19.12.1934
Sameinað þing: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (354)

1. mál, fjárlög 1935

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Ég á hér fáar og smáar brtt. við fjárl. að þessu sinni, sem ég ætla að gera nokkra grein fyrir.

Fyrsta brtt. er á þskj. 815. Hún er viðvíkjandi styrk, sem veittur er til flóahátaferða. Það, sem er farið fram á, er, að styrkur til flóabátaferða verði hækkaður um 3200 kr. og að þessi hækkun skiptist á milli Hvalfjarðarbátsins og Akranessbátsins „Fagraness“. Ég geri ráð fyrir í minni till., að styrkurinn til Hvalfjarðarbátsins, sem í till. samgmn. er 1 þús. kr. verði hækkaður upp í 1200 kr., og að veittar verði 3 þús. kr. til Akranessbátsins „Fagraness“. Það hefir nú í mörg ár verið veittur nokkur styrkur, þetta frá 1000 og upp í 1500 kr. á ári, til Hvalfjarðarbátsins. Með þessum bát er flutt öll þungavara bæði á Hvalfjarðarströnd og í Svínadalinn og nærliggjandi hreppa. Auk þess hefir báturinn flutt mjólk til Rvíkur af þessu svæði. Síðan mjólkurflutningur var tekinn upp á þessu svæði, hefir ferðunum fjölgað mikið frá því, sem áður var, því að vitanlega er ekki hægt að koma við mjólkurflutningi nema því aðeins, að nokkuð tíðar ferðir séu. Að öðrum kosti er útilokað að koma mjólk á markaðinn hér í Rvík af þessu svæði. Nú er það svo, að ekki eru horfur á, að takist samvinna um þennan bát fyrir næsta ár með aðeins 1000 kr. styrk. Hinsvegar eru nokkrar líkur til þess, að takast muni að koma á samningum um þessar bátsferðir í Hvalfjörðinn, ef styrkurinn er hækkaður upp í 1200 kr., og er hann þó 300 kr. minni heldur en hann hefir verið á stundum, og þó einkum síðan mjólkurflutningarnir voru teknir upp.

Ég þarf ekki að lýsa því, hversu mikils virði það er bændum, eins og nú er erfitt í ári og þröngt fyrir dyrum um afurðasöluna og lítið upp úr henni að hafa, að geta haldið áfram að selja mjólk til Rvíkur og þar með að fá tækifæri til þess að njóta góðs af þeirri miklu ræktun, sem gerð hefir verið þar á undanförnum árum eins og víða annarsstaðar, sem bændur vitanlega allmargir hafa hleypt sér í skuldir fyrir, er þeir eiga erfitt með að standa straum af, nema hafa sæmilega aðstöðu með afurðasölu. En stór liður í því er vitanlega mjólkursalan til Rvíkur. Það veltur því allmikið á því fyrir bændur á þessu svæði, að þingið vildi nú veita þessa styrkhækkun, sem aðeins er herzlumunurinn til þess að þeir geti þá komizt að viðunandi samningum um þessar bátsferðir.

Um Akranessbátinn er það að segja, að bændur úr hreppunum upp frá Akranesi hafa flutt sína mjólk á markaðinn í Rvík með honum nú um nokkur undanfarin ár. Þessum beinu ferðum milli Akraness og Rvíkur hefir verið haldið uppi með mótorbát af venjulegri fiskibátastærð þangað til á síðastl. vetri, að hafizt var handa með það á Akranesi að bæta mjög úr þessum samgöngum með því að byggja 60 smálesta bát, sérstaklega með það fyrir augum að hafa þessar ferðir á hendi. Þessi bátur kom til landsins á síðastl. sumri og tók strax við þessum ferðum milli Rvíkur og Akraness og heldur þeim nú áfram. Þetta er ágætisbátur í alla staði, og er útbúinn með svo góðum og miklum þægindum til fólksflutninga, sem frekast er hægt að koma við í ekki stærra skipi, auk þess sem vel er séð fyrir rúmi til vöruflutninga, þar á meðal mjólkurflutninga, sem vitanlega verður stærsti liðurinn í flutningastarfsemi bátsins, því að það er allstórt svæði, sem báturinn flytur mjólk af. Þessi bátur hefir fastar áætlunarferðir í vetur þrisvar í viku milli Akraness og Rvíkur. Það kemur ekki að notum við mjólkurflutningana nema svo tíðar ferðir séu. En hinsvegar geri ég ráð fyrir því, að með vorinu og næsta sumar fari þessi bátur daglega á milli Rvíkur og Akraness, því að á sumrin eru mikil vandkvæði á að koma mjólkinni óskemmdri á markaðinn, nema því aðeins, að hægt sé að koma henni daglega þangað. Og það er sérstaklega með það fyrir augum, sem farið er fram á að fá nokkurn styrk til þessara ferða. Hefir Alþingi verið sent erindi um þetta, þar sem farið er fram á 5000 kr. styrk. Ég hefi hér í minni brtt. ekki farið fram á nema 3000 kr., og það er vitanlega mjög skorið við neglur og hið allra minnsta, sem hægt er að fara fram á til svo tíðra ferða og mikilla flutninga, sem hér er um að ræða.

