19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2483 í B-deild Alþingistíðinda. (3757)

69. mál, eftirlit með sjóðum

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ef dagskrártill. hv. 2. þm. Reykv. verður felld, kemur til atkv. brtt. mín á þskj. 882. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þessa brtt., því ég gerði grein fyrir henni í gær, en hún er um það, að gefa fjmrh. heimild til að setja reglugerð uni ávöxtun opinberra sjóða, sem tryggi það, að sjóðirnir séu alltaf ávaxtaðir á sem öruggastan hátt. Ég tel því alvel sjálfsagt, að brtt. þessi verði samþ., ef frv. þetta verður að l.

En úr því að ég stóð á fætur, skal ég taka það fram, að ég ætla að greiða atkv. með dagskrártill., vegna þess að felldar voru þær brtt., sem ég bar fram við frv. við 2. umr. Ef þær hefðu verið samþ., þá taldi ég frv. það bætt, að sómasamlegt væri að gera það að l. En í þeim búningi, sem frv. er nú, tel ég það svo lítilsvert, að ekki sé rétt að samþ. það, heldur eigi það að bíða.