07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (3635)
150. mál, fiskimálanefnd
Jóhann Jósefsson:
Ég ætlast til þess, að hæstv. forseti hafi opin augun og sjái, hve salurinn er vel skipaður. Ég ætlast til þess, að hann viti, að hér er um svo þýðingarmikið mál að ræða, að það er ekki sæmilegt að hafa afgreiðslu eins og nú er ástatt hér. — Ég skal ekki hafa formálann lengri.
Mér þætti vænt um að mega taka upp brtt. á þskj. 684 frá hv. þm. V.-Ísf., sem hann tók aftur. Ég fer fram á þetta, sökum þess að við nánari athugun sé ég, að þessi brtt. er réttlát í sjálfu sér, en það er engin trygging fyrir því, að hún verði sett í frv. í Ed., og þess vegna finnst mér, að fyrst hv. þm. V.-Ísf., sem virðist hafa kynnt sér þetta mál rækilega, hefir skjalfest þessa till. hér, þá komi hún til atkv. Þess vegna vildi ég fá að taka upp 1. till. á þskj. 684. (ÁÁ: Betra að taka upp 2. till.). Má vera. Ég get gengið inn á að taka varatill. á þskj. 694.
Hæstv. atvmrh. gerði m. a. að umtalsefni till., sem ég flutti hér ásamt hv. 1. þm. Rang. Engin af þeim fann náð fyrir augum hæstv. ráðh., og verð ég samt að segja það, að við hv. 1. þm. Rang. reyndum með þessari till. að ganga svo til móts við þá, sem að þessu máli standa, sem okkur fannst sanngjarnt vera og forsvaranlegt var frá sjónarmiði okkar sem fiskframleiðenda.
Ég geri ekki ráð fyrir, að hæstv. ráðh. leggi mikið upp úr áliti okkar á þessu máli, en ég býst við, að reynslan muni kenna hæstv. stj. á sínum tíma, að þessar till. okkar eru alls ekki fram bornar til þess að skemma þann tilgang, sem þetta frv. á að hafa, sem sé að greiða fyrir fisksölunni. Þær eru þvert á móti allar til þess að gera framkv. auðveldari og einfaldari og stuðla að því, að framleiðendur verði fyrir minni óþægindum heldur en í frv. stendur. — Ekki einu sinni sú litla till. okkar, að ákvæðið, sem snertir löggildingu fiskútflytjenda og þessháttar, nái ekki til smásendinga, sem framleiðendur senda til Norðurlanda og Stóra-Bretlands, fann náð hjá hæstv. ráðh. Er þetta þó mjög bagalegt, því að ef það verður ekki lagfært frá því, sem nú er í frv., þá verður margur útgerðarmaðurinn af þægilegri smásölu til þessara landa, sem þeir hafa notið undanfarin ár. Þetta snertir ekkert þann aðaltilgang, sem í þessu frv. felst og varðar útflutninginn til Suðurlanda.
Hæstv. atvmrh. virðist halda í það dauðahaldi, að nauðsynlegt sé að hafa íhlutun um veitingu verkunarleyfa. Ég segi bara ekki annað en: verði honum að góðu og fiskimálan. að glíma við allan flotann og skipta á milli manna verkunarleyfum í hverri veiðistöð. Ég get ekki betur séð en að þetta verði aðeins skriffinnska og hún í mesta máta gagnslaus.
Það er nægilegt vald skilið eftir handa fiskimálan. samkv. þeim brtt., sem við höfum flutt á þskj. 681. Sé ekki hægt að ráða bót á óreglulegri og taumlausri samkeppni með lögunum, eins og þau eru úr garði gerð, með þeim breyt., sem við hv. 1. þm. Rang. höfum flutt, þá er ég viss um, að það er heldur ekki hægt með þeim römmu höftum og föstu skorðum, sem hæstv. ráðh. vili setja á alla framleiðslu og allt framboð á sölu og útflutningi.
Það er eftirtektarvert, að í þessu máli eru bæði hæstv. atvmrh. og sá af hv. þm., sem mest hefir talað um þetta mál, hv. þm. V.-Ísf., sammála um það, að einu skynsamlegu ráðstafanirnar í fiskiútflutningsmálunum séu, að fiskútflutningurinn komist á eina hendi.