20.12.1934
Sameinað þing: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (378)
1. mál, fjárlög 1935
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Ég vil leyfa mér að beina fáeinum orðum til hv. þm. V.-Húnv. Honum er ákaflega mikið áhugamál að koma mönnum í skilning um það — en gengur ákaflega illa —, að ekki hafi verið heimilt samkv. undirskriftum meiri hl. þm. úr báðum d. 1933 fyrir þáv. landbrh., Þorstein Briem, að greiða mjólkurbúastyrkinn samkv. l. 1933. Honum er þetta mikið áhugamál, því að samkv. l. 1933 hafði fyrrv. landbrh. heimild til að greiða þennan styrk, en brást þeirri skyldu sinni, að greiða hann, og frá sumum mjólkurbúunum komu menn hvað eftir annað til þess að fá eitthvað, en fengu ekkert. Fyrir þá sök réðst meiri hl. í báðum d. í það á aukaþinginu 1933 að skora á ráðh. að greiða þennan mjólkurbúastyrk úr ríkissjóði eftir þeirri heimild, sem fólst í l. frá 1933. Þetta er vitanlega fullkomin heimild, því að með þessu var litið svo á, að heimilt væri að greiða þetta gjald samkv. l. frá 1933. Þess vegna er það, að það þarf ekki að samþ. neitt nú til að heimila að greiða þennan styrk.
Svo vil ég líka benda á annað atriði, sem sker alveg úr um þetta og sýnir, að það er alveg þýðingarlaust að reyna að hreinsa Þorstein Briem með því, að hann hafi ekki haft heimild til að greiða þennan styrk, og það er það, að þegar fyrrv. landbrh. (ÞBr) var afhent þessi áskorun, þá gerði hann enga aths. við það, en hann hefði ekki gert sig ánægðan með slíka áskorun, ef hann hefði talið, að hann þyrfti að fá áskorun, sem væri samþ. á þinglegan hátt. Og hefði hann talið sig þurfa þess og viljað greiða styrkinn, þá hefði hann vitanlega farið fram á, að aukaþingið, sem þá stóð yfir, hefði samþ. slíka áskorun. Heimildin var því fullkomlega til, og ef hv. þm. V.-Húnv. till deila á einhvern fyrir trassaskap í þessum efnum, þá verður hann þar að snúa sér til Þorsteins Briems fyrrv. landbrh., því að það var hann, sem ekki greiddi þennan styrk, þó að hann hefði heimild til þess og meiri hl. Alþingis skoraði á hann að nota þá heimild. Ég vil því mælast til, að hv. þm. samþ. ekki þessa till., sem fram er borin einungis til að reyna að þvo fyrrv. landbrh. af því hirðuleysi, að nota ekki þá heimild, sem hann hafði í l. frá 1933, og skeyta því ekki heldur, þó að hann fengi áskorun frá meiri hl. þingsins um að nota heimildina, sem hann lét ónotaða allt árið.
Ég vil að síðustu endurtaka það, að ef hv. þm. hefir eitthvað við það að athuga, að þessi styrkur var ekki greiddur, þá á hann það við þennan flokksbróður sinn, og öll hans ádeila í þessu efni lendir því á honum og engum öðrum.