11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2546 í B-deild Alþingistíðinda. (3838)
76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.
Jóhann Jósefsson [óyfirl.]:
Það er ákaflega umsvifamikil verzlun, sem ríkisstj. vill með frv. þessu hafa heimild til að leggja undir einkasölu ríkisins. En ég verð að taka undir það, sem komið hefir fram við þessar umr., að ef um er að ræða að gera nokkrar gælur við einkasölur yfirleitt, þá er miklu hreinna, að það sé stefnt beint að því að taka einhverjar ákveðnar teg. heldur en svona víðtæka heimild sem þessa, og það þegar af þeirri ástæðu, að þegar lögfest er, að stj. hafi heimild til þess að taka þessa og þessa grein verzlunar undir ríkiseinkasölu, þá er e. t. v. að óþörfu veikt atvinnuöryggi þeirra manna, sem að þessum verzlunum standa.
Hér er nú ekki talað um annað en að stj. hafi heimild til að gera þetta, og mér hefir frekar heyrzt af því, sem þeir hafa lagt til málanna, sem mestu ráða um það, hvað gert verður, að það stæði jafnvel ekki til að nota þessa heimild, nema þá að einhverju leyti. Ég verð að segja það, að ég er eins og flokksbræður mínir yfirleitt á móti þessari íhlutun ríkisins á verzlun, sem hér er um að ræða, nema ef einhverjar almennar knýjandi ástæður liggja til. Þetta er ákaflega yfirgripsmikil verzlun og eins og vitanlegt er, þá eru það mjög margir hér á landi, sem hafa atvinnu ýmist af að selja þessa hluti eða gera við þá, og svo er kringum þessi fyrirtæki heill hópur af starfsmönnum. Þetta út af fyrir sig, að stj. gerir sig líklega til að taka þessa verzlun í sínar hendur, hefir fyrst og fremst þau áhrif, að þessir menn mega alltaf búast við á hverri stundu að missa sína atvinnu. Hv. 1. landsk. talaði um þennan „svokallaðan rétt“ manna til að reka þessa eða aðra atvinnu. Mér finnst hv. þm. gera nokkuð lítið úr þessum rétti manna til þess að fá að stunda löglega atvinnu í friði. Að vísu er það svo í þessu þjóðfélagi sem víðar, að réttur manna til þess að hafa með höndum ýms störf er ýmist lögfestur eða byggður á venjum og þess vegna orðin hefð. Hv. 1. landsk. er t. d. hæstaréttarmálaflm. og hefir öðlazt það starf með margra ára lærdómi og staðizt próf til þess að teljast hæfur til þessa starfs. Þetta veitir honum rétt til þess að gegna vissu starfi í þjóðfélaginu, sem aðrir menn, sem ekki hafa uppfyllt sömu skilyrði og hann og hans stéttarbræður, hafa ekki leyfi til að ásælast. Þessi réttur hans og annara embættismanna er verndaður með 1., en þó að réttur okkar alþýðumanna sé ekki verndaður á sama hátt með 1., þá leyfi ég mér að halda því fram, að á meðan við rekum atvinnu okkar eftir landsins l. og meðan við gjöldum skatta og skyldur, gefum keisaranum það sem keisarans er, þá hefir þjóðfélagið, þó ekki sé það beint af lagalegum þá af siðferðislegum ástæðum, þær skyldur gagnvart okkur þegnunum að láta atvinnu okkar í friði, svo fremi alþjóðarheill ekki krefst þess, að hún sé af okkur tekin. Nú er það svo í stjórnarskránni með eignarréttinn, að hann er ennþá í þessu landi álitinn svo mikils virði, að hann má ekki skerða, nema þá að alþjóðarheill krefjist, enda komi fullar bætur fyrir. — Hér er um ákaflega mikil réttindi að ræða hjá alþýðumönnum, sem hægt er að vísu undir einhverju yfirskini að láta ríkið teygja arma sína til. Yfirskinin geta verið svo mörg og þau eru mismunandi „ekta“, því í máli eins og þessu eru það engin rök, þó hægt sé að segja, að sala mótorvéla gefi sennilega góðan arð af sér, og að sá arður sé eins vel kominn í ríkisfjárhirzlunni eins og hjá einhverjum og einhverjum borgara ríkisins. Þetta eru engin rök. Þetta má segja um svo fjarskalega margt, og verður því aðeins haldið fram, að ríkið hafi ekki neinar skyldur við sína borgara. Nú er það svo bæði hér og annarsstaðar, að ríkið á í raun og veru borgarana og getur farið með þá eins og það vill, skattlagt atvinnu þeirra, tollað neyzluvörur þeirra og hefir yfirleitt nægar leiðir til þess að ná bróðurpartinum af þeim arði, sem atvinna þeirra gefur af sér, en til þess liggja að vísu oft knýjandi ástæður.
