05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2687 í B-deild Alþingistíðinda. (3716)
161. mál, síldarútvegsnefnd
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Ég geri ráð fyrir, að þeir menn, sem eiga við ákvæði frv. að búa, ef að l. verður, sannfærist fljótlega á því, að það er rétt, sem haldið hefir verið fram, að þetta frv. er fyrst og fremst frv. um einkasölu á síld. Það er því dálítið einkennilegt, þegar hv. frsm., þm. Ísaf., er að tala um, að einkasala sé í frv. aðeins þrautalending; það sé yfirlýst af hæstv. ráðh., að til hennar eigi aðeins að grípa, er aðrar leiðir þryti. Þetta er dálítið eftirtektarvert, þegar þess er gætt, að þessi hv. þm. hefir bæði á Alþ. og í blöðum haldið því fram, að eina rétta lausnin væri sú, að sala síldarinnar væri í höndum ríkisstj., þ. e. í einkasölu. Þessi hv. þm. hefir ætíð haldið því fram, að öll verzlun ætti að vera í einkasölu, og hans flokkur mun hafa verið honum nokkurn veginn sammála í því efni, og var ekki síldareinkasalan sæla afnumin gegn vilja þeirra herra? Og ég geng þess ekki dulinn, að enn í dag halda þeir fast við þá skoðun, að einkasala á síld sé það fyrirkomulag, sem beri að stefna að, og ég held, að það komi yfirleitt ekki frá hjartarótunum, þegar þeir segja, að einkasölu eigi aðeins að taka upp, ef aðrar leiðir þrjóti. Það má vera, að slíkt geti komið fyrir, en án þess að svo fari, geta þeir sagt, að allar aðrar leiðir en einkasala séu þrotnar, og til þess er leikur gerður með þessu frv. Þessar aðrar leiðir eru því ekkert annað en krókaleiðir. En það er eftirtektarvert, hvernig þessi ummæli hv. þm. brjóta í bág við yfirlýsingar flokksmanna hans, sem hafa haldið því fram, að eina leiðin til þess, að síldarútgerðin gæti borið sig og gefið góðan arð, væri sú, að setja á fót einkasölu á henni. Mér finnst það miður sæmilegt af þessum mönnum að halda því fram nú, að þetta sé þrautalending, þegar þeir hafa til þessa talið, að einkasala væri eina rétta leiðin.
Ég efast um, að það verði tryggt með löggjöf, að síldarútvegurinn á hverju ári geti borið sig. Þeir, sem til þess atvinnuvegar þekkja, vita, að hann er óviss og áhættusamur, og þess vegna er með l. hvorki hægt að tryggja það, að útgerðin eða síldarsöltunin gefi arð. Fyrir nokkrum árum var öll okkar síldarsala í Noregi og Svíþjóð. Sala matjessíldar til Póllands og Þýzkalands þekktist ekki þá. Nú er sú breyt. á orðin, að höfuðmarkaður fyrir okkar síld er fluttur til Mið-Evrópu, en síld sú, sem notuð er í Svíþjóð og Noregi nú, er að miklu leyti veidd af Norðmönnum og Svíum sjálfum. Ég veit, að það eru uppi mjög sterkar raddir um það, að rétt sé að hafa eitthvert samlag um sölu á matjessíld, en að sala á grófsaltaðri síld eigi hinsvegar að vera frjáls. Ég veit ekki um afstöðu hv. þm. Ísaf. til þessa spursmáls, en ég vil spyrja hann að því, hvort hann geti fallizt á, að sett væru ákvæði í frv. um það, að verzlun með grófsaltaða síld skuli algerlega vera frjáls. — Það er sérstaklega eitt atriði, sem útilokar það, að hvorki Alþ., ríkisstj. né félagsskapur geti sagt um fyrirfram, hve mikið óhætt er að salta á hverju sumri af grófsaltaðri síld, og það er það, að okkur er það hulið, hvað Norðmenn og Svíar, Danir, Finnar, Eistlendingar og Þjóðverjar fiska mikið af grófsaltaðri síld utan við landhelgina á hverju ári. Það er talið, að síðastl. ár t. d., þegar gerð