19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2645 í B-deild Alþingistíðinda. (3574)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Út af orðum þeim, sem féllu hjá hv. þm. Snæf. vegna þeirra ummæla minna í grein, er ég skrifaði í Morgunblaðið í morgun, að ekki væri ennþá komið nál. eða brtt. frá minni hl. allshn. Nd. í þessu máli, vil ég taka það fram, að þetta var sagt aðeins til þess að sýna fram á, hvern áhuga stjórnarflokkarnir legðu á að knýja mál þetta fram, að ekki væri einu sinni beðið eftir brtt. eða nál. í málinu. Annað eða meira átti ég ekki við með þessum ummælum mínum.

Um frv. það, sem hér liggur fyrir, er það að segja, að mér finnst það hreint og beint með einsdæmum, — að ég ekki tala um grg., sem er alveg dæmalaust plagg, svo dæmalaust, að ég er alveg hissa á, að hún skuli hafa fylgt frv., sem kemur frá einum dómsmrh. Eins og hv. þm. Snæf. tók fram, þá er helzt í grg. að sjá, að það eigi að vera einhver hlunnindi, sem þessir gömlu embættismenn eigi að fá með frv. þessu. Það eiga kannske að heita hlunnindi fyrir þessa menn, þegar þeir eru reknir frá embættum sínum til þess að víkja fyrir yngri mönnum, eftir að vera búnir að slíta út kröftum sínum við slík sultarlaun alla æfi, að þeir hafa engu fé getað safnað. Við þessu væri í raun og veru ekki mikið að segja, ef þessir gömlu menn ættu von á þeim eftirlaunum, sem þeir gætu lifað af það sem eftir væri æfinnar. En það er nú ekki alveg því að heilsa, því að þau eftirlaun, sem íslenzka ríkið ákveður embættismönnum sínum, munu vera lægst allra eftirlauna á Norðurlöndum, a. m. k. Er því engin leið fyrir þá að lifa af þeim eingöngu. Að halda því fram, eins og gert hefir verið af ýmsum, að laun embættismanna eftir launalögum hafi verið og séu enn svo há, að vel megi af þeim lifa og safna fé að auki, er alveg ósæmilegt. Það skiptir vitanlega engu máli þó að ef til vill sé hægt að vitna til einhverra manna, sem hafi jafnvel við verri kjör að búa en þeir. Og það er vitanlega ekkert nema lýðskrum til þess að æsa þjóðina, þegar verið er að lauma því inn hjá borgurunum, að þessir menn séu öfundsverðir sakir embætta sinna og launa. Annars er ég alveg hissa, að hæstv. forsrh. skuli hafa getað fengið allshn. til þess að flytja alla þá speki, sem í grg. er, eins og t. d. þá, að á vissu tímabili æfinnar hætti menn að þroskast og standi þá í stað andlega og líkamlega um skeið. Þetta er merkilegt náttúrufyrirbrigði. Það sýnir, að nokkurn hluta æfinnar eru menn á þroskaskeiði. Svo heldur spekin áfram og gr. segir: „Úr því verði hvorki andlegar né líkamlegar breytingar á mönnum nema afturför ein.“ Hvílík speki! Að eftir visst tímabil æfinnar sé ekki um neinn þroska að ræða hjá mönnum, að eins afturförina eina. Ég hefði nú helzt viljað lesa grg. alla, en hætti við það, ef hv. þdm. vilja lofa því að lesa hana orði til orðs, en það tel ég hreint og beint skyldu þeirra, því að grg. eiga að taka fram allt það, er máli skiptir um frv. og þær stoðir, sem undir löggjöfina falla. Og sé engin rök að finna í grg. fyrir málunum, þá er næst að halda, að þau sé hvergi að finna.

