19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2639 í B-deild Alþingistíðinda. (3572)
156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
Thor Thors:
Það má sennilega segja um þetta mál, eins og reyndar flest mál, sem þetta þing hefir haft til meðferðar, að það hafi litla þýðingu fyrir okkur sjálfstæðismenn að rökræða það og benda á missmíði þess og ranglæti, því það virðist regla á þessu þingi, að því greinilegar sem bent er á gallana, því fíknara virðist stj.liðið í að koma málunum fram, og þeim mun betri rök sem færð eru fyrir því, að málið sé óheillavænlegt og því eigi að fella það, því meira kapp er lagt á að koma því fram. Og um þetta mál er það að segja, að það virðist engin undantekning frá þessari reglu. Hæstv. forsrh. hefir tekið það að sér og sækir það með slíku ofurkappi, að það er engu líkara en glímukóngurinn sé nú kominn upp í honum, þó að hann eigi hér ekki við sterkari andstæðinga en embættismenn, sem slitið hafa sér út í þjónustu ríkisins og eru orðnir 65—70 ára gamlir. Það má vera, að hinum forna glímukonungi, hæstv. núv. forsrh., þyki frækilegt að leggja slíka menn að velli, og ef svo er, þá óska ég honum til hamingju með þann frama. Það verður að fyrirgefa okkur sjálfstæðismönnum það, þrátt fyrir þá reglu, sem hér virðist ríkjandi, að hafa orð okkar að engu, að við munum ekki láta það hafa áhrif á þá aðstöðu okkar, sem málfrelsi, þingsköp og þjóðarvilji hefir skapað okkur. Og þó að við vitum, að rök okkar séu hér lítils metin af andstæðingum okkar, þá vitum við, að það er skylda okkar gagnvart þjóðinni að láta skoðun okkar koma skírt fram. Annars verð ég að segja, að það er hættulegur leikur hjá þessum flokkum, sem vilja skreyta sig með 1ýðræðisnafninu, að beita meirihl.valdi sínu eins og þeir hafa gert hér. Það er alveg sama, hvað þörf og skynsamleg till. hefir komið frá okkur sjálfstæðismönnum á þessu þingi, það hefir alltaf verið ákveðið fyrirfram, að hún skuli drepin. Þetta er ekki til þess að auka virðingu þjóðarinnar fyrir þinginu, auk þess sem þetta er hættulegur leikur, sem mun fyrr eða síðar hefna sín á þessum sömu þm.
Það voru ýms atriði í síðustu ræðu hæstv. forsrh., sem ég þarf að svara. Ég átti ekki kost á því að taka aftur til máls við þá umr., en ég mun nú rekja efni máls hans. Eins og menn rekur kannske minni til, sagði hann, að við sjálfstæðismenn hefðum yfir engu að kvarta, þó að fáir sætu í þingstólunum og hlustuðu á okkur, því slíkt hefði oft komið fyrir á undanförnum þingum, og hefði hann verið sjónarvottur að því. Ég hefi oft verið viðstaddur þingfundi á undanförnum þingum, en ég hygg, að það hafi aldrei kveðið eins mikið að vanrækslu í þessum efnum og nú. Ég hefi að vísu aðeins setið á einu stuttu aukaþingi, en ég man ekki eftir, að menn gerðu sér þá leik að því að fara út úr þingsalnum, þegar andstæðingarnir tóku til máls. Hæstv. forsrh. kvaðst hafa verið viðstaddur fyrri ræðu mína. Það getur vel verið, en ég sá hann ekki, enda er ókleift að standa í þingsæti sínu og halda ræðu, en verða jafnframt að eltast við hann um króka og kima þinghússins. Ég verð að telja skyldu hæstv. ráðh. að vera viðstaddur, þegar rætt er mál, sem hann flytur og sækir af slíku kappi, hvað sem annars liður málflutningi hans. Orðið „málþóf“ er nú orðið svo margtuggið, að það er eins og hv. þm. stjórnarflokkanna séu búnir að fá það á heilann. Hæstv. forsrh. fór strax að tala um málþóf eftir að ég hafði flutt eina ræðu sem frsm. minni hl. allshn. Ég verð að segja, að ég skil ekki, hvaða málfrelsi er hér, ef frsm. n. má ekki tala einu sinni án þess að honum sé brigzlað um málþóf. Hann sagði, að það væri leikur stj.liða gegn málþófinu að hlusta ekki á okkur. Þeir hafa nú leikið það oft á þinginu, en það gerir okkur sjálfstæðismönnum ekkert til, því að orð okkar eru ætluð sanngjarnari mönnum en fulltrúum stj.flokkanna hér á þingi. Ég hygg, að það verði áður en lýkur verst fyrir þá sjálfa að hafa ekki viljað hlusta á mál okkar og svara því eins og oftast hefir verið fyllsta nauðsyn fyrir þá að gera.
