19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2482 í B-deild Alþingistíðinda. (3756)

69. mál, eftirlit með sjóðum

Héðinn Valdimarsson:

Ég veit ekki, hvort það stafar af minnisleysi hjá hv. þm. G.-K., að hann falar svo sem það sé í fyrsta sinni á þessu þingi, að hugmynd sú, sem liggur á bak við þetta frv., kemur fram. Við jafnaðarmenn höfum tvisvar flutt frv. um eftirlit með opinberum sjóðum, og í síðara skiptið var samþ. þál. um það, að ríkisstj. safnaði skýrslum um opinbera sjóði, og greiddi hv. þm. G.-K. atkv. með þeirri brtt. Því fer fjarri, að „Rauðka“ vilji nokkuð ásælast þetta mál. Dagskrártill. mín er fram komin fyrir það eitt, að málið er í rannsókn hjá ríkisstj. Því er gersamlega ótímabært að vilja afgr. þetta mál á þessu stigi, enda er það svo, að frv. þetta gengur mikið styttra en þörf er á, og ég get ekki betur skilið en að ástæðan fyrir því, að hv. sjálfstæðismenn sækja svo fast að koma frv. fram, hljóti að vera sú, að flm. frv. er úr þeirra flokki. Það er áður viðurkennt í þessari hv. d., að sú rannsókn á þessu máli, sem stj. hefir verið falin, sé nauðsynleg, og get ég ekki annað skilið en að hv. d. verði sjálfri sér samkvæm í því efni, er til atkvgr. kemur.

Hvað það snertir að þetta mál sé ekki pólitískt, þá hefir það, sýnt sig áður, að lánveitingar úr opinberum sjóðum geta verið pólitískar, og nægir í því sambandi að nefna hið fræga Hlaðgerðarkotsmál. Slík dæmi benda ótvírætt til þess, að full þörf sé á því fyrir stjórnmálaflokkana að hafa þátttöku í eftirlitinu.