Samgmn. hefir ekki tekið upp neina fjárveitingu til þessa báts, og hygg ég, að það sé eina styrkbeiðnin til bátaferða um flóa og fjörðu, sem n. hefir synjað. Verð ég að láta í ljós undrun mína yfir því, þar sem hér liggur á bak við svo mikið hagsmunaatriði fyrir þá, sem hlut eiga að máli, og þar sem hv. samgmn. virðist hafa tekið með allmiklum skilningi á öðrum slíkum beiðnum, að hún skuli algerlega synja mönnum á þessu svæði um styrk til sinna samgangna. Það má geta þess að vísu, að Borgarnesskipið hefir viðkomur á Akranesi, og náttúrlega fær það nokkurn styrk úr ríkissjóði. En ég vil taka það fram, ef það skyldi hafa átt nokkurn þátt í því, að þessa styrks var synjað, að samgönguþörf Akurnesinga væri e. t. v. leyst með Borgarnesferðunum, að reynslan hefir verið og mun verða sú, að ómögulegt er að samræma t. d. mjólkurflutninga Akurnesinga við Borgarnesferðirnar. Mjólkin þarf að vera komin hingað til Rvíkur snemma dags, svona kl. 9—10 f. h., en Borgarnesskipið kemur venjulega ofan að síðla dags. Auk þess verður samgönguþörfin milli Akraness og Rvíkur að öllu leyti bezt leyst með skipi, sem á heima á Akranesi. Ég vil vænta þess, að hv. Alþingi verði við þessari þörfu og hóflegu till. minni, að hækka styrkinn til flóabáta um 3200 kr. og skipta honum á þann hátt, sem till. greinir.

Næsta till., sem ég á hér, er um það, að séra Sigurjóni Guðjónssyni presti á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd verði veittur 1000 kr. utanfararstyrkur til þess að kynna sér kirkjumál og bókmenntir á Norðurlöndum. Eins og allmörgum mun kunnugt, er hann mikill bókmenntamaður. Hann er skáld gott og hefir mjög lagt sig eftir bókmenntum, bæði þeim, er að kirkjumálum lúta, og öðrum bókmenntum. Þess vegna álít ég, að það gæti orðið allmikill gróði fyrir andlegt líf í landinu, ef þessum áhugasama, gáfaða og duglega manni væri gefið tækifæri til þess að kynnast nýjustu framförum á þessu sviði erlendis.

Auk þess er séra Sigurjón prestur á þeim stað, sem mjög er tengdur minningu hins ódauðlega snillings, Hallgríms Péturssonar. Nú hefir verið hafin fjársöfnun með einhverjum þeim bezta árangri, sem þekkist hér á landi, til þess að reisa. Hallgrími Péturssyni óbrothættan minnisvarða, sem á að vera mikil og vegleg kirkja í Saurbæ. Því máli er nú svo vel á veg komið, að væntanlega verður hægt að hefjast handa á næsta sumri. Því ætti það að vera metnaðaratriði að gefa þeim presti, sem er og verður væntanlega um langt skeið þjónandi í Saurbæ, tækifæri til að njóta hæfileika sinna sem bezt, tækifæri til að glæða anda sinn og auka þá víðsýni, sem fæst við það að kynnast andlegu lífi erlendra þjóða. Ætla ég, að þar með tæki Alþingi sinn þátt í því að byggja upp minningu Hallgríms Péturssonar á þessum stað, Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Ég vænti því, að hv. Alþingi ljái þessari till. samþ. sitt.

Þriðja till., sem ég flyt hér, er ósköp lítil. Þar er farið fram á, að Kvenfélagasamband Mýra- og Borgarfjarðarsýslu fái 400 kr. styrk í stað 300 kr. Með því er þetta kvenfélagasamband sett á bekk með öðrum kvenfélagasamböndum landsins, sem ég ætla, að öll fái 400 kr. styrk hvert um sig. Þessi sambönd hafa unnið þarft verk, m. a. með því að glæða áhuga á heimilisiðnaði víðsvegar úti um byggðir landsins, og er þess vegna því litla fé, sem ríkissjóður veitir til að stuðla að þessari starfsemi, ákaflega vel varið og vel þegið af þeim, sem hlut eiga að máli. Ég vænti því, að þessi litla till. mín verði samþ., og þessu sambandi þar með gert álíka til og öðrum samskonar samböndum hvað snertir styrk úr ríkissjóði.

