20.12.1934
Neðri deild: 65. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2660 í B-deild Alþingistíðinda. (3607)
156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
3607Jakob Möller:
Ég lýsti því yfir við 2. umr., að ég væri í raun og veru samþ. því, að ákveðið væri aldurshámark embættismanna. En bæði er nú það, að ég tel, að hér sé ósæmilega harkalega farið að gagnvart þeim embættismönnum, sem eiga að verða fyrir ákvæðum þessara l., og svo er líka það, að meðferð þessa máls hér á þingi, og þá sérstaklega í Nd., er svo einstök, að jafnvel þó að maður væri fylgjandi frv. í öllum greinum, þá tel ég hæpið, að menn, sem annars eru gæddir sanngirni og samvizkusemi, gætu verið þekktir fyrir að greiða því atkv. Það var hér við 3. umr., þegar aðeins hv. frsm. minni hl. hafði talað og tveir flokksmenn hans, þá voru umr. skornar niður af hálfu stjórnarflokkanna og meiri hl. d., og þá sagði hæstv. forsrh. líka, að hann sæi ekki ástæðu til að ræða þetta mál við þessa d. Hann hefir þegar lýst yfir þeirri skoðun sinni í neðri deild Alþingis, að þm. varði ekkert um þau rök, sem hann hafi fram að færa fyrir málinu, og því sé óþarfi fyrir sig að telja þau rök fram fyrir hv. d. Svo beita stjórnarflokkarnir því ofbeldi að skera niður umr. Þessi málsmeðferð álít ég að sé svo óverjandi, að ég get ekki fylgt frv. og segi því nei.