19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (3753)
69. mál, eftirlit með sjóðum
Héðinn Valdimarsson:
Ég á hér litla brtt. á þskj. 880, sem ég vil mæla með, að verði samþ., ef frv. verður á annað borð samþ. Brtt. þessi er um það eitt, að í stað tveggja eftirlitsmanna, sem frv. gerir ráð fyrir, þá verði þeir þrír. Er það til meira samræmis við flokkaskiptingu í þinginu að hafa þá þrjá heldur en tvo. Hinsvegar tel ég, að ekki eigi að samþ. þetta frv., vegna þess aðallega, hve skammt það nær. Hefi ég því borið fram rökst. dagskrá í málinu á þessa leið:
„Þar sem ríkisstjórnin hefir með höndum skýrslusöfnun og annan undirbúning til löggjafar um opinbera sjóði, þykir deildinni ekki rétt að afgreiða málið án þess að þeim undirbúningi sé lokið, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“
Þessa dagskrá vænti ég, að hv. d. samþ., og ber því að skoða brtt. mína aðeins sem varatill.