Ég vil þess vegna alls ekki taka undir það, að hér sé um neinn „svokallaðan rétt“ að ræða. Sá maður, sem hefir lagt tíma og fé til þess að mennta sig í einhverri atvinnugrein og lagt hana fyrir sig, á sannarlega mjög sterka kröfu til þjóðfélagsins á því, að hann sé látinn í friði með þessa atvinnu sína, með því tilskildu vitanlega, að hún brjóti ekki í bág við 1. landsins. — Hér er t. d. verið að tala um mótorvélar, og hv. 1. landsk. sagði, að sér fyndist ríkið gæti eins vel verið þar umboðsmaður og hirt gróðann eins og hver annar. Ég neita því alls ekki, að þetta geti vel verið svo. En hræddur er ég um, að slík umboðsmennska ríkisins yrði stirð í vöfum og að viðskiptamönnunum þætti e. t. v., að nokkuð mikill einstrengingsháttur væri á afgreiðslunni og vafningar á móts við það, sem nú er. Maður veit það t. d., svo ég tali nú um mótorvélar, af því að ég er kunnugastur þeirri verzlun og þeim, sem við hana fást, að þar eru sífellt á ferðinni kröfur til endurbóta hvað snertir vélarnar. Sjómenn vilja vitanlega alltaf fá það, sem er bezt, og þá um leið það, sem kostar minnst í rekstri. Mótoriðnaðurinn sjálfur er mjög ungur, og hin síðustu ár hefir hann tekið miklum og skjótum framförum. Það, sem menn álitu vera mestu kostavélar fyrir nokkrum árum, eru nú álitnar heldur úreltar. Kröfurnar eru mjög sterkar um góðar vélar og allar nýjar endurbætur eru gripnar fegins hendi. Umboðsmenn, sem hafa tekið að sér að finna kaupendur að vissum vélum, verða vitanlega að leggja sig mjög í líma bæði með að velja góðar teg. og verksmiðjur og eins að leggja á sig ferðalög og ýmsan annan kostnað til þess að vinna fyrir þær vélar, sem þeir hafa tekið að sér að selja. Hér við bætist svo það, að þessir menn eru oft og tíðum trúnaðarmenn beggja, kaupanda og seljanda, og verða stundum jafnvel að taka á sig fjárhagslega áhættu við þessa verzlun. Ég veit af nánum kunnugleika, þó ég hafi ekki svo heita megi haft neina umboðsmennsku í þessum efnum, að svona gengur þetta til. Ég get því ekki fellt mig við það í þessu tilfelli frekar en öðrum, að úr höndum þessara manna sé tekin þeirra atvinnugrein og engar bætur komi.