voru út á veiðar um 80 skip hér frá landi, þá hafi hinsvegar verið um 200 skip frá þessum þjóðum utan við landhelgina. Nú má gera ráð fyrir, að fleiri þjóðir kunni að fara að stunda þessar veiðar, og að þær þjóðir auki sína veiði, sem áður hafa stundað hana. Þess vegna verður ekki hægt fyrirfram að segja um það, hve mikið Íslendingar geta selt af grófsaltaðri síld á næsta ári. Hinsvegar er það vitað, að sú verkunaraðferð, sem útlendu veiðiskipin viðhafa er rófsöltun, en ekki matjessöltun. Hv. þm. Ísaf. hristir höfuðið. Það kann að vera, að þessi skip noti matjessöltun að einhverju leyti, en það er erfiðari aðferð, sem útheimtir meiri vinnukraft og betri geymslu en yfirleitt er kostur á á þessum skipum. Það kann að vera, að Þjóðverjar hafi þó eitthvað notað þá aðferð, en mér er tjáð, að Norðmenn, Svíar og Danir grófsalti aðeins. Það er vitanlegt, að matjessöltunin er ákaflega áhættusöm og erfið, og er mikið undir veðráttu komið, hvernig sú verkunaraðferð tekst. Útlenda flotanum er nauðsynlegt að fá sem mestan afla á sem stytztum tíma, af því þeir veiða utan við landhelgina og hafa ekki möguleika til að fara með aflann inn á víkur og firði til þess að verka hann, og því síður, að þeir megi veiða þar. Af þessu leiðir, að útlendi flotinn hefir styttri veiðitíma en okkar skip, og af því leiðir líka, að þeir neyðast til að nota þá veiðiaðferð, sem fljóttækari er.
Ég hygg, að hv. þm. Ísaf. vilji ekki halda því fram, að hægt sé að segja fyrirfram, hve mikið kvantum af grófsaltaðri síld óhætt sé að veiða á hverju ári, þegar vitað er, að 200 skip eru að veiðum utan við landhelgina. Þessi skip geta veitt svo mikið kvantum af síld, að ekki seljist sú síld, sem ísl. veiðimenn hafa fengið söltunar- og veiðileyfi fyrir, og einnig þó að veiðileyfin séu ekki fullnotuð. Hinsvegar getur líka komið fyrir, að þó veiði- og söltunarleyfi séu fullnotuð, þá vanti samt síld á markaðinn, af því að svo mikil óvissa er um veiðimagn hinna erlendu skipa. Þetta gerir það að verkum, að ekki er hægt að setja í l. ákvæði, sem tryggja markað á síld. Þó sett væru ákvæði um veiðileyfi og söltunarleyfi, þá er það tilviljun ein, ef þau stæðu heima fyrir markaðinn. Framleiðslan gæti orðið of mikil, þó veiðileyfin væru ekki notuð, en það kemur af því, að markaðurinn gæti verið yfirfylltur af grófsaltaðri síld, sem veidd væri utan landhelgi; eins gæti orðið um síldarskort að ræða, þó leyfin væru fullnotuð.
Ég æski þess, að hv. þm. Ísaf., sem er einn af þeim, sem flytja frv., skýri frá því, eftir að hann hefir á ný athugað málið, hvort hann telur fært að undanskilja grófsaltaða síld frá ákvæðum frv., með þeim forsendum, að með lagaákvæðum sé ómögulegt að tryggja það, að sú síld, sem leyft yrði að veiða, verði seljanleg, né vita það, hvaða kvantum á hverjum tíma sé hæfilegt. Ég veit, að þessi hv. þm., sem hefir fengizt við síldarsöltun, þó ekki hafi verið fyrir hann sjálfan, hann veit það, að verð á síld, hvort sem það er grófsöltuð síld eða matjessíld, fer ekki eftir því, hve mikið kvantum er verkað. T. d. veit ég það, að þó að saltað væri 1933 yfir 100 þús. tunnur af síld, en 1934 ekki nema um 60 þús. tunnur, þá fengu sumir meira verð fyrir sína síld 1933 heldur en 1934. Þó að meðalverðið hafi e. t. v. verið lægra 1933, þá get ég bent á sölur, sem fóru fram 1933, sem fyllilega stóðust samanburð við sölurnar 1934.
