07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2394 í B-deild Alþingistíðinda. (3631)
150. mál, fiskimálanefnd
Sigurður Kristjánsson:
Hæstv. atvmrh. byrjaði mál sitt á því, að einungis það, að þetta mál er fram komið hér á hv. Alþ., geti orðið sölusambandi ísl. fiskframleiðenda að bana, og er það alvarlegt umhugsunarefni. En ég ætla nú ekki að svara hæstv. ráðh., heldur tala almennt um málið. Ég vil taka það fram, að margt það hefir komið fram við meðferð málsins, sem bendir sterklega í þá átt, að af ekki svo fáum mönnum sé það ákveðið, að samtökum fiskeigenda skuli bani ráðinn. Ég get vitnað til þess, að hv. form. sjútvn. komst svo að orði á fundi í sjútvn., þegar rætt var um frv. til l. um fiskiráð, að óhafandi væri í frv. ákvæði um það, að sölusamband ísl. fiskframleiðenda ætti að nefna menn í ráðið, sökum þess að engar líkur væru til þess, að sú stofnun yrði til, þegar frv. um fiskiráð kynni að koma til framkvæmda. Það hefir oft verið ymprað á þessu, og það er margt, sem bendir í þá átt, að samtök fiskútflytjenda sjálfra skuli kveðin niður með einhverjum ráðum. Og niðurlag frv., að stofnað skuli til einkasölu á saltfiski, er sjálfsagt í sambandi við þá von, sem margir gera sér um það, að hægt sé að koma samtökum fiskútflytjenda fyrir kattarnef, og auðvitað í þeim tilgangi að taka umráðin úr þeirra höndum. Ég hefi ekki talað neitt um þetta mál fyrr en nú, þó að ég eigi sæti í sjútvn. Orsökin til þess er ekki sú, að mönnum í þeirri n. beri ekki að tala um það mál, sem er stærsta málið, sem fyrir n. hefir komið, sérstaklega ef það er athugað, að stofnað muni verða til einkasölu á saltfiski með frv. þessu. Höfuðorsökin er sú, að til þess virðist hafa verið ætlazt af flm., að frv. yrði helzt ekki rætt. Þetta er dálítið einkennilegt, þegar í öðru orðinu er gefið í skyn, að þetta mál sé svo mikilvægt, að hagur lands og þjóðar velti á úrslitum þess.
Þegar þetta mál kom fyrst fyrir sjútvn., fór ég fram á það, að það væri rætt í n., en því var synjað. Ég hygg, að enginn treystist til þess að halda því fram, að þetta mál sé lítilfjörlegt. Þetta mun því stafa af samvizkubiti, en ekki af umhyggjusemi fyrir atvinnurekstrinum, sem hér á í hlut. Frv. var flutt af svo miklum ofsa, að nefndarm. máttu ekki ræða málið, heldur urðu að greiða atkv. um það, hvort n. vildi taka málið til flutnings, eftir að aðeins hafði gefizt tími til þess að lesa frv. Síðan kom það fyrir þessa hv. d. og var því vísað til 2. umr. Þegar það var tekið fyrir við 2. umr. fór ég fram á það, að sjútvn. fengi að fjalla um málið, þar sem hún hafði aldrei rætt það. Gegn þessu var risið með kappi og ofsa. Sú málamiðlun komst á, að form. n. lofaði, að það yrði tekið fyrir í sjútvn., þó að því væri ekki vísað til hennar formlega. Þegar til sjútvn. kom byrjaði sama kappið aftur. Hv. þm. Ísaf. spurði, hvort ég hefði ekki til brtt. við frv. Ég hafði nú enga yfirlýsingu gefið um það, að ég ætlaði að koma með brtt. við frv. Ég hafði yfirleitt ekki gefið í skyn, að sjóða mætti upp úr frv. neitt það, sem við mætti una. En ég hafði farið fram á