08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (3646)

150. mál, fiskimálanefnd

Hannes Jónsson:

Hæstv. fjmrh. hefir lýst því yfir, að ekki væri hægt að greiða úr ríkissjóði 130—150 þús. kr. til hjálpar bændum án þess að séð væri fyrir sérstökum, nýjum tekjum í ríkissjóðinn í því skyni. Hér er ætlazt til, að ríkissjóður leggi fram eina millj. kr. til aðstoðar sjávarútveginum. Ég veit ekki, hvar á að taka fé til þessa, samkv. yfirlýsingu hæstv. ráðh., og þó að ég viðurkenni þörfina á þessari greiðslu, sé ég mér ekki fært að vera með henni, og greiði því ekki atkvæði.