Það hefir verið sagt, að embættismenn hefðu það til að vilja sitja í embættum sínum eftir að vera orðnir ófærir til þess að gegna þeim, og að tilgangur frv. þessa sé m. a. sá, að verjast þessu. Ég vil nú spyrja: Hefir þjóðfélagið nokkurn tíma orðið fyrir skakkaföllum vegna þessa? Ég held ekki. Venjan hefir verið sú, og er enn, að þegar einhver embættismaður hefir sakir aldurs síns þótt lítt fær um að gegna embætti sínu, þá hefir hann annaðhvort sagt af sér sjálfur, eða stjórnarvöldin hafa bent honum á að segja af sér. Þannig hefir og þetta verið hjá einstökum atvinnurekendum. Það hefir jafnan farið eftir samkomulagi, hvenær hinir aldurhnignu menn hafa látið af störfum sínum. Umfram þetta tel ég enga stjórn þurfa að hafa lög eða fyrirmæli, nema ef vera skyldi einhverja löggjöf til að vitna til, ef hlutaðeigandi menn vildu ekki fara, þegar það væri sanngjarnt.

Í þessari frægu grg. segir á einum stað, að það þyki rétt að unna þessum gömlu mönnum „rólegs og amsturslauss æfikvölds.“ Ég held nú, að þessir menn muni unna sér þess sjálfir, eftir því sem föng eru til, og þurfi því ekki að setja sérstök lög um það. Mér þykir það óneitanlega hljóma dálítið einkennilega, að þessi hæstv. ráðh. skuli vera að tala um að unna þessum gömlu mönnum rólegs og amsturslauss æfikvölds, þegar hann leggur ekki annað til f. h. ríkisvaldsins en að þeir séu fyrirvaralaust reknir frá embættum sínum. Það er vitanlega sagt, að þeir eigi að lifa á eftirlaunum sínum, en eins og margsinnis er búið að taka fram undir þessum umr., þá ná þau skammt. a. m. k. fyrir flesta þeirra, til þess að lifa af. Það er því víst, að eins og nú standa sakir, þá hefir ríkisvaldið ekki búið svo að þessum mönnum, að þeir geti lifað rólegu og amsturslausu æfikvöldi. Í lok grg. segir, að hvernig sem fari um þetta frv., þá sé stj. fastráðin í að fara eftir þeim reglum, sem þar eru settar. M. ö. o., stjórnin ætlar að láta alla þá embættismenn, sem komnir eru yfir 65 ára aldur og henni þykir ástæða til, fá hvíld, hvort sem frv. verður að lögum eða ekki. En slíkt yrði ekki hægt með öðru móti en því, að láta þessa starfsmenn alla frá full laun, a. m. k. ef frv. nær ekki samþykki þingsins. En þá kemur önnur hlið málsins, og hún er sú: Er þetta fært vegna fjárhagsins? Gera fjárl. ráð fyrir slíkum útgjöldum? Ég fæ ekki séð, að svo sé. Um þetta vil ég fá frekari upplýsingar hjá hæstv. ráðh. Eins og málið liggur fyrir nú, þá virðist mér munurinn aðeins vera sá, að verði frv. ekki að 1., þá fari þessir menn frá með fullum launum, en annars fái þeir aðeins eftirlaun, úr því að hæstv. stj. er ráðin í að fara inn á þessa braut.

Það hafa komið fram ýmsar brtt. við frv. þetta; sumar þeirra eru til bóta, en aðrar lítið. Skal ég þá með fáum orðum víkja að þeim till., sem ég tel til bóta sérstaklega. [Eyða í handr.].

Og ég vil að lokum segja það, að ef það eiga að verða aldurslaun embættismanna ríkisins að eiga það undir geðþótta þess manns, sem fer með ráðh.embættið í hvert skipti, hvort þeir eru reknir eins og óbótamenn frá störfum sínum á aldrinum 65 ára, þá þarf a. m. k. að sjá fullkomlega fyrir þessum mönnum með mikið bættum eftirlaunum frá því, sem nú er.