Hæstv. forsrh. sagðist ekki hafa getað skilið af ræðu minni, hvort ég væri fylgjandi aldurshámarki eða ekki. Ég gat þess, að ég teldi það rannsóknarefni, hvort við ættum að taka okkur Dani og Norðmenn til fyrirmyndar, en það eru þær tvær nágrannaþjóðir okkur, sem tekið hafa upp aldurshámark. Ég taldi, að málið væri þess eðlis, að engin ástæða væri til þess að flaustra því af núna í þinglokin. Ég sagði, að það gæti og ætti að bíða til næsta þings. En það, sem við sjálfstæðismenn höfum sérstaklega á móti þessu frv., er hin kaldranalega aðferð gegn einstökum embættismönnum, sem kemur þar fram og er til ósóma fyrir ríkisstj.
Hæstv. forsrh. staðhæfði, að vegna þess að við tvær stofnanir gilti 65 ára aldurshámark, þá væri fullkomin ástæða til að lögleiða það almennt. Ég vék að því í fyrri ræðu minni, að þó að slík ákvæði giltu við þessar tvær stofnanir, Hæstarétt og Landsbankann, þá horfði málið þar öðruvísi við. Hæstaréttardómarar, sem eiga að fara frá eftir 65 ára aldur, njóta fullra launa, og með starfsmenn Landsbankans hefir þeirri reglu verið fylgt, að þeir hafa fengið 1—2 ára frest áður en þeir eru látnir fara, og er það ólíkt því, sem ætlazt er til í þessu frv. En það nær engri átt, að slegið sé föstu sem almennri reglu því, sem er framkvæmt í tveimur undantekningartilfellum. Hæstv. forsrh. sagði, að ríkisstj. gæti sett ákveðnar reglur um það að reka menn úr embættum hvenær sem er. En þetta er misskilningur, því embættismenn eru ráðnir æfilangt. Ég veit, að hæstv. forsrh. minnist þess, ef hann krefur málið til mergjar, að hafa numið það í lagadeild háskólans, að það er byggt á því sem almennri reglu, að embættismenn séu ráðnir æfilangt. (Forsrh.: Hvar eru þau lög). Ég fjölyrði nú ekki um það, en bendi á það, að í stjórnlagafræði Lárusar H. Bjarnasonar stendur um embættismenn á bls. 275: „Starfið verður að vera veitt manni um óákveðinn tíma, og er vanalega veitt manni æfilangt.“ Þetta er sú almenna regla, sem byggt er á. Þessu er slegið föstu af Lárusi H. Bjarnasyni. Þetta er einnig skoðun hins danska stjórnlagafræðings Matsens, og þetta er ennfremur skoðun núv. prófessors í ríkisrétti, Bjarna Benediktssonar. Með allri virðingu fyrir lögfræðiþekkingu hæstv. forsrh., þá verð ég að meta álit þessara þriggja stjórnlagafræðinga meira en skoðun hans, sérstaklega þegar hún er flutt til rökstuðnings máli, sem hann sækir af slíku ofurkappi, mér liggur við að segja grimmd.
