08.12.1934
Efri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2627 í B-deild Alþingistíðinda. (3544)
156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég lýsi óánægju minni yfir þeirri afgreiðslu, sem þetta mál ætlar að fá hér í d. Mér hefir virzt sem sumir hv. dm. ætlist til, að hv. Nd. lagfæri frv. Sé ég þó ekki betur en að þessi hv. d. sé einfær um að ganga sæmilega frá því. Ég er viss um, að málið hefði farið skaplega fram, ef hæstv. forsrh. hefði orðið við ósk minni um að fresta málinu til næsta dags og gefa hv. allshn. færi á að athuga það. Er þetta ekki í samræmi við traust það, sem ég hefi borið til hans, að hann hraðar svo málinu, að afgreiðsla getur ekki orðið sæmileg.
Ég greiði atkv. með brtt. hv. þm. N.-Ísf um, að aldurstakmarkið sé 68 ár, enda þótt ég sé ekki fyllilega ánægður með hana. En hún fer í rétta átt.