Í sambandi við þessar umr. hér hefir verið minnzt á varahluti og hvað það væri nauðsynlegt vegna þeirra, að valdar væru ágætar mótorteg. með varahlutum, og þær áttu að verða ódýrari og betri, ef ríkið tæki við þessari verzlun. Allt er þetta nógu fallegt í munni, en hér ber þess að gæta, að þetta er á mjög hraðri framför allt, sem snertir mótorvélar, og sjómenn eru nú einu sinni svo gerðir, að þeir vilja alltaf fá það nýjasta og bezta af vélum, sem þeir hafa heyrt nefnt. Og þó að ríkið tæki einkasölu á mótorum og flytti inn einhverjar af þeim mörgu teg., sem nú flytjast til landsins, þá býst ég við, að ekki liði langur tími þar til fréttist af öðrum góðum teg., sem almenningur vildi gjarnan eignast. Þá gæti vel farið svo, að ríkið væri samningsbundið við þær verksmiðjur, sem það upphaflega hefði gert samninga við, en menn yrðu þá óánægðir yfir því, að nú væri ekki lengur hægt að fylgjast með tímanum og fá þær vélar, sem svöruðu kröfum tímanna.
Það er sagt um varahluti, að þeir séu ákaflega dýrir, og mér hefir heyrzt það á þeim mönnum, sem mæla með frv., að dýrleiki varahlutanna stafi einkum og sér í lagi af því, að umboðsmennirnir leggi svo mikið á þá. Hv. 1. landsk. þm. nefndi dæmi um bil, sem kostaði ekki nema nokkur þús., en ef átt hefði að setja hann saman úr varahlutum með því verðlagi, sem er á þeim hér, þá mundi hann hafa kostað tugi þús. Þetta dæmi nefndi hann til þess að sýna fram á, hversu fyrirkomulag verzlunarinnar væri óhentugt, þegar um einkarekstur væri að ræða. En sannleikurinn er sá, að verksmiðjurnar selja varahlutina miklu dýrari hvern út af fyrir sig heldur en vélina, þegar hún er seld í heilu lagi, svo að það þarf enga umboðsmenn til til þess að skrúfa upp verðið, eins og hv. 1. landsk. hélt fram, að þeir gerðu. Þetta er ekkert óeðlilegt fyrirbrigði, heldur kannast allir við það, sem einhverntíma hafa haft með vélar af þessu tægi að gera og hafa þurft að kaupa í þær varahluti árum saman. Ég hefi sjálfur árum saman keypt varahluti í ýmsar teg. véla og nær alltaf milliliðalaust, og ég er alveg sannfærður um, að þetta er nú einn sinni svo, að varahlutir eru seldir ákaflega dýrt. Þess vegna býst ég við því, að þó að ríkið tæki þessa grein verzlunar í sínar hendur, þá yrðu varahlutirnir jafndýrir eftir sem áður. Það sama og á sér stað um mótorvélar í þessum efnum, á sér líka stað hvað bifreiðar snertir. Það er víst ósköp líkt um kaup á bifreiðum og varahluti í þær og um kaup á mótorvélum og varahluti í þær. Að þessu athuguðu býst ég ekki við því, að það yrði nein hagsbót að því fyrir kaupendur hér á landi, þó að ríkið tæki þessa verzlun í sínar hendur. Það mundi minnka öll fjölbreytni og það yrðu fáar teg. á boðstólum, en það er nú einu sinni svo, að kaupendurnir þurfa að hafa og vilja hafa fjölbreytni.
