga. Þessi bók er gefin út í mjög stóru upplagi, og öll skáksambönd heimsins kaupa hana fyrir sín félög. Og ef það er nokkurs virði, að Íslendingar og þeirra listir séu auglýstar, þá tel ég, að það sé ekki hægt að finna betri auglýsingu fyrir listfengi þeirra að þessu leyti til heldur en einmitt þessa bók. Þá vil ég geta þess, að Íslendingum hefir nú verið boðið að taka þátt í alheimsskákmótínu, sem haldið verður í Warschau 1935, með þeim kjörum, að þeir fái fría ferð frá Hamborg til Warschau og frítt uppihald meðan þeir dveljast þar og síðan fría ferð aftur til Hamborgar. Og nú fer Skáksamband Íslands þess á leit við hið háa Alþ., að það veiti þennan litla styrk, 1500 kr., til þess að hægt sé að senda enn á ný 4 skákmenn á alheimsskákmótið. Ég er sannfærður um, að það er ekki síður vel varið þeim peningum, sem til þess færu, heldur en margs annars, sem styrkt er samkv. þessu frv., og vildi ég því mega vænta, að Alþ. veiti þennan litla styrk.
Þá ber ég ásamt hv. þm. V.-Ísf. og hv. þm. Snæf. fram till. um það, að Árna Pálssyni prófessor verði veittar 1200 kr. til þess að ljúka við samningu sagnarits um kirkjusögu Íslands á lýðveldistímanum. Hann hélt fyrirlestra um kirkjusögu Íslands í háskólanum veturinn 1932—33, og var þeim fyrirlestrum útvarpað og þótti mikið til þeirra koma. Þá komst hann til ársins 1200, en í því riti, sem hann hefir nú í huga að gefa út, hyggst hann að komast til ársins 1300. Þetta rif mundi, eftir því sem hann hefir sjálfur tjáð mér, vera fyrir löngu fullgert og útgefið, ef fjárhagsástæður hefðu leyft. Eins og hv. þm. er kunnugt, þá hefir hann mjög lítil laun, og hinsvegar erfiðar kringumstæður þar sem hann hefir fyrir stóru heimili að sjá. Ég tel því, að þingið ætti að styrkja þennan gáfaða og lærða mann til þess að gefa út þetta rit, ekki sízt þar sem það er vitað, að t. d. prófessor Sigurður Nordal hefir mörg undanfarin ár fengið 2 þús. kr. á ári til ritstarfa, auk þess sem hann mun þó hafa fengið sérstaka þóknun fyrir ýmislegt af því, sem hann annars hefir ritað. Það má enginn skilja þessi orð mín þannig, að ég sé að telja þennan litla styrk til Sigurðar Nordals eftir, en mér fyndist samræmisins vegna ekki sanngjarnt, ef þessi styrkur til Árna Pálssonar yrði felldur.
Loks ber ég fram till. um það, að Frímanni Benediktssyni fyrrum hreppstjóra í Grímsey verði veittar 250 kr. úr ríkissjóði. Frímann Benediktsson er aldraður maður, um sjötugt, og hefir verið hreppstjóri í Grímsey í ein 17 ár. Hann sótti nú til fjvn. um 200—300 kr. til þess að leita læknishjálpar hér í Rvík. Þessari umsókn fylgdi vottorð læknis á Akureyri, þar sem skýrt er frá því, að þessum gamla manni sé nauðsynlegt að fara til Rvíkur og leita læknishjálpar þar, þar sem hann geti ekki fengið hana hjá læknum á Akureyri. Hann er mjög fátækur maður og hefir þess vegna ekki fjárhagslega getu til þess að leita sér læknishjálpar hér í Rvík af eigin rammleik. Það virðist því ekki nema sanngjarnt, að þingið launi þessum gamla manni vel unnið 17 ára hreppstjórastarf, sem er illa launað, með því að veita honum þennan lítilfjörlega styrk til þess að leita sér nauðsynlegrar læknishjálpar. Ég vona þess vegna, að þessi litla till. mín verði samþ.