11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2558 í B-deild Alþingistíðinda. (3842)

76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Mig langar til þess að svara nokkrum atriðum í ræðu hv. 1. landsk.

Ég vil taka það fram, að það er eins og meirihlutaflokkarnir hér á hv. Alþ. hafi tekið upp þann sið, að svara andstæðingunum sem allra minnst, koma sem minnst við málefnin, en láta andstæðingana um að upplýsa þau. Ég get vel trúað, að þeim komi vel að losna við að svara fyrir sumt af því, sem fram er borið hér í hv. d. Það er ekki svo merkilegt, enda hefir svo farið um þetta mál, að það hefir ekki verið varið með nokkrum rökum, hvorki við þessa umr. né 1. umr.

Ég hafði gaman af þeim ummælum hv. 1. landsk., að því færri sem störfuðu við fyrirtæki, þess meira „rationelt“ væri það rekið. Hann hefir kannske ekki ætlað að komast þannig að orði, því að vitanlega er „rationel“ rekstur fyrirtækja ekki undir öllum kringumstæðum sjálfsögð afleiðing af fámenni við fyrirtækin. Þetta er sérstakt atriði, sem stendur ekki í beinu sambandi við það, hvort fleiri eða færri vinna við fyrirtækin, því að oft er þannig ástatt um ýms fyrirtæki, að það þarf ekki nema örfáa til þess að annast rekstur þeirra, og þó eru þau fyrirtæki jafn „rationelt“ rekin og mörg önnur, sem fleira starfsfólk vinnur við.

Það atriði, sem við hv. 1. landsk. deildum um, var það, hvort rétt væri, eins og nú er ástatt í þessum efnum, að fækka starfsfólki við þessi fyrirtæki, t. d. niður í 50, ef gengið er út frá því, að 100 vinni nú við þau. Vitanlega er ég sammála hv. þm. um það, að heppilegast sé, að sem minnstur kostnaður verði á rekstri þessara fyrirtækja. En ég benti á, að það væri hvorki sanngjarnt, réttmætt né hagkvæmt, að ætla sér að fækka þeim um helming, sem við þessa atvinnu fást nú. Af slíkri ráðstöfun myndi fyrst og fremst leiða það, að meira framboð yrði á vinnu í öðrum rekstri í kapp við þá, sem þar eru fyrir. En nú er svo komið, að eins og stendur getur engin atvinnugrein bætt við sig auknu starfsliði.

Á öllum venjulegum tímum er eðlilegt, að fólki fækki í vissum starfsgreinum, þegar vegna framfara í rekstrinum minnkar þörf fyrir mannlega vinnu. En á krepputímum eins og nú eru, þegar svo að segja engin starfsgrein getur bæti við sig fólki, sem missir atvinnu í annarri starfsgrein, horfir þetta öðruvísi við. Þá verður helztu ráðið til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og neyð, að hver fái að halda þeirri atvinnu, sem hann hefir. Þetta er einmitt sú stefna, sem við höfum tekið í kreppumálunum. Það er fróðlegt til samanburðar að athuga, hvaða tökum Bandaríkin hafa tekið kreppuna og með hvaða árangri.

Strax og tók að bera á verðlækkun í Bandaríkjunum vegna minnkandi kaupgetu eða kaupvilja, var það ráð tekið, að segja mönnum upp atvinnu þeirra í stórum stíl. Frá því í sept. 1929 og fram á þennan dag hefir þeim stöðugt farið fækkandi, sem atvinnu hafa þar í landi. Ég held, að þetta stafi af því, að Bandaríkjamenn hafi farið ranga leið í kreppumálunum, þrátt fyrir aðdáun stjórnarflokkanna hér á landi á stefnu þeirri í atvinnumálunum, sem nú er uppi í Bandaríkjunum. Vandræðin eru alltaf að aukast. Mönnum er sífellt sagt upp atvinnu þeirra til að reka fyrirtækin „rationelt“, eins og hv. l. landsk. orðaði það svo fagurlega. Við höfum hingað til haft aðra aðferð í þessum efnum. Við höfum haldið áfram framleiðslunni og fært hana út og þolað lægra og lægra verð ár eftir ár. Ég skal ekki segja um það, hvort við þolum þetta lengur, en þetta höfum við gert. Og hvor aðferðin skyldi vera hollari fyrir vinnandi fólk í landinu, sem hv. 1. landsk. þykist vera fulltrúi fyrir?

Með þessu frv. á nú að fækka þeim mönnum um allt að því helming, sem hingað til hafa haft atvinnu við sölu, dreifingu og viðgerðir á þeim tækjum, sem frv. fjallar um. Frv. gerir ráð fyrir, að viðgerðir á tækjunum fari fram í viðgerðarstofnunum ríkisins, enda þótt nægilegt sé af viðgerðarstofum einstakra manna fyrir. Sé það tilætlunin, að leggja þær viðgerðarstofur niður, er augljóst, að við það fara mikil verðmæti forgörðum. E. t. v. er þetta þó eitt af þeim atriðum frv., sem hv. 1. landsk. var að tala um, að mætti fresta, en ekki kom það samt skýrt fram.

