27.11.1934
Neðri deild: 46. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2530 í B-deild Alþingistíðinda. (3814)
76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.
Jakob Möller [óyfirl.]:
Hæstv. ráðh. sagði, að enginn vissi, hvað benzínskattinum liði. Undarlegt er nú þetta, og ég verð að segja, að ég trúi ekki þessari fullyrðingu hæstv. ráðh., ég hygg, að hann fylgist fullvel með því, hvað afgreiðslu mála líður. Ég veit ekki nema eins sé með það, sem hæstv. ráðh. sagði um einkasölu á steinolíu. Hann sagði, að stj. hefði hugsað mikið um þetta mál og athugað það gaumgæfilega, en þó vissi ekki hæstv. ráðh., að heimild til þess að taka einkasölu á olíu var í gildi. Má það merkilegt heita, ef stj. hefir haft mikið fyrir því að athuga málið og ekki hugkvæmzt að athuga, hvort hún hafði ekki heimild til að taka einkasölu á þessari vöruteg. Hæstv. ráðh. taldi mikil vandkvæði á því að taka einkasölu á olíu og benzíni, því að hér hefðu verið reistir stórir og dýrir tankar, og olíufél. lagt í mikinn kostnað. Ég skil ekki í öðru en að mætti komast að sæmilegum skilmálum um kaup á tönkunum, ef um það væri að ræða, að ríkið tæki í sínar hendur sölu á þessum vörum, fél. hefðu þá ekki um marga kosti að velja og mundu vafalaust taka þann kostinn að selja tankana við sæmilegu verði heldur en að láta þá standa tóma. Hæstv. ráðh. gerði lítið úr hagnaðinum af þessari verzlun, en ég hefi bent á, að þar er um talsverðan ágóða að ræða. Hann benti á það, að annað stærsta steinolíufél. borgar engan tekjuskatt, og mismunur á afkomu fél. muni stafa af því að Olíuverzlun Íslands hafi yfirsézt að afskrifa tapaðar skuldir. Ja, þá fer nú að fara glansinn af þeim mikla fjármálamanni, hv. 2. þm. Reykv., ef hann hefir ekki haft forsjá til að afskrifa hæfilega skuldir við fyrirtæki, þar sem hann á ekki minni hagsmuna að gæta en svo, að í hans vasa rennur helmingur ágóðans af fyrirtækinu. Nei, ég held, að hæstv. fjmrh. geri of lítið úr fjármálaspeki þessa manns. Aftur á móti held ég, að hæstv. atvmrh. hafi gert fullmikið úr yfirburðum hans á því sviði, í umr. um Rauðku hér á dögunum. Ég held, að hæstv. ráðh. sé að gera hv. 2. þm. Reykv. óþarfa getsakir, ef hann heldur, að þessi hv. þm. greiði meiri skatta til ríkis- og bæjarsjóðs en hann endilega þarf. Ég verð að halda, að mismunurinn á afkomu þessara tveggja fél. liggi í einhverju öðru. Olíuverzlun Íslands hefir að vísu lítið hlutafé, en það fyrirtæki hefir líka minni rekstrarkostnað. Það hefir t. d. ekki byggt tanka sína sjálft. En hitt fél. hefir meira hlutafé, en það hefir líka sjálft byggt tanka sína og á öll mannvirkin, sem það þarf til afnota, og kemur það talsvert öðruvísi út.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. ráðh. sagði um lítinn ágóða af Olíuverzlun Íslands, þá gefur tekjuskatturinn, sem ég hefi minnzt á, talsverða hugmynd um það atriði. (Fjmrh.: Ég nefndi ekki sérstaklega Olíuverzlun Íslands). Jæja, en ég mun þó hafa skilið hæstv. ráðh. rétt. — Þegar talað er um mikinn eða lítinn ágóða af fyrirtæki, verður að taka tillit til þess, af hve miklum höfuðstól ágóðinn er. Ég hygg, að ágóði sá, sem hér um ræðir, sé nærri 100% af höfuðstólunum, ég hefi ekki gert ráð fyrir því, að þessar tekjur séu lagðar