Það hefir réttilega verið sagt um frv., að það liggi ekki fyrir nein áætlun um það, hvað menn búast við, að þetta frv., ef að l. verður, muni gefa af sér miklar tekjur í ríkissjóð, en þess er í rauninni ekki heldur að vænta, þegar ríkisstj. er algerlega í óvissu um það, hvort hún ætlar að nota þessa heimild, og líka um það, að hve miklu leyti hún muni notfæra sér hana, þó að hún nú geri það. Hér virðist því vera fast að því heldur óþörf lagasetning á ferðinni. En hitt er vitað, að hún er vel til þess fallin að minnka atvinnuöryggi þeirra manna í landinu, sem nú leggja stund á þessa verzlun. Og í sambandi við það, að minnzt er á atvinnuöryggi, verð ég að segja það, að ég held, að það sé ekki á það ófremdarástand bætandi, sem ríkir í atvinnumálum hér á landi á þessum tímum. Það er verið að tala um, hversu það væri ákaflega gott, ef hægt væri að sameina verzlunina úr höndum fleiri manna, að það muni sparast mikið á því o. s. frv. Það kann að vera, að eitthvað mætti spara á þessu sviði við svona ráðstöfun. En þess verður að gæta, að það verða margir menn, sem missa atvinnu sína um leið og þessi l. komast í framkvæmd, og þessir menn verða fyrr eða síðar á einhvern hátt þjóðinni að byrði, sumpart með því, að til þeirra verður að veita atvinnuleysisstyrki eða skaffa þeim atvinnubótavinnu, og sumpart með því, að þeir fyrir einhverra manna milligöngu geta fengið vinnu, þar sem aftur aðrir verða að víkja úr sæti, sem þá bætast aftur við í atvinnuleysingjahópinn.
Hv. 1. landsk. var að tala um stefnur í þessu máli og sagði, að fyrir sínum flokki væri það ekki aðalatriðið, að ríkið ræki verzlun með eitt og annað. Ég veit ekki, hvað hann á við, þegar hann er að tala um „sáluhjálparatriði“ í sambandi við þetta, en hjá hinu er ómögulegt að komast, að hann og hans flokksmenn líta á það sem eitthvað ákaflega eftirsóknarvert og eitthvað, sem taki öllu öðru fram í þessu efni, að ríkið leggi undir sig sem allra mest af verzlun landsmanna, og það þrátt fyrir það, að þeim hlýtur að vera það ljóst, að þessu fylgja ýmsir gallar, eins og t. d. hvað snertir atvinnu einstakra manna, eins og ég hefi áður minnzt á, o. s. frv.
Þá hefir náttúrlega verið sjálfsagt að benda á það í sambandi við þetta mál, eins og hv. 1. landsk. gerði, hvað hin frjálsa samkeppni sé skaðleg í þessum efnum. Það er orðinn fastur „passus“ í öllum þeirra ræðum, að benda á galla hinnar frjálsu samkeppni. Þegar um þetta er rætt, þá er bezt að gæta að því, hvaða atriði það eru, sem fyrir liggja. Ég held nú satt að segja, að þegar verið er að ræða um verzlun eins og þá, sem hér liggur fyrir að ræða um, þá sé erfitt að gera sér grein fyrir því, hvernig hin frjálsa samkeppni geti verið skaðleg. Ég held meira að segja, að einmitt samkeppni í sölu á t. d. mótorvélum geti komið því til leiðar, að borgunarskilmálar verði betri, a. m. k. hefir það verið svo á þessum síðustu krepputímum, að þeir, sem selja vélar hingað til landsins, hafa starfað svo mjög til samkomulags að því er snertir greiðslu á þessum vélum, að þess sjást ekki dæmi í þessari verzlun, ef litið er 5 til 10 ár aftur í tímann. Þá voru verzlanirnar miklu harðari í öllum kröfum um greiðslur en þær eru nú. Það er eftirtektarvert, hvað mótorvélar, og þær góðar, fást nú með góðum borgunarskilmálum. Og hvers vegna er þetta? Það er vegna þess, að það er svo mikið kapp í seljendum við að vinna kaupendur að þessum vélum. Það er hin frjálsa samkeppni, sem þar er á ferðinni og gerir það, að þeir, sem smíða vélar og selja þær hingað til lands, leggja sig í líma til þess að hafa vélarnar sem bezt gerðar og úr sem beztu efni og sem ódýrastar, og síðan að selja landsmönnum þær með eins góðum borgunar- og greiðsluskilmálum og unnt er. Það er meira að segja hægt að benda á dæmi um það, að vélaverksmiðjur í útlöndum hafa gengið í bandalag, fjárhagslegt bandalag, sín á milli, til þess að geta staðizt það betur að geta greiðslufrest á vélum.