það, að málið væri borið undir þá aðila, sem mest vit hafa á þessum málum. Ég vissi ekki til þess, að um þetta mál hefði verið fjallað af neinum stofnunum, sem hefðu neina sérstaka aðstöðu til þess að vita meira um það heldur en Pétur eða Páll. Ég og margir menn úr Sjálfstæðisflokknum héldum því fram, að senda ætti málið til umsagnar báðum þeim bönkum, sem mest gera að því að sjá sjávarútveginum fyrir fé, og svo til sölusambands ísl. fiskframleiðenda, sem flytur út mest af fiski landsmanna. Form. sjútvn. snerist í lið með okkur sjálfstæðismönnum, svo að málið var sent þessum aðilum til umsagnar. En svo mikið lá á að koma málinu til 3. umr., að n. gat ekki beðið eftir þessum umsögnum. En það bar svo heppilega undir, að umsagnirnar bárust í hendur form. n. um það bil, að hann var að hefja framsögu í málinu. Ég ætla, að það verði að viðurkenna þá staðreynd, að málið er rekið áfram af óvenjulegu kappi, ef ekki ofsa. Það er bersýnilegt, að koma hefir átt í veg fyrir það, að þeir menn og þær stofnanir, sem vit hafa á þessum málum, fjölluðu um frv. Ég ætla ekki að segja hv. þdm. margt af því, sem þeir hljóta að vita sjálfir. En þetta frv. stefnir að því að taka yfirráðin yfir sjávarútveginum úr höndum þeirra manna, sem til hans hafa stofnað af eigin hvötum og lagt í hann orku sína og fé og allt, sem þeir eiga til, og færa þau yfir í hendur kunnáttulítilla manna eða ríkisins sjálfs. Það er enginn vafi á því, að með frv. er stefnt að því að brjóta niður að nokkru eða öllu leyti einstaklingsframtakið í þessum efnum. En hið stærsta tak, sem reist hefir verið á þessu landi, eru þær miklu framfarir, sem átt hafa sér stað í sjávarútveginum, unz utanaðkomandi hömlur komu í veg fyrir áframhaldandi framfarir þar. Í þessa átt er allt frv. stílað. Það er bert af 5. gr. frv., að verið er að reyna, þó að ríkið taki þetta ekki þegar í sínar hendur, að lama svo fiskeigendur með höftum, að þeir sjái sér þann kost vænstan að gefast upp. Ég þarf ekki að lesa upp greinina, því að hún er hv. þdm. kunn. Það má segja, að þar séu tekin af útvegsmönnum öll umráð yfir því, hvað þeir eigi að gera. Þeir mega ekki gera út skip nema með leyfi, þeir mega ekki verka fiskinn nema með leyfi, og að þeim sé fyrirskipað, á hvaða hátt þeir eigi að gera það. Þeir mega ekki bjóða hann til sölu nema með leyfi, og ekki taka við andvirðinu, nema þeim sé leyft það. Þá er það og bert af 1. gr. frv., þar sem ákvæði eru um það, hverjir eigi að vera í fiskimálan., að ganga á framhjá þeim mönnum, sem barizt hafa í þessum atvinnurekstri. Af 7 mönnum, sem á að skipa í fiskimálan., á aðeins einn að vera frá útvegsmönnum, fél. botnvörpuskipaeigenda. Það er ekki ástæða til þess að setja út á það, þó að bönkunum sé ætlað að skipa menn í nefndina. En það er eftirtektarvert, að einn sá aðili, sem á að nefna mann í fiskimálan., er Alþýðusamband Íslands. Ég vil nota tækifærið til þess að vekja eftirtekt á því, hvað það er hneykslanlegt, að það má varla nefna menn í nokkra nefnd, hvort sem hún er pólitísk eða ópólitísk, að Alþýðusamband Íslands sé ekki efst á blaði.
