11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2707 í B-deild Alþingistíðinda. (3834)

161. mál, síldarútvegsnefnd

Forseti (JörB):

Ég sé engu ástæðu til að teygja tímann og þreyta menn með umr. um þingsköp. (ÓTh: Eitt og eitt orð á stangli drepur engan). Það er mjög fjarri lagi, að ég hafi gefið þm. fararleyfi. Það er að vísu rétt, að ég hefi gefið 2 þm. kost á því að ganga til náða. aldursforseta þingsins, er ég sagði við áðan, fyrir 10 mín., að væri óhætt að fara, því engar ákvarðanir mundu teknar. (Fjmrh.: Hann er nú hér ennþá). Já, hann er hér til staðar. (ÓTh: Það vantar einhvern oftar en hann). Og svo hefi ég gefið hv. 1. þm. Rang. leyfi til að fara. Hann er orðinn eldri maður og farinn að þreytast, og engum öðrum hefi ég gefið leyfi. (JJós: Ég er sá þriðji. — PO: En ráðherranum? — FJ: Hann á ekki sæti hér í hv. d. sem þm.). En ég hefi þrásinnis bent þm. á, að ef þeir vilja koma málum fram, verða þeir að vera til staðar, og það er ekki mín sök, þó svo sé ekki. En það er náttúrlega ekki sanngjörn krafa til mín, að ég sjái um, að þm. sitji í stólunum eða sitji eins fast og ætti að vera. Ef þá kröfu á að gera, þá verða þeir menn, sem flytja ræðurnar, að gæta hófs og halda sér við efnið sem bezt, en á því hefir því miður orðið misbrestur æðioft, og er þá ekki nema von, að öðrum þm. eymist fundarsetan.

Ég vil nú í þetta sinn verða við tilmælum hv. þm. Borgf. og fresta umr. um málið, og verður það þá tekið fyrir sem fyrsta mál á morgun, en ég vil beina því til hv. þdm., að eyða ekki deginum í að tala um eitt mál og tala svo um þingsköp á nóttunni, því ég hefi enga ánægju af að sitja hér fram eftir nóttu yfir þrætum um þingsköp.

Eins og hv. þm. G.-K. drap á, eru hér fleiri mál á dagskrá, og vænti ég þess, að lítill ágreiningur sé hér um tvö mál á dagskránni, annað er til 1. umr. og ætti að geta gengið til 2. umr., og hitt málið hefir komið ágreiningslitið inn í deildina og ætti að geta gengið í gegn. Það er 14. mál á dagskrá, frv. til l. um vátryggingu opinna vélbáta, og verður það þá tekið fyrir.