20.12.1934
Sameinað þing: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (369)

1. mál, fjárlög 1935

Thor Thors:

Ég þarf ekki að segja margt að sinni. Ég gerði í gærkveldi grein fyrir þeim brtt., sem ég hefi flutt við fjárlagafrv. En vegna þess, að eftir að ég hafði lokið máli mínu, barst mér í hendur ein brtt. frá hv. fjvn., um ábyrgð til rafveitu á Ísafirði og í Eyrarhreppi fyrir allt að 510 þús. kr. láni, þá sá ég ástæðu til þess að gera nokkra breyt. á þeirri ábyrgðarheimild, sem ég flyt hér á þskj. 815, um ábyrgð á láni fyrir Stykkishólmshrepp. Hv. fjvn. vill binda ábyrgðarheimildina fyrir Ísafjörð við 85% af kostnaðarverði, og til samræmis við það hefi ég flutt brtt. á þskj. 915, undir I, að við ábyrgðarheimildina fyrir Stykkishólmshrepp sé bætt þessu sama, að hún nái ekki til nema 855% kostnaðarverðs. Ég geri þetta meðfram af því, að ýmsir hv. þm., sem í sjálfu sér hafa tjáð sig hlynnta því, að þessi heimild fengist, hafa ekki talið sig geta fylgt henni sökum þess, að nú ætti að stöðva ábyrgðarheimildir til rafveitna. Þeir hafa jafnframt látið þess getið, að t. d. myndi þessi ábyrgð fyrir Ísafjörð ekki verða veitt. Nú sé ég, að hér eru orðin sinnaskipti hjá hv. meiri hl. fjvn., og ég tek það að sjálfsögðu sem fyrirboða þess, að hinir einstöku þm., sem hafa tjáð sig fylgjandi ábyrgðinni til Stykkishólms, hafi nú frjálsar hendur með að greiða henni atkv. Og til þess að þessi tvö tilfelli, sem hér er um að ræða, séu nákvæmlega eins, er þessi brtt. mín flutt. Ég vil benda á það, að ef ástæða er til þess að veita Ísafirði þá aðstöðu, sem hér er gert ráð fyrir, þá er sú ástæða ekki síður, heldur miklu fremur fyrir hendi hvað Stykkishólm snertir. Stykkishólmur hefir ekki fengið neina ábyrgð til þess að koma af stað framkvæmdum hjá sér, en Ísafjörður aftur á móti stórfelldar ábyrgðir til þess að koma upp skipastól. Á ég þar við Samvinnufélag Ísfirðinga, sem fyrst og fremst komst á laggirnar fyrir tilstyrk ríkisvaldsins. Hinsvegar hefir samvinnuútgerðin í Stykkishólmi enga slíka aðstoð fengið. Ennfremur hefir Ísafjörður fengið stórkostlega ábyrgð til hafnargerðar. Þetta sýnir, hve misskipt hefir verið gæðunum milli þessara staða. Og af þeim ástæðum, auk allra þeirra, sem ég hefi áður tilgreint, sem gera rafveitu í Stykkishólmi ákaflega nauðsynlega, þá trúi ég því ekki fyrr en ég þreifa á því, að þetta sanngirnismál Stykkishólms nái ekki samþykki. Ég vil taka hið breytta viðhorf hv. fjvn. sem fyrirboða þess, að ábyrgðin til Stykkishólms nái fram að ganga.