í varasjóð. — en ef það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að fél. hefði láðst að afskrifa skuldir, þá eru miklar líkur til, að talsvert af tekjum fél. liggi í varasjóði. — Ég get ekki fallizt á það, að þetta sé lítill ágóði. (Fjmrh.: Þetta eru ekki háar upphæðir). Nei, það þurfa ekki að vera háar upphæðir, en það er góð afkoma miðað við þann höfuðstól, sem þarna er lagður í hættu, hluthafarnir fá hlutafé sitt svo að segja allt endurborgað á einu ári. Þetta bendir til þess, að verzlun með þessa vöru sé mjög ábatavænleg. Hér er líka mikið talað um það, hvað olíuverðið sé hátt, það mun vera um helmingi hærra hér en í nágrannalöndunum, t. d. Færeyjum. Þó mun afkoma útgerðarmanna ekki vera betri þar en hér. Að öllu þessu athuguðu vil ég undirstrika það, að mér fyndist nær að taka einkasölu á þessum vöruteg. en þeim, sem frv. þetta hljóðar um. Af því yrði tvímælalaust talsverður ágóði, sem nú rennur í vasa einstakra manna, sem hafa aðstöðu til að selja þessa vöru. Mér skilst, að með því mætti slá tvær flugur í einu höggi, afla ríkissjóði tekna og lækka eitthvað verðið til að létta á atvinnurekstrinum.
Ég get ekki annað en látið undrun mína í ljós yfir því, að skipulagsnefndin skyldi ekki láta það verða sitt fyrsta verk að athuga þetta mál. Mér skilst, að sé nokkursstaðar skipulagningar þörf, þá sé það á þessu sviði. Og þó að þeir, sem ágóðann hirða, eigi gott skilið að dómi hæstv. ráðh., þá viðurkenni ég það ekki sem nægilega ástæðu til þess að láta verzlun þeirra afskiptalausa, ef heill annars aðalatvinnuvegar okkar krefst breytingar.
Ein af aðalástæðunum, sem hæstv. ráðh. flytur fyrir þessu frv., sem hér er um að ræða, er sú, að nú sé lagt svo mikið á þessar vörur, að óhæfilegt sé. Hér er í 1. lið aðallega rætt um bíla og í 3. lið um mótorvélar. Ég veit ekki betur en að verzlun með þessar vörur fari fram á þann hátt að verksmiðjurnar, sem framleiða vörurnar, hafa sína umboðsmenn hér á landi og greiða þeim laun, hér er því ekki um álagningu að ræða í venjulegum skilningi þess orðs. Þótt segja megi, að þessi umboðslaun séu nokkurskonar álagning, þá er þess að gæta, að umboðsmennirnir verða alltaf að hafa á boðstólum feiknin öll af varahlutum, og hefir það mikinn kostnað í för með sér. Hæstv. ráðh. verður að athuga, að vegna þessarar skyldubyrðar umboðsmanna verður mikill frádráttur á tekjum þeirra af umboðinu. Aftur á móti mun vera um allmikla álagningu að ræða á þriðja aðalflokki frv., rafmagnsvélum og ýmsum áhöldum. En ég vil benda hæstv. ráðh. á það, að eigi einkasalan aðeins að hafa heildsöluna á þessum vörum, er þar með bætt við nýjum millilið. Þeir, sem selja þessar vörur nú, fá þær beint frá framleiðendum. Þar er um enga heildsölu að ræða. Tæki nú ríkiseinkasala heildsölu á þessum vörum, væri þar með bætt við nýjum millilið, og hlyti það að koma fram annaðhvort í verðhækkun eða í minni verzlunarágóða. Ég held því, að ágóðinn af einkasölu á þessum vörum yrði aldrei mikill, og bezt bæti ég trúað því, að við nánari athugun treysti ríkisstj. sér ekki til þess að taka einkasölu á þessum vörum. Það er sennilega með ráðnum hug, að þetta er haft í heimildarformi í 1., en það er mitt álit, að það sé óforsvaranlegt að veita stj. þessa heimild.