Ég hefi haldið því fram, að ekki hafi legið fyrir nein skýrsla um það, hvað þessi 1., ef þau verða samþ., ná til margra manna, en um það hefðu átt að liggja fyrir upplýsingar hjá n. þeirri, sem hafði málið til meðferðar. Það er rétt, sem hæstv. forsrh. sagði, að skýrsla um þetta birtist í Morgunblaðinu, og þó hún sé auðvitað góð, þar sem hún er birt í jafnmerku blaði, þá hefir þó ekkert legið opinberlega um þetta hér á þinginu. Um það almenna atriði málsins, hvort rétt sé að beita aldurshámarka og hvenær, skal ég ekki neitt fullyrða. Öllum má vera það ljóst, að það, hversu vel menn endast, er einstaklegt atriði. Sumir eru með fullum starfskröftum alveg til elli, en öðrum er farið að förlast, þó aldurinn sé ekki hár. Ég benti á það við fyrri umr., að mörg af mikilmennum sögunnar hafa haldið fullri starfsorku fram í háa elli. Ég vil nefna fleiri dæmi. Ég vil minna á Hindenburg, fyrrv. forseta Þýzkalands. Hann andaðist 87 ára að aldri sem forseti Þýzkalands. Hann varð ekki forseti Þýzkalands fyrr en eftir að hann hafði náð 70 ára aldri, og var þá um langt skeið forseti Þýzkalands. Hann sat lengi við stjórn með sameiginlegu samþykki allra, þangað til nazistar komust til valda 1931. Þessi maður var að áliti þýzku þjóðarinnar bezt fær til þess að verða forseti eftir að hann var kominn yfir 70 ára aldur. Ég vil minna á Bismarck, sem lifði við góða heilsu til 83 ára aldurs og var mjög áhrifaríkur meðal sinnar þjóðar. Þá vil ég minna á Briand, sem naut almennrar virðingar fyrir störf sín í þágu þjóðabandalagsins fram í háa elli. Þá má nefna brezka stjórnmálamanninn Lloyd George, sem er 71 árs að aldri og er enn einn af áhrifaríkustu stjórnmálamönnum Bretlands, og er núna nýbúinn að semja víðtækt og þýðingarmikið kosningaprógramm fyrir flokk sinn, og er álitið af stjórnmálaflokkunum í Englandi, að það muni skipta miklu máli í kosningum þeim, sem fram undan eru. Þá má geta tveggja frægra rithöfunda, sem lifðu við góða starfskrafta fram í háa elli, en það voru þeir Henrik Ibsen og Björnstjerne Björnson. Þá má nefna eitt dæmi úr sögu Íslands, sem öllum er kunnugt, en það er Jón Sigurðsson, sem lézt 68 ára að aldri og hélt sæmilegri heilsu til dánardægurs og naut virðingar og trausts allrar þjóðarinnar. Það mun sumum finnast nokkuð kuldalegur vottur við minningu Jóns Sigurðssonar, að ætla nú með l. að dæma hann ómerkan til starfa fyrir þjóðfélagið þrjú síðustu ár æfi hans. Þetta atriði er svo einstaklegt og persónubundið, að skilyrðislaus löggjöf hlýtur í einstökum tilfellum að vera mjög óréttlát.
Ég er hlynntur því, að málið verði rannsakað, en ef löggjöf verður sett um þetta, þá verða þar að vera svo ríkar undantekningarheimildir, að þjóðfélagið geti notið starfskrafta þeirra manna, sem eru fullhraustir til sálar og líkama fram í háa elli. En það er meiningin með þessu frv., að menn eigi að fara skilyrðislaust, þegar þeir eru komnir yfir 70 ára aldur. Þó er það ekki þetta ákvæði, sem veldur mestri andstöðu frá minni hendi, heldur þær kuldalegu kveðjur, sem ríkisvaldið sendir starfsmönnum sínum með því að ætla að reka þá svona fyrirvaralaust eins og ákveðið er í þessu frv. Svo er ákveðið í 4. gr., að l. skuli þegar öðlast gildi, og í 3. gr. er ákvæði um, að þeir embættismenn, sem náð hafa aldurshámarkinu, skuli víkja úr embætti 1. jan. 1935, eða m. ö. o. eftir nokkra daga, en ef l. öðlast síðar gildi, þá fyrsta dag næsta mánaðar eftir að l. hafa öðlazt gildi. Þetta er ranglátt og harðneskjulegt ákvæði. En hæstv. forsrh. hefir gefið í skyn, að hann ætli ekki að beita því eins harkalega og gert er ráð fyrir í frv., en eins og ákvæðið er í frv., þá er ráðh. beinlínis varnað að beita linkind í þessum efnum. Það er þess vegna rangt hjá hæstv. ráðh., að engin ástæða sé til þess að lögleiða þetta frekar á næsta þingi. Því að með því að fresta málinu til næsta þings, þá er þeim mönnum, sem hér eiga hlut að máli, gefinn nokkur frestur til þess að venjast þeirri lífsvenjubreytingu, sem þeir verða að taka upp, ef þeir eiga að vera sviptir stöðum sínum. Með því að fresta málinu má gera frv. betur úr garði, svo að allir geti þolanlega við það unað, og þá þarf það ekki að tefja tíma þingsins mikið. Það er þeim mun meiri ástæða til þess að fresta málinu til næsta þings, að þá eru líkindi til, að liggi fyrir frv. til 1. um breyt. á launalögunum, og fer vel á því að leysa þetta mál í sambandi við launamálið.