Því er þá ekki talað um að nefna menn úr sjálfstæðisflokknum eða t. d. einhverri skólanefnd. Hér er ekki um að ræða fagfélag eða stéttarfélag, því Alþýðusamband Íslands er ekkert annað en pólitískt félag, sem kemur berlega fram af lögum félagsins. Og þó að það eigi hér að koma fram sem fulltrúi verkalýðs Íslands, þá er það ekkert annað en fjarstæða. Í 1. gr. laga þess stendur: „Tilgangur sambandsins er að styrkja samtök, sem byggð eru á grundvelli jafnaðarstefnunnar“. Það er líka sagt, að samkv. þessu sé það höfuðatriðið í starfsemi félagsins, að gefa út blöð og bæklinga, sem eru leiðbeinandi um jafnaðarstefnuna. Ég vil vekja eftirtekt á því, að ef Alþýðusamband Íslands á að nefna einn mann í fiskimálan., þá verður að taka tillit til annara stjórnmálaflokka og gefa þeim tækifæri til þess að nefna menn í nefndina. Það er engin ástæða til þess að taka þennan stjórnmálaflokk fram yfir aðra, þegar gera á ráðstafanir um sölu á afurðum sjávarútvegsins. Ég veit ekki til þess, að það eigi að vera pólitískt, að afla fiskjar úr sjónum. Einmitt fyrsti aðilinn, sem nefndur er, hann er pólitískur. Í 1. gr. frv. stendur: „ ... en hinir sex skulu tilnefndir af þessum aðilum, einn af hverjum: Alþýðusambandi Íslands“ o. s. frv. En í einni gr. laga Alþýðusambandsins stendur: „Rétt til þess að vera tekin í Alþýðusambandið hafa öll ísl. verklýðsfélög og stjórnmálafélög, sem vilja hlíta stefnuskrá Alþýðuflokksins“ .... Alþýðuflokkurinn er pólitískt félag, sem stendur fyrir því að stilla mönnum fyrir þingkosningar. Og ég held, að einn þingfl. heiti Alþýðuflokkur, og hér er greinilega fram tekið, að rétt til þess að vera í Alþýðusambandinu hafi þau félög, er játist undir stefnuskrá Alþ.fl. Það eru því margir flokkar, sem hafa sama rétt og þessi aðili, sem er hreinpólitískur. Í lögum Alþýðusambandsins er á einum stað sagt, að félögin í sambandinu hafi því aðeins umráð yfir sínum innri málum, „að ekki komi í bága við sambandslögin, stefnuskrána eða samþykktir sambandsþinga“. (GG: Hvernig stóð á, að Alþýðusambandið átti að fá fulltrúa í fiskiráð?). Það var vitleysa. Og ég er á móti því, að einu pólitísku félagi séu veitt sömu réttindi, nema allir flokkar séu jafnir og fulltrúar teknir úr öllum pólitískum flokkum. Ég gæti fært þess mörg dæmi úr lögum Alþýðusambandsins — en ég vil ekki tefja tímann á að fara út í það —, að Alþýðusambandið er pólitískt félag, og mér þykir ósvífið að leggja til, að fyrsti maðurinn í þessa nefnd skuli eiga að vera úr þessum eina flokki, en ekki minnzt á það, að fulltrúar skuli vera úr neinum öðrum stjórnmálaflokkum landsins. Ég vil undirstrika þetta, að einum aðila er gert hærra undir höfði en öðrum, og tel það óviðeigandi, að í slíkar nefndir eða stofnanir sé einum pólitískum flokki veittur réttur að tilnefna menn, en ekki öðrum, og á þetta vitanlega við allar slíkar nefndir eða stofnanir.
Það liggja náttúrlega fyrir margar brtt. við þetta frv. Mun ég ekki koma að þeim að sinni, og kannske alls ekki. Ég mun halda mig við hitt, að málið er svo vaxið, að ég get með engu móti verið stuðningsmaður þess, og þykir undarlegt, að á meðan ekki er búið að ausa moldu síldareinkasöluna sálugu, sem sló landsmenn djúpu sári, þá skuli menn voga sér að bera fram frv., sem boðar samskonar fyrirkomulag um aðra framleiðslu sjávarafurða, nema að því leyti sem þetta grípur yfir stærra svið, því síldin er þó ekki nema lítill hluti sjávarafurðanna, en þetta nær yfir 7/10—8/10 hluta sjávarafurða. Mér þykir þetta nokkuð djarft, meðan afdrif hliðstæðrar ríkisstofnunar eru í fersku minni, og meðan ekki er búið að borga milljónatöp þessarar stofnunar, fyrir utan þær milljónir, sem hún kom fyrir kattarnef frá sjómönnum og útgerðarmönnum. Einkanlega þegar ekki fæst að ræða málið eða bera undir þá menn og þær stofnanir, sem kunnugastir eru þessum málum og hafa þekkingu á þeim. Ég