Þá er ég ekki einn um fleiri brtt., en ég skal aðeins geta þess, að við erum hér 12 saman um eina brtt. á sama þskj., sem fer fram á 150 þús. kr. framlag til kaupa á húseign og lóðaréttindum templara hér í Rvík og til að styrkja starfsemi þeirra. Samkv. mati mun verðmæti eignarinnar nema a. m. k. helmingi þessarar upphæðar. Ég ætla ekki að fara að mæla fyrir þessari till., það mun hv. 1. flm., þm. S.-Þ., gera, er hann talar öðru sinni við þessa umr. Ég vil einungis vekja athygli á, að nú stöndum við á þeim vegamótum, að vert er að gefa því sérstakan gaum að efla og styrkja bindindisstarfsemina í landinu. Og það leiðir af sjálfu sér, að hér í höfuðstað landsins verður ávallt höfuðsetur bindindisstarfseminnar, og því ríður mikið á að hlúa sem bezt að henni hér, ekki einungis vegna bindindisstarfseminnar í Rvík, heldur vegna bindindisstarfseminnar um allt land. Mér finnst þau efni standa til, að Alþingi ætti að finna allríka skyldu hvíla á herðum sér til þess að búa sem bezt að bindindisstarfseminni í landinu, því eins og nú er komið hygg ég, að það sé mest undir henni komið, hvernig okkur tekst að standa af okkur það fyrirsjáanlega þjóðarböl, sem af því leiðir, að veitt er nýjum vínstraumum inn í landið. Vænti ég því, að till. þessi hljóti góðan byr þegar gengið verður til atkv.

Þá vil ég með nokkrum orðum gera að umtalsefni fjárveitinguna til nýrra vita, og þá sérstaklega það atriði í nál. minni hl. fjvn., þar sem n. leggur til, að varið verði 2500 kr. til þess að byggja innsiglingarvita við Krossvík á Akranesi. Eins og kunnugt er, hefir nú hafnarbótum á Akranesi skilað allmikið áfram. Á síðastl. sumri var byggð viðbót við hafnargarðinn, sem bætir aðstöðuna við alla skipaafgreiðslu og skapar auk þess möguleika til þess að flytja hluta af bátaflotanum yfir á Krossvík, en hingað til hefir hann allur orðið að hafast við á mjög þröngri legu vestanvert við kauptúnið, svokölluðu Lambhússundi, og hefir bátaútvegnum stafað af því mikil hætta. En til þess hægt sé að njóta þessara hagsmuna, sem af hinum nýju mannvirkjum leiðir, verður að koma þarna innsiglingarviti, án þess er ekki hægt að flytja bátaflotann yfir á Krossvík. Bygging þessa vita mun kosta 7500 kr., og í nál. minni hl. er gert ráð fyrir, að til innsiglingavita á þessum stað og öðrum, þar sem hafnir er verið að gera, verði veittur sami styrkur og til hafnargerðanna sjálfra, eða 2/5 kostnaðar. Verða svo vitanlega hafnirnar sjálfar að sjá fyrir rekstri vitanna. Það vantar að vísu 500 kr. á að upphæð sú, sem tiltekin er í nál., nemi 2/5 kostnaðar, en vænta má, að það verði bætt upp síðar.

Ég vænti, að hæstv. stj., sem hefir úthlutun þessa fjár með höndum, taki fullt tillit til þess, sem þarna stendur, að því er snertir framlag til þessa innsiglingarvita, og greiði styrkinn á næsta ári, því nú er einmitt verið að hefja undirbúning byggingarinnar, og vitinn verður að vera kominn upp snemma í janúarmánuði, því eftir áramótin hefst vetrarvertíðin á Akranesi.

Þá vil ég minnast örfáum orðum á styrk þann, sem ætlaður er til byggingar nýrra sundlauga og sundskjla, en sá liður er 5000 kr. Eins og venja er til á ríkisstj. að annast skiptingu þessa styrks. Ég vil geta þess í því sambandi, að fyrir fjvn. lá beiðni frá íþróttafélögunum á Akranesi, sem eru búin að koma sér upp steyptu sundskýli, veglegu húsi, sem mun hafa kostað nokkuð á 3. þús. kr., þar sem þau fara fram á að fá greiddar 1200 kr. upp í þann kostnað. Í fjárlagafrv. ætla ég að sé komizt svo að orði, að styrknum skuli varið til nýrra sundlauga og sundskýla. En svo hagar til á Akranesi, að þar eru hvergi í nánd heitar laugar. Aðeins á einum stað verður vart jarðhita utan Skarðsheiðar, en vatnsmagnið og hitinn er þar svo lítill, að engin tök eru á að byggja þar sundlaug. Getur sundmennt á þessu svæði því ekki byggzt á öðru en því, að menn læri að synda í sjónum. Nú hagar mjög vel til þarna innan við Akranes, þar sem sundskýlið hefir verið reist. Þar er svokallaður Langisandur, útfiri mikið og grynningar, en brekkur háar fyrir ofan, sem taka af norðan og vestan næðingana, svo skjóllegt er þegar vindur blæs af þeirri átt, og aðstaðan til þess að iðka sund í sjó yfirleitt hin bezta.

