12.11.1934
Neðri deild: 34. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2471 í B-deild Alþingistíðinda. (3681)
139. mál, smjörlíki o.fl.
3681Frsm. (Héðinn Valdimarsson):
Með l. um tilbúning og verzlun með smjörlíki, nr. 32 19. júní 1933, voru ýms ákvæði sett þessu máli viðvíkjandi, og svo til ætlazt, að hægt væri að hafa eftirlit með tilbúningi smjörlíkis, og heimild til að hafa sérstakan eftirlitsmann. Þegar svo átti að fara að setja reglugerð um þetta efni, þótti æskilegt að fá breytt nokkrum atriðum í l. Landbn. hefir því eftir tilmælum landlæknis flutt þetta frv., sem hér liggur fyrir.
Menn munu hafa rekið augun í það, að smjörlíkisverksmiðjurnar auglýsa hver í kapp við aðra, hvert smjörlíkið sé fjörefnaríkast og hver tegundin hafi mest smjörinnihald o. s. frv. Nú er það svo, að það er hægt að bæta allt smjörlíki með fjörefnum, svo að það getur að því leyti jafnazt á við smjör. Frv. þetta fer fram á, að bæta skuli smjörlíkið með A- og D-fjörefnum, að fengnum till. Rannsóknarstofu háskólans, sem hæstv. atvmrh. hlutast til um, að rannsaki smjörlíkið. Þá er ekki lengur um það að villast, hvort smjörlíkið hefir það fjörefnainnihald, sem vera ber. En það er líka hægt að hafa of mikið af fjörefnum eins og hægt er að hafa of lítið af þeim. Rétta leiðin er því sú, sem frv. þetta fer, að ákveða skuli nákvæmlega, hvernig allt smjörlíki skuli bætt fjörefnum. Um skeið var ákveðið, að smjörblöndun smjörlíkisins skyldi vera 5%. En þegar átti að fara að framkvæma þetta, kom í ljós, að ekki var nægilegt smjör til fyrir verksmiðjurnar, og hefir því blöndunin verið nokkuð misjöfn. Það er því gert ráð fyrir því, að atvmrh. geti að vísu mælt fyrir um, að smjör skuli vera í smjörlíkinu, en þá tiltekinn hundraðshluti, sem sé hinn sami fyrir alla, og ekki leyfilegt að láta blöndun fara fram á annan hátt. Þetta miðar að því að gera rannsókn á smjörlíkinu auðveldari og að kaupendurnir geti fengið þá vöru, sem þeir eiga að fá, en ekki hægt að koma fram með villandi auglýsingar þessu viðvíkjandi.
Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að fara frekar út í málið nú, en vil leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr.