20.12.1934
Sameinað þing: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
1. mál, fjárlög 1935
Jón Baldvinsson:
Hv. 11. landsk. lauk ræðu sinni með því, að það væri freisting fyrir sig að ræða um fjárl., sem honum sýndust mótuð af flokkapólitík og hlutdrægni. Þetta stafar sennilega af því, að honum finnst þunglega tekið í sumar þær till., sem hann og hans flokksmenn hafa borið fram við 2. umr. um fjárl. En þess er að gæta, að flokksmenn hans hafa komið að í fjvn. þeim till. mörgum, sem þeir sérstaklega vildu koma að, og það er ekki talað um þær till., sem enginn ágreiningur hefir orðið um. Það er aðeins talað um þær till., sem ágreiningur hefir orðið um, og ég er a. m. k. svo gamall á þingi, að ég man eftir að hafa borið fram brtt. við fjárl., bæði í Nd. og Ed. og það fjöldamargar till. við allar umr. fjárl., og þær hafa fengið, þá útreið að vera allar steindrepnar. Ég man eftir því, að einu sinni var samþ. 100 kr. till., sem ég bar fram. Þeir voru þá orðnir svo blóðugir, að þetta slapp gegnum greipar á flokksmönnum hv. 11. landsk. Svo að þegar á að fara að tala um flokkapólitík og hlutdrægni, þá er hægt að rifja margt upp. Annars er það vitanlegt, að hv. 11. landsk. og hans flokkur eiga mikið í fjárl. Það mótast alltaf ákaflega mikið í fjvn. og jafnvel þó að hún klofni eins og í þetta sinn. Ég ætla annars ekki að fara að halda eldhúsræðu í sambandi við þessi fjárl., en það voru síðustu orð hv. 11. landsk., sem gáfu mér tilefni til að segja þetta.
Ég ætla að fara nokkrum orðum um þær brtt., sem fyrir liggja, og m. a. þær brtt., sem hv. 11. landsk. flutti. Það er þá t. d. till. um að styrkja Halldór Jónsson stúdent, sem stundar nám í Stokkhólmi og hefir verið þar 2 síðustu árin. Það er rétt hjá hv. 11. landsk., að þetta er efnilegur maður. Það eru heldur ekki þær sömu fjárhagslegu ástæður fyrir hendi hjá þessum manni eins og þegar hann hóf nám. Þó faðir hans á þeim árum gæti stutt hann til náms, þá getur hann það sennilega ekki núna. Þeir, sem hafa sveitaverzlun, hafa náttúrlega orðið að kenna á kreppunni eins og aðrir, og þó að þeir kynnu að fá eitthvað af kreppulánasjóðsbréfum, þá ganga þau sennilega ekki til þess að nota þau til meðgjafar erlendis upp í námskostnað. Þessi piltur er vissulega þess verðugur, að hann sé styrktur, en mér finnst bara ekki rétt að taka styrkinn inn í fjárl. að þessu sinni, og þó ég mikillega vilji stuðla að því, að hann verði styrktur, þá vil ég, að það verði menntamálaráðið, sem gerir það, og ég vil stuðla að því, ef ég get haft nokkur áhrif í þá átt, að hann fái styrk þaðan. Enda er það líka tryggari stuðningur, ef hann annars kæmist þar inn. Þá ætti hann það síður undir högg að sækja að fá styrk á hverju ári. Það gengur misjafnlega vel, og ef hljóðið er þannig í þm., að strika allt slíkt út, þá getur það vel orðið, og þá verður hann að byrja á nýjan leik að reyna að afla sér þess fjár, sem hann hefir gert sér vonir um að fá frá þinginu.
Ég verð nú að syndga gegn þingvenjum og minnast hér á mann, sem ekki liggur fyrir till. um ennþá. En einhver hv. þm. talaði um að flytja till. um styrk til Jóns Blöndals. Ég kysi heldur, að menntamálaráðið veitti þann styrk. Ástæður þessa manns eru svo örðugar, að ég skil ekki í því, að ráðið neitaði honum um slíkt. Ég skal ekki lýsa þessum ástæðum, bróðir hans er nýlátinn, og sjálfur hefir hann verið mikið veikur um langan tíma, en er nú að hjarna við, en vantar fé til þess að geta lokið námi. Ég vildi líka mælast til þess, að menntamálaráðið styrkti þennan mann, og því hefi ég ekki borið fram till. um sérstakan styrk til hans.
Þá skal ég minnast á styrkinn til sundlaugar í Vestmannaeyjum. Hv. 6. þm. Reykv. sagðist hafa eitthvert plagg upp á vasann, sem sýndi, að ég og ýmsir flokksmenn mínir hefðu verið þessari fjárveiting fylgjandi. Þetta er rétt, og ég mun reyna að stuðla að því, að þessi fjárveiting verði tekin upp í næstu fjárl., en ég sé mér ekki fært að vera með henni nú.
Að lokum vil ég fara nokkrum orðum um fyrstu brtt. á þskj. 813, frá minni hl. fjvn., um veikindastyrk til Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns. Það er vafalaust rétt, sem hv. 1. þm. Skagf. sagði um veikindi þessa embættismanns, og eins hitt, að honum sé um megn að kljúfa þann kostnað, sem af þeim leiðir. Það hefir einu sinni áður verið veittur slíkur veikindastyrkur til sýslumanns, sem líkt stóð á fyrir. En það var gert eftir á, og upphæð styrksins miðuð við kostnað þann, sem varð af veikindum hans. Ég væri því meðmæltur, að þannig yrði þessu fyrir komið einnig hvað snertir sýslumann Skagfirðinga, Sigurð Sigurðsson. Hitt tel ég verri aðferð, að taka upp styrk eins og þann, sem hér er farið fram á, og gæti það skapað óheppilegt fordæmi. Ég mun því ekki sjá mér fært að greiða atkv. með þessari brtt., þó að hinsvegar mæli sterk rök með því, að þessi embættismaður verði styrktur.
Ég hefi svo ekki fleira að segja að þessu sinni, ég vildi minnast á þessa persónustyrki, af því að það hefir verið orðað, að ég væri riðinn við þá, og hefi ég nú gert grein fyrir afstöðu minni.