Hæstv. forsrh. sagði, að það væri gott og fallegt að vilja hugsa embættismönnunum fyrir áhyggjulausri elli. Hann hefir víst sjálfur samið grg. fyrir frv. og segir þar: „Það þykir ekki rétt að níðast á hinum opinberu starfsmönnum, sem komnir eru svo til ára sinna, með því að láta þá sitja lengur að starfi, heldur þykir rétt að unna þeim rólegs og amsturslauss æfikvölds.“ Þetta er hugnæmt og fallegt, en meiningin er samt að reka þá fyrirvaralaust út á gaddinn. Fyrr má nú vera umhyggjan!
Þá fullyrti hæstv. ráðh., að embættismennirnir hefðu engan meiri rétt til eftirlauna en aðrar stéttir þjóðfélagsins. En þetta er rangt. Þeir hafa fengið embætti sitt með þeirri forsendu, að þeir nytu eftirlauna. Þeir hafa goldið af kaupi sínu árlega 7% í sérstakan sjóð, hinn svonefnda lífeyrissjóð. Þetta er framlag mannanna sjálfra og þeirra eigið fé, og því nær það engri átt að segja, að þessir menn hafi ekki frekari rétt til eftirlauna en aðrar stéttir. Hæstv. forsrh. fer hér með rangt mái. en hann ætti að vita þetta, þar sem hann er og hefir verið embættismaður. Þetta er mjög tilfinnanlegt gjald fyrir einstaka embættismenn, sem eru lágt launaðir. Annars er sú stefna núna uppi, að gera meira en gert hefir verið til þess að tryggja menn í ellinni, og hafa þess vegna komið fram frá öllum flokkum till. um almennar tryggingar. Allir flokkar eru sammála um, að ellitryggingar séu teknar upp.
Hv. 3. þm. Reykv. talaði líka um þetta mál. Ég get tekið undir flest af því, sem hann sagði. Hann sagði, að það væri rétt að láta eldri menn víkja og hvíla sig frá störfum, svo að yngri menn gætu tekið við. Ég get verið þessu samþykkur, en það verður að koma fram gagnvart eldri mönnum með fullri mannúð, en ekki sparka þeim í einn vetfangi. Á þessu þingi eru nú fleiri ungir menn en nokkru sinni fyrr, en ég vil segja, að það séu kaldar kveðjur til eldri mannanna, sem með atkvæði sínu hafa falið okkur umboð til að ráðstafa málefnum þjóðarinnar hér á þingi, ég vil segja, að það séu kaldar kveðjur til þeirra, ef við yngri mennirnir notum þingvald okkar til að níðast á þeim eldri eins og gert er ráð fyrir með þessu frv.
Það eru fram komnar nokkrar brtt. við þetta frv., og skal ég þá víkja að brtt. frá minni hl. n., okkur hv. 8. landsk., á þskj. 856. — Ef forseti hugsar sér að hafa fundarhlé, er nú kominn venjulegur tími til þess, og skal ég þá bíða með síðari hluta ræðu minnar. [Fundarhlé].
Ég var kominn að því að ræða um einstakar brtt., sem fram hafa komið við frv. þetta.
Eins og hv. þdm. er kunnugt um, bar ég fram þá rökst. dagskrá við 2. umr. málsins, að þar sem eigi væri vitað, til hversu margra embættis- og sýslunarmanna þetta frv. næði, né heldur hvernig ætti að sjá fyrir þeim, og þar sem það yrði að teljast óheppilegt, að ríkisvaldið veitti embættismönnum sínum ekki einhvern uppsagnarfrest, þá teldi ég heppilegast, að þessu máli yrði frestað til næsta þings. Þetta er aðaltill. okkar minni hl. allshn. En þar sem þessi till. var felld, berum við minni hl. allshn. fram brtt. á þskj. 856.
Ég hefi sérstaka ástæðu til þess að gera grein fyrir efni þessara brtt., þar sem ég sá, mér til mikillar undrunar, grein í einu víðlesnasta dagblaði landsins, sem hv. 5. þm. Reykv. hefir skrifað. Þar ásakar hann mig og hv. 8. landsk. fyrir það, að hafa borið fram brtt. við þetta frv. og enga grein gert fyrir því. Mér finnst það koma úr harðri átt, að flokksbróðir minn, sem ég met mjög mikils, skuli hefja árás á mig í blaði fyrir það, að hafa ekki gert þessu máli nógu góð skil sem nm. í allshn. Ég vil bera þessi ámæli hv. 5. þm. Reykv. saman við þau ummæli, sem hæstv. forsrh. leyfði sér að viðhafa, að ég væri með málalengingar í þessu máli. Þetta tvennt fer ekki vel saman. Þessar brtt. okkar miða að því að draga úr þeirri harðneskju
, sem í frv. felst, og veita mönnum þeim, sem hér um ræðir, nokkurn uppsagnarfrest.