Ég býst nú við því, að þetta mál, eins og önnur slík mál, sem hér hafa komið fram, eigi að knýja fram, og það vegna þess, að það sé nokkurskonar sáluhjálparatriði hjá hv. 1. landsk. og hans flokki, að svo verði. Og þá liggur það náttúrlega næst fyrir, að menn biði eftir því með eftirvæntingu úti um landið, og jafnvel með ótta sumir hverjir, að hvaða leyti þessari ógnun, sem í frv. felst og er stefnt að þeim mönnum, sem nú verzla með þessa hluti, verður komið í framkvæmd.
Það er vitanlegt, að framkvæmd þessara l. kostar talsverða áreynslu fyrir ríkissjóð, því að verzlun með þessa hluti, sem hér um ræðir, verður ekki rekin fyrir hið opinbera nema með talsverðum fórnum til þess að byrja með, þ. e. a. s. það verður að festa fé, þegar inn eru keyptar vörurnar, til þess að setja á stofn verzlun með.
Það stendur í 4. gr. frv.: „Ríkisstj. leggur fram nauðsynlegt fé til einkasölunnar, svo og til viðgerðarverkstæða fyrir bifreiðar og mótora, eftir því, sem þykir þurfa, og er henni heimilt að taka það að láni.“ Hér er ákvæðum frv. ekki einasta stefnt að þeim mönnum, sem verzla með þessar vörur, heldur einnig að þeim, sem halda uppi viðgerðarverkstæðum til þess að gera við þær, og öllum þeim, sem nú hafa vinnu við það.
Maður skyldi nú ætla, að ákvæði næstsíðustu málsgr., þar sem talað er um, að dálitlar prósentur af væntanlegum verzlunarhagnaði af þessari verzlun eigi að renna í bæjarsjóði, sé nokkurskonar agn fyrir þm. En þrátt fyrir þetta ákvæði get ég ekki aðhyllzt þetta einkasölufrv. Og það jafnvel ennþá síður fyrir það, að það er allt í óvissu um það, hvað stj. ætlar sér í þessu efni. Það liggur engin áætlun fyrir um það, hvað ríkið þurfi að kosta til, eða hvað það búist við að hafa mikinn afrakstur af slíkri einkasölu, og engin ákveðin fyrirætlun um það, hvort eigi að taka einkasölu á þessu öllu strax eða einhverjum hluta af því, og ekki heldur, á hverju eigi þá að byrja. Það er engu líkara en að þessu sé varpað fram yfirvegunarlítið og svona eins og til þess að gefa í skyn, að þrengja eigi að atvinnurekstri í þessum efnum, án þess þó að það liggi ljóst fyrir, hvernig eigi að taka á þessu máli.
Þau eru nú ekki svo fá einkasölufrv., sem liggja fyrir þessu þingi, og allt virðist benda á það, að því sé stefnt af þeim, sem nú fara með völdin, að taka einkasölu á sem allra flestum vöruteg., og einkum þá þeim, sem einhvern verzlunarhagnað gefa af sér að dómi stj. Það er í raun og veru ekki lengur um það að ræða, að taka einstaka vöruteg., eins og t. d. tóbak og vín og hafa á þeim einkasölu, heldur er syndaflóð ríkiseinkasölu byrjað að flæða yfir þetta land, og mér virðist stefna beint að því, það er a. m. k. ekki hægt að sjá annað en að það eigi að uppræta allan einkarekstur í verzlun hér á landi. Hvað langan tíma það tekur, skal ég ekki segja, en það virðist ekki þurfa að taka alllangan tíma, eftir þeim gangi, sem hefir verið í þessum málum á þessu þingi.