Nú er meining íþróttafélaganna, sem sýnt hafa mikinn dugnað og áhuga, bæði með því að koma upp sundskýlinu og gera stóran leikvöll með ærnum kostnaði upp af því, að þegar sá draumur rætist, sem nú ætti ekki að vera langt að bíða, að rafmagni frá Soginu verði veitt um Borgarfjörð, þá verði byggð þarna þró, sem dælt sé í sjó og hituð með rafmagni. Aðstaðan er sæmileg til þess rétt hjá sundskýlinu.

Nú leiddi ég það í tal við fjvn., hvort nauðsynlegt væri að breyta ákvæðunum fyrir þessari styrkveitingu til þess að hægt væri að styrkja sundskýlið þarna, þó ennþá væri ekki komin upp í sambandi við það heit laug. Var n. öll sammála um, að það væri óþarft, með tilliti til kringumstæðnanna á þessum stað, og sjálfsagt væri, að þessi styrkbeiðni gengi alveg til jafns við aðrar styrkbeiðnir, þaðan sem um heitar laugar væri að ræða.

Ég vildi taka þetta fram, og vænti, að þegar hæstv. stj. fer að úthluta þessu fé, veiti hún íþróttafélögunum á Akranesi umbeðinn styrk. Það er vitanlega mikilsvert fyrir þau að fá styrkinn greiddan út á næsta ári, því þau hafa lagt þarna í mikinn kostnað á einu ári við byggingu sundskýlisins og hins stóra leikvallar, sem þau hafa komið upp þar rétt við.

Í sambandi við það, sem ég sagði áðan um styrk þann, sem farið er fram á til bindindisstarfseminnar í landinu til þess að greiða fyrir húsbyggingarmáli bindindisfélaganna hér í Rvík, vil ég ennfremur geta um brtt. frá hv. 3. þm. Reykv. um að hækka styrkinn, sem veittur er í fjárl. til hinnar eiginlegu útbreiðslustarfsemi bindindisfélaganna, úr 15 þús. kr. upp í 20 þús. kr. Ég vona, að hv. Alþingi sjái sanngirnina í þessari kröfu og finni nauðsynina, sem á því er að greiða götu bindindisstarfseminnar í landinu með því að samþ. þessa hækkun.

Þá held ég, að það sé ekki fleira, sem ég þarf að minnast á í þessu sambandi. Hv. 1. þm. Skagf. hefir talað fyrir brtt. minni hl. fjvn. og ennfremur talað nokkuð um heildarviðhorf þessara mála, og hefi ég þar engu við að bæta. Ég vil aðeins að lokum benda á, að hv. meiri hl. fjvn. hefir að nokkru leyti orðið við beiðni, sem fyrir n. lá um styrk til Knattspyrnufélags Rvíkur. Þetta félag réðist í það fyrir nokkrum árum að kaupa dýrt hús hér í bænum, sem var nauðsynlegt fyrir þá miklu íþróttastarfsemi, sem það hefir með höndum. Til þess að létta nokkuð þá þungu byrði, sem á félaginu hvílir vegna þessara kaupa, er nú lagt til, að því sé veittur 2500 kr. styrkur úr ríkissjóði, gegn því að Rvíkurbær leggi fram annað eins á móti, svo félagið fái alls 5000 kr. styrk. En nú sé ég, að fram hefir komið í dag viðbótartill. þess efnis, að það skilyrði sé einnig sett fyrir þessari fjárveitingu, að húsið sé einungis notað til íþróttastarfsemi. Það er náttúrlega svo, að þetta hús er að langsamlega mestu leyti notað til íþróttastarfsemi. En það, sem hefir gert félaginu kleift að halda í húsið, og bæta þar með stórum aðstöðu sína til þess að vinna íþróttamálunum gagn, er það, að það hefir leigt húsið út til fundarhalda og skemmtana. Mér virðist því geta verið varasamt að binda fjárveitinguna þessu skilyrði, því e. t. v. væri félagið með því svipt meiri hlunnindum heldur en þeim stuðningi nemur, sem því er veittur. Vil ég mælast til, að hv. meiri hl. athugi, hvort rétt sé að halda þessari viðbótaraths. til streitu. Álít ég heppilegra að samþ. till. hv. meiri hl. eins og hún kom fyrst fram.