08.12.1934
Efri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2608 í B-deild Alþingistíðinda. (3515)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Mér skildist það, þegar þetta mál var til 1. umr. hér, að hæstv. forsrh. féllist á það, að það mundi þurfa að sjá þessum opinberu starfsmönnum, sem yrðu að fara frá embættum, ef þetta frv. yrði að 1., fyrir einhverskonar eftirlaunum eða einhverri uppbót, fram yfir þann lífeyri, sem starfsmenn ríkisins nú fá. Mér finnst það vera einn meginókosturinn við þetta frv., að ekkert er fyrir þessu séð. Það þýðir ekkert að tala um há laun eða þesskonar í þessu sambandi, því að allir þm. vita, að þeir fara með rangt mál og eru aðeins með kjósendadekur, þegar þeir tala um há laun hjá embættismönnum ríkisins. Því að þar eru engin há laun til, ekkert annað en vesælustu þurftarlaun, sem menn komast ekki af með, og verða því að strita utan embætta sinna til þess að geta séð fyrir sér og sínum. Um þá menn er ekki hægt að setja slík ákvæði sem þessi, öðruvísi en kasta mönnum burt með fullkominni harðýðgi.

Tilsvarandi ákvæði þessum hafa gilt hér á landi, sem sé um hæstaréttardómarana. Það er hægt að láta þá fara frá 63 ára gamla, en þar er sá mikli munur á, að þeir missa einskis við að verða að fara frá, því þeir fá full laun eftir sem áður. Og það er þess vegna vitaskuld allt annað en það, sem hér er rætt um.

Ákvæðin um hæstaréttardómarana ern aðeins sett af því, að þessir menn eru óafsetjanlegir annars. Hinsvegar getur svo farið, að þeir sakir elli geti ekki gegnt starfi sínu, og þá verður ríkið að hafa einhver ráð til þess að skipa þessar ábyrgðarríku stöður mönnum, sem áreiðanlega eru í fullu andlegu fjöri. Það er gert með því að hafa þetta ákvæði í l., og þeim, sem frá verða að fara, eru tryggð full laun. Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, eru engin ákvæði sett um það, að sjá fyrir þessum mönnum, sem þannig á að láta fara frá. Mjög margir af þeim mönnum, sem falla undir ákvæði þessara l., halda nokkurn veginn óskertum starfskröftum, eins og yfirleitt er um menn, þó að þeir séu orðnir 65 ára. Mér þótti ákaflega eftirtektarvert að sjá skrána, sem birt var í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum, yfir þá embættismenn, sem náð hafa 65 ára aldurshámarki. (IngP: Og þar á meðal dána hreppstjóra?). Bæði hreppstjóra og aðra. En annars hafði allshn. gengið inn á það, að láta gera skýrslu yfir þessa menn, sem hér ræðir um, en það hefir hún ekki gert. Skýrsla Morgunblaðsins er því sú eina afsökun, sem n. hefir fyrir því, að skjóta sér undan þeirri sjálfsögðu skyldu sinni. Annars nefndi ég skrána ekki sérstaklega til þess að sanna, hversu áreiðanleg hún væri, heldur vegna þess, að allur fjöldinn af þeim mönnum, sem ég þekkti á þessari skrá, heldur fullu starfsþreki. Praktískt talað má ef til vill segja, að menn hafi ekki fullan starfsþrótt, þegar þeir eru komnir á þennan aldur, en sé heldur farið að förla, en a. m. k. þeir menn, sem ég þekkti á þessari skrá, hafa svo mikla starfskrafta ennþá, að engum, sem þekkir þá, dettur í hug, að þeir geti ekki rækt sín störf fullkomlega vel.

Mér finnst, að ef á að halda því til streitu að hafa aldurshámarkið 65 ár, þá eigi að vera í frv. ákvæði um það, að þessir menn hafi full laun til 70 ára aldurs. Þetta væri alltaf nokkur hemill á hvaða stj. sem væri til þess að láta menn ekki að óþörfu fara frá fyrr en þeir eru sjötugir. Þá er möguleiki til þess að láta þá menn fara frá embættum sínum eftir að þeir eru orðnir 65 ára gamlir, sem sökum ellihrumleika þættu ófærir til þess að gegna þeim. En þeir ættu þá að halda fullum launum til 70 ára aldurs.

Ég þarf í rauninni ekki að minnast á það, sem hv. 1. þm. Skagf. minntist á í þessu sambandi, að það er náttúrlega alveg einstakt að setja það í l., að menn skuli fara frá embættum sínum 1. jan. 1935 samkv. 1., sem samþ. eru í kringum 14. des. árið áður. Þetta eru menn, sem enga hugmynd hafa haft um annað en að þeir sætu í náðum í sínum stöðum, en svo kemur allt í einu ákvæði um það, að þeir eigi að fara frá eftir nokkra daga. Það hlýtur að verða gert, þó að allshn. hafi ekki viljað sinna því, að sett verði ákvæði til bráðabirgða um þessa menn.

Sannast að segja bjóst ég við því, eftir því sem orð féllu við 2. umr. þessa máls, að talsvert af brtt. mundi koma fram við þessa umr. Þetta hefir brugðizt hrapalega, því að hér hefir aðeins ein brtt. komið fram, sem erfitt er þó að vita, hvað átt er við með. Ég býst við, að skýrsla Morgunblaðsins hafi komið henni af stað. N. hefir farið að sjá, að í hópi þeirra manna, sem átti að víkja frá embættum, væru ýmsir menn, sem vel mundu geta gegnt störfum sínum, þó að þeir væru komnir á þennan aldur, eins og t. d. maðurinn í lyftunni hjá útvarpinu. Ég býst við, að hann mundi falla undir það, sem kallað er minniháttar sýslunarmenn í brtt. meiri hl. allshn. Þetta er mjög óákveðið, og það nær ekki nokkurri átt, að í h, sem varða menn svona miklu, séu a. m. k. ekki ákvæði um það, hvaða menn það yrðu, sem heyrðu undir l. En ef brtt. er samþ., þá er ekki hægt að sjá það.

Mér hefði fundizt það heppilegast, ef forseti hefði viljað taka málið út af dagskrá, til þess að við, sem ekki erum í n., úr því að n. hefir ekki viljað verða við óskum okkar um að endurbæta frv., fáum tækifæri til þess að koma fram með brtt. Ég mundi bera fram brtt. um það, að embættismennirnir héldu fullum launum til 70 ára aldurs, þó að þeir yrðu að hætta störfum á aldrinum frá 63 til 70 ára. Ég get auðvitað borið fram skrifl. brtt. um þetta. Mér finnst það óhjákvæmilegt, að slík till. komi fram. Það ætti einmitt að vera einhver hemill á stj. um það, að láta menn ekki fara frá embættum fyrr en þeir eru 70 ára, eins og hæstv. forsrh. gekk inn á við 1. umr. málsins, að það þyrfti ekki að vera regla, enda þótt l. væru orðuð þannig, að láta menn fara frá 65 ára gamla.