tók fram áðan, að margar brtt. eru við þetta frv., og yrði of langt mál að rekja, ef farið væri út í þær allar. Að sjálfsögðu bæri mér það, ef ég ætti einhverja brtt. eða vildi, að frv. næði fram að ganga með einhverjum breyt. En það vil ég ekki, þó ég telji margar þeirra til bóta. Sérstaklega vil ég þó nefna brtt. á þskj. 687 frá þeim hv. þm. Vestm. og hv. 1. þm. Rang. En sökum þess að sakir standa svo, að ég er á móti málinu í heild, mun ég ekki fara út í einstakar brtt., en lýsi aðeins afstöðu minni, sem er nokkuð hreinleg, að ég vil láta fella þetta frv. Ég er sannfærður um, að málum útvegsins er bezt borgið í höndum þeirra manna, sem við þennan atvinnurekstur hafa fengizt að undanförnu, þeir hafa öðlazt reynslu og þekkingu meiri en þeir, sem aldrei hafa nærri komið. Mér kemur ekki til hugar að efast um það, að þessum mönnum þykir vænt um þetta viðfangsefni, sem þeir hafa fengizt við, og þeir hafa persónulegra hagsmuna að gæta, og munn því langmest leggja sig í framkróka um að sjá þessum atvinnurekstri borgið. Það væri því réttasta og sjálfsagðasta leiðin, að ríkið legði þessum mönnum stuðning sinn, svo þeir gætu stundað atvinnurekstur sinn og séð honum farborða, í stað þeirrar miklu viðleitni, sem nú á sér stað, og er gerð til að leggja stein í götu þessara manna, af óvild við frjálsa verzlun. Því ekki að veita þeim útvegsmönnum og fiskeigendum lið, sem reynt hafa að mæta söluerfiðleikunum, sem að steðja, með því að mynda samtök um söluna. Og það var ekki erfiðleikalaust að mynda slík samtök, því hér var um að ræða keppinauta, sem margir hverjir þekktust ekki áður. En þó tókst á stuttum tíma að mynda slík samtök fiskútflytjenda, svo að samlagið ræður nú yfir um 80% af fiskmagninu. Nú er vitanlegt, að starfsemi þessi er tiltölulega ung og margvíslegir örðugleikar, sem steðja að utan að frá — ég tala ekki um þetta heimabakaða böl, sem væri efni út af fyrir sig í langt bindi, — það er eins víst, að þessir menn hafa hug á að bæta þau miklu vandræði, sem stafa af þrengdum markaði; en útgerðin íslenzka hefir aukizt á síðustu árum, svo að framboð á íslenzkum fiski hefir vaxið. Eins og kunnugt er, var snemma á þessu þingi borið fram frv. um fiskiráð, sem átti að hafa það hlutverk að bæta úr þessum ágöllum, átti hvorttveggja í senn, að styðja viðleitni samtakanna um að halda mörkuðum og auka þá, og gera tilraunir um nýja markaði og um nýjar verkunaraðferðir. Þetta frv. hefir mætt mikilli andúð, og ég vil segja frá sumum mönnum óþolandi andúð, að því er hefir virzt fjandskap. Öll rök hníga að því, að það sé að allmiklu leyti óvild til einkarekstrarins í atvinnulífinu, sem veldur því, að margir, ef ekki allir úr stjórnarflokkunum hafa snúizt harðlega gegn till. útgerðarmanna um að bæta úr vandræðum útvegsins. Hinsvegar hafa þessir stjórnarsinnar á prjónunum nýja till. um 1 millj. kr. til nýrra markaðsleita. Um þessa 1 millj. er það að segja, að till. er furðu seint fram komin, og mér er ekki grunlaust um, að hún sé búin til í því skyni að geta sett stóra fyrirsögn í Alþýðubl. og hitt sorpblað stjórnarinnar, Nýja dagblaðið, en hvað verður úr henni í framkvæmdinni?
Ég skal svo ekki hafa þetta erindi lengra, en ljúka máli mínu með því að rifja upp og leggja áherzlu á það, sem ég tel aðalatriðið. Ég hefi ekki orðið annars var en að þau gjöld, sem sjávarútvegurinn hefir fengið frá þessari hv. d. fyrir það að hafa blátt áfram haldið uppi ríkissjóði undanfarin ár og staðið undir þeirri óstjórn, sem verið hefir á fjárstjórn ríkissjóðs, séu megn andúð og óvild gegn málefnum hans og sífelld hiklaus neitun um að rétta hjálpandi hönd. Og ég er sannfærður um, að þetta frv. er sett til höfuðs einkaútgerðinni í landinu, móti vilja og hagsmunum almennings. Ég tel, að brtt. geti ekki bætt svo frv., að það verði að nokkru gagni. Mín till. er því eindregið sú, að frv. verði fellt.