Það hafa nú að vísu engar sannanir verið færðar fyrir því, að hægt sé að fækka þeim mönnum, sem nú hafa atvinnu á ýmsan hátt af tækjum þeim, sem frv. fjallar um, en við skulum gera ráð fyrir, að svo sé. Treystir hv. frsm. minni hl. sér þá til að sjá þeim mönnum fyrir nýrri atvinnu? Það má e. t. v. segja, að þeir menn, sem á þennan hátt væri hægt að spara, ef frv. verður að l., vinni ekki gagnleg störf, en er betra, að þeir fari inn á önnur starfssvið og trufli þar atvinnulífið með framboði á vinnu sinni? Ég hefi oft heyrt hv. frsm. minni hl. segja, að atvinnuleysið væri böl, sem hið opinbera ætti að bæta. Það er því harla undarlegt, ef hæstv. stj. vill stofna til aukins atvinnuleysis, til þess að láta kostnað af því skella á ríkissjóði og bæjarsjóðum á eftir. Sú ástæða fyrir þessu frv., að það spari mannahald, er því næsta skrítin, þegar augljóst er, að þeir, sem verða atvinnulausir af völdum frv., hljóta annaðhvort að trufla atvinnulífið á öðrum sviðum eða lenda á ríkissjóði og bæjarsjóðum.

Hv. frsm. minni hl. sagði, að ég teldi heppilegast að hafa sem fæsta starfsmenn við verzlanir. Það er rétt, að bezt er, að bæði verzlun og framleiðsla, sé rekin með sem hagkvæmustu móti, en þess ber að gæta, að á krepputímum er langerfiðast, að fækka mönnum í einni atvinnugrein og koma þeim í aðrar. Þá sagði hann líka, að ég væri í samtökum bóksala og viðurkenndi skipulag þar, m. a. í því skyni að takmarka fjölda sölustaða. En það stendur nú einmitt svo á um þessar mundir, að víða mætti fækka þessum sölustöðum, en þó er það ekki gert, einmitt af því, hve viðurhlutamikið þykir að taka atvinnu af nokkrum manni með valdi á þessum tímum. Til slíks myndi ég aldrei veita samþykki mitt.

Annars var þetta dæmi hv. frsm. minni hl. fjarstæða. Félagsskapur bóksala er einmitt helzt hliðstæður við félagsskap bílasala, ef hann væri til, sem mér er ókunnugt um. En e. t. v. væri hægt að fá þá til að skipuleggja sig, ef þeir hafa ekki gert það þegar, svo að hv. frsm. minni hl. þyrfti ekki að hafa fyrir því.

Það er með öllu rangt, að ég sé mótfallinn þessu frv. af því einu, að hér er um einkasölu að tefla. Ég er ekki svo kreddufastur í þeim efnum, að ég sé ekki fús til að fylgja hvaða einkasölu sem er, ef ég tel, að hún sé til hagsbóta, ekki aðeins fyrir ríkissjóð, heldur og þjóðarbúið í heild. Ég er t. d. fylgjandi einkasölu ríkisins á áfengi, þótt ég hafi að vísu ætlað að ná þar öðru takmarki um leið. Ég skoða þá einkasölu sem einskonar hreinlætisráðstöfun, hvort sem hún nú hefir náð þeim tilgangi eða ekki. Ég óttast hvorki né elska einkasölur og skal stuðla að því, að áfengisverzlunin eignist fleiri systur í hvert skipti sem ég tel það gagnlegt og rétt. Ég mun taka afstöðu gagnvart málsins meginefni í hvert sinn. En rekið hefi ég mig á talsverð óþægindi í viðskiptum við einkasölur þær, sem hér eru, eins og hv. frsm. minni hl. hefir sjálfsagt gert líka í viðskiptum sínum við tóbaks- og áfengisverzlunina. Ég ætlaði t. d. að fá um daginn tóbaksteg., sem ég reyki nær eingöngu og hefi reykt í mörg ár, en þá var hún alls ekki til. Sennilega er tilætlunin, að allir reyki „blámann“ eða þessháttar, enda mun það vera eitt af „principum“ einkasölunnar, að fækka vörunum.

Hv. frsm. minni hl. var að tala um, að varahlutir í bita væru dýrir nú. Þetta kemur engum á óvart, sem þekkir til viðskiptaaðferða bílaverksmiðjanna. Þær hafa það viðskiptalag, að selja bílana sjálfa mjög ódýrt, máske stundum með tapi, en vinna það upp á varahlutunum. Sum stykki í bílunum eru með vilja höfð svo ónýt, að þau hljóti að bila eftir vissan tíma, og þau stykki eru oft á þeim stað, t. d. inni í miðjum mótor, að spilla verður öðrum hlutum jafnframt, til að komast að þeim. Engin ríkiseinkasala getur komið í veg fyrir þessa viðskiptahætti verksmiðjanna.

Með slíkri einkasölu sem þessari er komin ríkisábyrgð á hverja krónu, sem keypt er fyrir og jafnvel valútuábyrgrð líka. Þetta eitt út af fyrir sig er í rauninni nægilegt til þess að ég álít ekkert vit í því, að ríkissjóður fari að óþörfu að leggja út í slíka verzlun. Ég hefi enn enga röksemd heyrt fyrir réttmæti þess, að ríkið taki á sig að óþörfu þessa milljónaábyrgð fyrir útlenda seljendur.