19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (3586)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Thor Thors:

Ég vil aðeins spyrja hæstv. forseta um það, hvort hann hefir aðgætt það, hvort þessir þm., sem loks var hægt að ná í til þess að skrifa undir þetta skjal, séu staddir hér á fundi, því að mér skilst, að hv. þm. N.-Þ. sé búinn að vera að smala upp undir klukkutíma, til þess að safna þessum nöfnum saman, því að sumir af þessum mönnum hafa ekki verið á fundi. Ég vil, að hæstv. forseti athugi það, hvort þessir menn eru allir mættir, því að ég hygg, að það sé ekki nægilegt að skrifa undir áskorun sem þessa, ef menn eru ekki mættir á fundi. Það er a. m. k. einkennilegur þingmannaréttur, ef þeir sýna ekki meiri áhuga en það, að þeir nenna ekki að mæta, þegar málið er rökrætt, og svo stillilega og þinglega eins og gert er í alla staði. Ég verð að telja það skilyrði til þess, að hægt sé að taka slíkar undirskriftir alvarlega, að menn séu staddir á fundinum, þegar þeir rita nöfn sín undir þær. Annars verð ég að segja það, að þetta þras um málþóf, sem stjórnarliðar eru stöðugt með hér á þessu þingi, það hefir við æðilítil rök að styðjast í þessu máli. Við 1. umr. var ekki tekið til máls. Við 2. umr. þess voru haldnar 2 nokkuð stuttar ræður, og nú við 3. umr. hefir ekki einu sinni annar nm. Sjálfstfl. úr allshn. fengið að taka til máls. Þetta verð ég að telja alveg tvímælalaust á móti orðum þingskapanna, þar sem þar er skýrt fram tekið, að til þess að hægt sé að beita þessu, þá þurfi umr. að hafa gengið úr hófi fram.