Nú er þess að gæta, að þeir, sem reka verzlun hér á landi, munu yfirleitt standa að nokkuð miklu leyti undir byrðum ríkisins fjárhagslega, og það sýnir, að ef þessar ráðstafanir verða gerðar, og þó að þær hafi þá kosti í augum jafnaðarmanna og kannske líka framsóknarmanna, að gera megi ódýrari verzlunarreksturinn með þessar vöruteg. með því að taka hann af Pétri og Páli og leggja alt undir eina stofnun, þá er það ljóst, að smátt og smátt myndast hópur manna, sem hefir ekki í neitt hús að venda með atvinnu, og það er engu síður alvarlegt atriði, þegar maður lítur á þann stóra hóp, sem þegar er fyrir atvinnulaus, en annað í þessu sambandi, og þetta annað er það, að t. d. er með þessum ráðstöfunum tekið fyrir kverkar þess, að menn leggi fram krafta sína með það fyrir augum að geta rekið sjálfstæða verzlun. Ég ímynda mér það, þó að engar tölur liggi fyrir um það, að sjaldan eða aldrei hafi verið eins mikill aragrúi af ungum, heilbrigðum og vel menntuðum mönnum hér í Rvík eins og einmitt nú, sem ekki hafa að neinu að hverfa hvað atvinnu snertir. Maður rekur sig daglega á þennan og hinn, sem hefir þá raunasögu að segja, að þessi maður sé búinn að ljúka námi og hafi jafnvel skuldir á baki sér eftir námið, en hann komist bara hvergi að. Þetta er böl, og ég veit, að allir viðurkenna það, að þetta er stórt þjóðarböl, en þær ráðstafanir, sem stjórnarliðið stendur að hvað það snertir að leggja höft á alla verzlun og koma bæði henni og öðrum framkvæmdum sem mest undir ríkiseinokun, þær létta ekki þetta böl. Þær auka þetta þjóðarböl og sú ástæða ein út af fyrir sig ætti að vera nægilegt til þess að opna augu hv. þdm., svo að þeir fylgdu ekki öllum þessum einokunarfrv. svo fast eftir, að gerst þau að l. á þessu þingi.
Ég ímynda mér nú kannske, að þetta frv. sérstaklega sé mörgum mönnum þyrnir í augum, og jafnvel þeim, sem fylgt hafa öðrum einokunarfrv., því að þau er þess eðlis; það fjallar um þessháttar vöruteg., sem ég fyrir mitt leyti er alveg viss um, að er mjög óhentugt fyrir ríkið að ætla sér að taka einkasölu á. Og um gróðann, sem menn ætla sér að hafa af þessari verzlun, er það að segja, að ég býst við, að þó að hann kunni að hafa verið talsverður hjá einstökum mönnum, sem fengizt hafa við þessa grein verzlunar, þá mundi hann verða hverfandi lítill, þegar verzlunin væri komin í það horf, sem stefnt er að með þessu frv., og afrakstur af henni yrði þess vegna minni en margur e. t. v. gerir sér í hugarlund, og minni heldur en menn við fljóta yfirskoðun gætu hugsað sér, þegar þeir lesa frv. Hér er nefnilega um vöruteg. að ræða, þar sem það skiptir miklu máli, hver það er, sem fæst við að reka verzlunina. Það er allt annars eðlis að reka verzlun með þessar vörur en með t. d. tóbak og vín, því að það geta allir sæmilega vitibornir menn, sem kunna að leggja saman 2 og 2, staðið fyrir tóbaks- og víneinkasölu, en það er ekki á allra manna færi að standa fyrir verzlun með vélar og vélarhluta svo að vel fari úr hendi og sé til hagsbóta fyrir kaupendur. Það geta eiginlega engir, nema þeir, sem hafa svo að segja alizt upp við þess háttar verzlun og gerþekkja hana.