05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2694 í B-deild Alþingistíðinda. (3721)

161. mál, síldarútvegsnefnd

Pétur Ottesen:

Ég vildi aðeins leiðrétta útúrsnúning hv. þm. Ísaf.

Á bak við þá, sem höfðu með síldarsöluna að gera, stóðu síldarútvegsmenn sjálfir, en samkv. þessu frv. á að gera þessa n. pólitíska, í staðinn fyrir, að samkv. bráðabirgðal. var hún byggð upp af síldarútvegsmönnum sjálfum. Þetta er sá reginmunur, sem hér er um að ræða.