20.10.1934
Efri deild: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (3770)
76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Eins og hv. þdm. hafa séð, hefir meiri hl. fjhn. flutt frv. þetta eftir tilmælum hæstv. fjmrh.
Ég vil strax taka það fram, að nm. hafa áskilið sér rétt til að hafa óbundnar hendur í einstökum atriðum frv.
Þetta mál er talsvert umfangsmikið og grípur mjög inn í verzlunarreksturinn eins og hann er nú. Ég álít, að frv. stefni í rétta átt, þó að ég hinsvegar viðurkenni, að talsverðan undirbúning þurfi að gera áður en öllu, sem frv. ræðir um, verði komið í framkvæmd. Það fer fram á að taka einkasölu á þeim vöruflokkum, sem um getur í 1. gr. frv., og innflutningur á þessum vörum skiptir nú millj. kr. árlega. Frv. fylgir nokkurt bráðabirgðayfirlit um innflutning þessara vöruteg. árið 1933, og eru þar taldar vörur fyrir rúmar 2 millj. kr. Í þetta yfirlit var þó ekki hægt að ná mótorum til báta og skipa, sem að verði munu nema nokkrum hundr. þús. kr. Þetta frv. má því segja, að grípi yfir innflutning upp á talsvert hátt á 3. millj. kr. árlega, ef ekki meira.
Kost þessarar einkasölu tel ég það, að með henni er hægt að tryggja það, að alltaf séu til fyrirliggjandi hæfilegar birgðir af hverri vöruteg. og hæfilegar tegundir. Með þessu mætti og standandisera bifreiðar og mótorvélar og gera ódýrari fyrir notendur og einfaldara að útvega varahluti.
Ég man ekki, hver ódæmafjöldi er nú til af bifreiðateg. hér á landi. Þeir, sem hafa verið svo ólánssamir, að kaupa þær teg. af þeim, sem fátt er til af í landinu nú, eiga mjög erfiða aðstöðu um að ná í varahluti til þeirra. Eigendur þeirra bifreiða verða oft að bíða mánuðum saman eftir varahlutum í þær frá verksmiðjunum. M. a. er hægt að komast hjá þessum ókostum með einkasölu, að því er snertir bifreiðar og e. t. v. einnig um vélar í báta, sem svipað er hægt að segja um og bifreiðar. Hingað til lands hafa verið fluttar ýmsar teg. af þeim, sem svo hafa reynzt misjafnlega. Það hefir því miður of mikið verið gert að því, og með lítilli fyrirhyggju, að kaupa vélar, sem ekki er hentugt að nota af greindum ástæðum, og sala þeirra hefir of oft farið eftir dugnaði seljenda til að koma þessum hlutum inn á menn. En ef ríkið hefði einkasölu á þessum hlutum, mundi það hafa allmiklar birgðir af varahlutum til þeirra, svo að tiltölulega stuttan tíma þyrftu menn að bíða eftir vélahlutum, sem þá vantaði. A. m. k. þyrftu þeir ekki að bíða mánuðum saman eftir þessum hlutum frá útlöndum.
Oft hefir áður verið rætt um það, að leyfa aðeins innflutning á fáum tilteknum teg. bátamótora. Ég álít, að ríkið eigi að stefna að því að taka sölu þessara véla í sínar hendur. Hitt er annað mál, að til þess þarf talsverðan undirbúning og til þessa undirbúnings hæfa menn.
Meðal þeirra vara, sem hér er um að ræða, eru vörur, sem ekki eru að öllu leyti þarfar. Þó að rafmagnsáhöld séu nauðsynleg, eftir því sem notkun rafmagns eykst, þá er þó munur á verði þessara áhalda. Sum þeirra eru einföld og ódýr, en önnur líka dýr og fín, sem ekki eru fyrir aðra en efnað fólk. Á þessum tímum, þegar þarf að spara innflutning til landsins, ber þess einnig að gæta, að ekki sé keypt annað en það, sem landsmenn hafa efni á að nota. Ríkið getur haft hæfilegan „lager“ af rafmagnsáhöldum í landinu. En ég ætla, að þegar margir kaupmenn og heildsalar flytja inn þessa hluti, þá muni vera óþarflega mikið af fé landsmanna bundið í birgðum af þessum vörum.
Þetta er svipað og með tóbakssöluná, áður en tóbakseinkasalan tók til starfa. Áður en hún tók til starfa, voru birgðir af þeirri vöru miklu meiri en á eftir. Einkasalan varð því m. a. til þess, að minna af fé landsmanna var bundið í þessari vöruteg.
Ennfremur mundi ríkið vafalaust geta fengið betri lánskjör erlendis en einstakir menn, og er það kostur við þetta fyrirkomulag.
Það, sem e. t. v. mætti finna að frv., er, að það sé óþarflega yfirgripsmikið og í því of rífar heimildir handa ríkisstj., um að hún geti, hvenær sem hún sér sér fært, tekið þessa verzlun í sínar hendur, og að ekki ætti að veita þessar heimildir fyrr en undirbúningur hefði verið gerður. En ég álít, að þessar heimildir þurfi stj. að hafa, til þess að hún, áður en hún hefst handa um undirbúning, geti verið viss um, að hún geti notað þann undirbúning og fái þetta vald.
Ég geri ráð fyrir, að við flm. frv. tökum liðlega í till. um breyt. og lagfæringar á því, og teljum það rétt, að ríkið taki í sínar hendur verzlun með þessar vörur, svo að hún fari vel úr hendi, þegar nauðsynlegur undirbúningur hefir verið gerður.
Ég geri ekki ráð fyrir, að ríkissjóður þurfi að binda mikið af eigin fé í slíku fyrirtæki, heldur býst ég við, að stj. muni ekki takast verr að fá lán til þessara hluta heldur en kaupmönnum. Ríkissjóður hefir ekki bundið neitt fé í fyrirtæki eins og tóbakseinkasölunni.
Ég mæli með því, að frv. gangi til 2. umr. N. hefir í heild sinni lesið frv. yfir, þó að kannske megi segja, að hún hafi ekki athugað það nægilega enn. En ég álít, að ekki þurfi að vísa því til n. aftur, heldur munu flm. þess halda áfram að athuga það og taka til greina leiðbeiningar því viðvíkjandi.