17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2638 í B-deild Alþingistíðinda. (3567)
156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
2) TT:
Ég hafði kvatt mér hljóðs undir umr. um þetta mál, en vegna þess að ég var ekki mættur á því augnabliki, sem forseti tók málið fyrir, þá sýndi hann þá röggsemi að slíta þegar umr. Ég minnist ekki slíkrar röggsemi hjá hæstv. forseta fyrr. Um frv.gr. segi ég nei.