28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2671 í B-deild Alþingistíðinda. (3698)
161. mál, síldarútvegsnefnd
Jakob Möller [óyfirl.] Mér finnst böndin berast að hv. þm. Ísaf. um það, að hann hafi verið nokkuð djarfur, þegar hann sló því föstu hér í sinni fyrstu ræðu, að till., sem koma fram í þessu frv. um fiski- og síldarmálan., eða hvað það nú kann að heita, séu alveg eins, eins og hann orðaði það, og till., sem brezka síldarmálan. hefir gert. Eftir því sem hægt er að toga út úr hv. þm., þá kemur í ljós, að till. þessarar brezku n. eru nú talsvert á við og dreif og ekki í því formi, að hægt sé að bera þær saman við frv. En það hefir þó komið í ljós, að þótt hv. þm. státi af því, að þessi n. hafi orðið að aðhyllast höft á síldarsölunni, þá hafi hún ekki orðað nokkra till. svipað því sem þetta frv. felur í sér, að framkvæmdin verður eins og hreinasta einkasala. Því að þótt í þessum till. sé rætt um að setja lágmarksverð á síld, þá er það út af fyrir sig hvergi nærri eins afdrífaríkt eins og fyrirkomulagið í þessum l., þar sem bókstaflega eru tekin öll ráð af útflytjendunum; þótt svo eigi að heita í orði kveðnu, að sérstakir útflytjendur skuli löggiltir, þá er þeirra olnbogarúm svo lítið, að þeir eru í raun og veru ekkert annað en verkfæri í höndum n. Hv. þm. hefir ekki vísað til neinna svipaðra till. af hálfu brezku n., og hið eina sameiginlega með þessum till. og frv. er það, að í báðum tilfellum er gert ráð fyrir skipulagi, sem hagkvæmara megi reynast en ef allt er látið laust og óbundið. Það er misskilningur, ef hv. þm. heldur, að sjálfstæðismenn séu mótfallnir öllum tilraunum til skipulagningar í þessum málum. Og þessi misskilningur er óþarfur, því að hann veit hv. þm., að fiskútflytjendur hafa þegar myndað með sér skipulag með aðstoð löggjafans. Það er ekki síður misskilningur, að þessi skipulagning eigi sér stað vegna þess, að hin frjálsa samkeppni hafi gefizt upp. Það eru einungis yfirstandandi tímar og þetta ólag á verzluninni, sem er undirrótin. Þetta ólag er tímabundið og mun lagast, er stundir liða. — Hv. þm. kvað sig að ýmsu leyti ósammála meðferð þessara mála í Bretlandi, og sýnir það eitt með öðru, að ekki ber nú nákvæmlega saman áliti n. og því, sem fram kemur í þessu frv. Hann sagði hv. þm., að brezka n. hefði slegið því föstu, að einstaklingsverzlunin væri ekki fær um að afla nýrra markaða. Við hér höfum reynt einkasölu og ekki orðið varir við, að hún opnaði nýja markaði, en hún lokaði gömlu mörkuðunum og þrengdi að útflutningnum af þeirri ástæðu. Ég man líka eftir sölunni á þeim tíma, þegar síldareinkasalan starfaði. Þá var það aðeins einn einasti maður, sem beitti sér fyrir því að opna nýjan markað fyrir síldina, þó að það vitanlega kæmi að mjög litlum notum fyrr en síldareinkasalan var lögð niður. En nú er svo komið, að þessi markaður, sem þessi maður í raun og veru opnaði, er aðalsíldarmarkaður landsins. Svo að þetta staðfestir það, sem hv. þm. Ísaf. var að tala um, að það væri e. t. v. öðru máli að gegna um Breta og Íslendinga og möguleika þeirra, undir frjálsu fyrirkomulagi eða einkasölu. Reynsla okkar sýnir, að einkasölufyrirkomulag er ekki líklegra til þess að opna nýja markaði heldur en einstaklingsframtakið. Það er alveg áreiðanlegt.
Hv. þm. Ísaf. tók heldur dauflega í það, að birta í nál. útdrátt úr þessari skýrslu, sem hann hefir stuðzt við. Mér hefði eigi að síður þótt það ákaflega æskilegt, að það hefði verið gert. Ég skil það, að hún muni vera svo umfangsmikil, að erfiðleikar séu á að birta hana í heilu lagi, en mér virðist, að úr því að hv. þm. hefir leyft sér að taka útdrátt úr henni, þá ætti að vera hægt að taka meira, og það á þann hátt, að menn hefðu þá meiri ástæðu til þess að byggja á því. Sannleikurinn er sá, að það er nokkuð nálægt því að geta verið misbeiting á aðstöðu, að þegar mælt er með einhverju máli, þá sé vísað í útlent rit, sem ekki er til nema í mjög fárra höndum, og e. f. v. ekki er til nema eitt einasta eintak af á landinn. Þeir, sem á slíkar tilvitnanir hlusta, geta þá ekki kontrollerað, hvort rétt er skýrt frá, eða að hve miklu leyti er skýrt frá því, sem ritið inniheldur. Nú var það svo, að fyrstu till., sem hv. þm. Ísaf. greindi frá, voru allt annars efnis en það, sem hér um ræðir í þessu frv., sem fyrir liggur, svo að þar fannst ekki nokkurt sameiginlegt atriði. Þetta kann nú að vera tilviljun, en það er undarleg tilviljun a. m. k., og ég tel, að þessum hv. þm. ætti að vera áhugamál að færa þeim orðum sínum nokkurn stað með frekari útdrætti úr skýrslunni, að till. n. séu sambærilegar við þá skýrslu, sem hér um ræðir. Ég fyrir mitt leyti véfengi það eindregið.