22.11.1934
Efri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2588 í B-deild Alþingistíðinda. (3493)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þó að á frv. þessu standi, að það sé flutt af meiri hl. allshn., má telja, að það sé frá henni allri, því að hún er samþykk flutningi málsins. En á þessu stendur svo, að ekki náðist til allra nm., þegar flutningur þess var ákveðinn. — Ég þarf ekki að láta mörg orð fylgja frv. að þessu sinni. Það er flutt að tilhlutun dómsmrh., en nm. áskilja sér rétt til að flytja brtt., ef þeim virðist þess þörf. N. hefir enn ekki athugað frv. gaumgæfilega, en mun taka það til athugunar milli l. og 2. umr. N. er öll sammála um, að lög um þetta efni séu nauðsynleg og réttmæt, eigi aðeins vegna ríkisins, heldur og vegna embættismannanna sjálfra. Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð að sinni, aðeins lýsa yfir því, að n. mun taka frv. til athugunar fyrir 2. umr.