Í grg. frv. er sagt á þá leið, að nauðsynlegt sé að útvega nýja markaði fyrir síld og finna upp betri verkunaraðferðir. Þetta er út af fyrir sig rétt, en það þarf hvorki að setja það í grg. eða frv. Slíkt er vitanlega mjög æskilegt og nauðsynlegt vegna afkomu síldarútvegsins, en það vill nú svo til, að við höfum opinn markað fyrir síld á næsta ári, ekki með því að koma síld okkar út í nýja kaupendur, heldur með því að auka og útbreiða neyzlu á síldinni í þeim löndum, sem þegar eru opin og við verzlum við. Það hefir farið svo raunalega fyrir okkur með þá markaði, sem við höfum notað áður, að þeir eru því miður óðum í rénun. Það má gera ráð fyrir, að markaður okkar í Svíþjóð sé alveg á förum. Það er ekki vafi á því, að við höfum misst þessa markaði vegna þeirrar innilokunarstefnu, sem við höfum rekið, með því að útiloka norska og sænska veiðimenn héðan úr landi frá þeirri aðstöðu, sem þeir áður höfðu við Norðurland, aðallega á Siglufirði, svo þeir tóku það ráð að hafa leppa. Þessi innilokunarstefna hefir leitt til þess, að Norðmenn, Svíar og Finnar hafa neyðzt til að fjölga þeim skipum, er þeir senda hingað til veiða utan landhelgi, svo mjög, að nú hafa þeir þrefalt fleiri skip en við. Og þó nú megi segja, að við verkum og seljum alla þá síld, sem kemur á land, þá er innilokunin samt tvíeggjað sverð, þegar hún gerir það að verkum, að þjóðir þær, sem keypt hafa okkar síld, fara sjálfar að auka sína veiði og minnka kaup við okkur. Ég tel, að hæstv. ríkisstj. og þeir, sem að frv. standa, eigi ekki síður að reyna samninga við þessar þjóðir um það, hvort þær vilja ekki heldur kjósa þá aðferð, sem er áhættuminni, að kaupa ísl. síld, heldur en að senda hingað sinn skipaflota. Væri það heppilegra fyrir báða. Reynslan hefir sýnt, að sú útgerð þeirra ber sig ekki öðruvísi en með ríkisstyrk. Þess vegna álít ég, ef það væri hægt, að réttara væri að fara þá leið heldur en að þröngva þeim, er þennan atvinnuveg stunda, inn á þá sömu leið og til þeirra sömu afleiðinga og síldareinkasalan um árið færði landsmönnum. Ég verð fyrir mitt leyti að telja, að til þess að finna rök fyrir frv. verði annaðhvort að hafa sýnt sig, að sú aðferð, sem höfð hefir verið á undanförnum árum, hafi leitt til taps, eða þá, að einhver ný ástæða sé komin til sögunnar fyrir því að lögþvinga þetta fyrirkomulag, eða í þriðja lagi, að útgerðarmenn sjálfir æski eftir þessari skipan, en nú er það upplýst, að slíkt er ekki fyrir hendi. — Það var sérstakt atvik, sem olli því, að matjessíldarsamlagið var stofnað síðastl. sumar, og ef slíkt kemur fyrir aftur, er vitanlega sjálfsagt að taka það til greina. En mér virðist ekki eðlilegt, að Alþ. fari hér að taka fram fyrir hendurnar á þeim mönnum, sem í þessu máli stefna aðeins til þess að ná því takmarki, sem hv. þm. Ísaf. vitanlega ber fyrir brjósti, sem er einkasala á síld. Og mér virðist, að það væri sæmilegra fyrir þennan hv. þm. að koma fram og viðurkenna þetta hreinskilnislega heldur en að fara þá krókaleið að lýsa því fyrst yfir, að þetta sé þrautalendingin, ef hann sjálfur aðeins ætlar að lenda í þeirri víkinni.