1. brtt. er við 3. gr. og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þeir opinberir embættis- og starfsmenn, sem eru á aldrinum 65—70 ára, er lög þessi öðlast gildi, skulu þó ekki skyldir að víkja úr stöðum sínum fyrr en þeir eru fullra 70 ára.“
Næði þessi till. fram að ganga, er a. m. k. að nokkru leyti dregið úr þeirri óréttmætu og óeðlilegu harðneskju, sem í frv. felst.
Önnur brtt. er við 4. gr. frv. og felur það í sér, að gildistöku laganna skuli frestað um eitt ár, eða til 1. jan. 1936. Mér finnst það engin ofrausn, þó að þessum öldruðu mönnum sé veittur ársfrestur áður en þeir eru reknir úr embættum sínum. Brtt. þessa höfum við orðað svo hóflega, að ég vænti þess fastlega, að henni verði vel tekið af öllum hv. þdm. Við flm. þessara brtt. hreyfðum því í allshn., að höfuðaldurstakmarkið væri sett 68 ár, í staðinn fyrir 65, en á það vildu andstæðingar okkar í n. ekki fallast.
Ég má víst ekki fara út í að ræða brtt. á þskj. 868, sem hv. 2. þm. Reykv. flytur, þar sem hann hefir ekki gert grein fyrir þeim ennþá.
Í síðustu málsgr. 1. gr. frv. er svo ákveðið, að ákvæði laganna nái ekki til ráðherra, þingmanna og annara opinberra fulltrúa, sem kosnir eru almennri kosningu. Þetta ákvæði er að sjálfsögðu rétt, því að Alþingi hefir sett það ákvæði í stjskr., að kosningaréttur og kjörgengi fylgist að. Úr því nú að löggjafinn treystir mönnum á aldrinum 65—70 ára eins og öðrum til þess að gegna því vandamikla starfi að eiga sæti á Alþingi, þá hljóta þeir einnig í mörgum tilfellum að vera færir um að gegna öðrum störfum. Ég býst t. d. ekki við, að hæstv. forsrh. vilji halda því fram, að aldursforseti þessa þings, hv. 2. þm. Skagf., sem er 68 ára, sé ekki fær til þess, eða hitt, að hann telji hv. 2. landsk., sem nú er fullra 66 ára, ekki færan til flestra starfa, engu síður en hann er fær um að greiða með honum atkv. nær því í hverju máli, sjálfum sér til vansæmdar og flokki sínum til óþurftar. Þá mun og ekki heldur þurfa að gera ráð fyrir því, að hæstv. núv. forsrh. beiti því ákvæði þessara laga, sem gefur honum sem ráðh. vald til þess að láta embættismenn fara frá embættum sínum, þegar þeir hafa náð 65 ára aldri, gegn þessum embættismanni, sem jafnframt er þm. Þetta sýnir, hve mikið vald ráðh. fær yfir embættismönnum á aldrinum frá 65—70 ára.
Við flm. þessara brtt. o. fl. viljum, að það komi skýrt fram, að það, sem við finnum frv. þessu mest til foráttu, er sú harðneskja, sem kemur fram í því gagnvart þeim embættismönnum, sem búnir eru að slíta sér út í þjónustu ríkisins, að láta þá fara frá embættum sínum fyrirvaralaust og veita enga undanþágu, heldur láta lögin öðlast gildi nú þegar.
Hvað snertir grg. frv., þá finnst mér hún afar undarlega orðuð. Þar er t. d. komizt að orði eins og frv. feli í sér einhver hlunnindi fyrir þessa menn. M. a. segir þar, að 65 ára embættismenn eigi að njóta sömu hlunninda og 70 ára. Og „hlunnindin“ eru þau, að reka þá fyrirvaralaust út á gaddinn! Yfir höfuð að tala er grg. öll mjög lævíslega orðuð; það er reynt að láta það skína í gegn, að þegar verið er að reka þessa gömlu embættismenn, þá sé það vegna mannkærleika. Slíkt yfirskin er alveg óþolandi. Ég hefði helzt viljað fresta þessu frv. til næsta þings, en ef það fæst ekki, þá viljum við sjálfstæðismenn fá frv. fært í það form, að það verði til sem allra minnstrar vansæmdar fyrir ríkisvaldið sem atvinnuveitanda.