18.10.1934
Neðri deild: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2739 í B-deild Alþingistíðinda. (3874)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Héðinn Valdimarsson [óyfirl]:
Ég tel eins og hv. þm. V.-Sk., að rétt sé að vísa málinu til 2. umr., en ekki til n. Það er alger óþarfi; n. getur gert sínar till. án þess.
Þær aths., sem hv. þm. gerði við þetta frv., finnst mér í raun og veru ekki mikilsverðar. Það er svo að sjálfsögðu, að frv. hefði getað verið betur úr garði gert, eins og flest frv., sem hér eru borin fram. En ef komið er með skynsamlegar brtt. við það, þá munu þær að sjálfsögðu verða teknar til greina.
Hv. þm. V.-Sk. hélt því fram, að frv. hefði verið tímabært, en ekki að sama skapi undirbúið. Ég ætla bara að segja hv. þm. það, að við í skipulagsnefndinni munum ekki spyrja hann, hvenær við leggjum fram mál. Það hefir ekki verið skoðun stj., að ekki mætti koma álit frá skipulagsnefndinni fyrr en öllum rannsóknum á viðkomandi málum væri lokið, heldur skyldi n. koma með sínar till., þegar málin þættu nægilega tekin til athugunar, þó að aðalgrundvöllurinn fyrir þeim væri ekki tilbúinn.
Það er rétt hjá hv. þm., að ekki hefir verið leitað álits vegamálastjóra, enda er mér ekki kunnugt um, að hann hafi meiri þekkingu á þessum málum heldur en fjölda margir aðrir, t. d. þeir, sem hafa bifreiðaakstur með höndum.
Það kann vel að vera, að mönnum finnist rétt að tiltaka annan tíma, er sérleyfin skuli gilda. Hv. þm. V.-Sk. áleit, að tíminn mætti ekki vera styttri en 3 ár, en við höfum miðað við 2 ár, með hliðsjón af því, að stórar fólksflutningsbifreiðar eru venjulega farnar að ganga mjög úr sér eftir tveggja ára akstur á vegum landsins.
Þá fann hv. þm. V.-Sk. að þeirri heimild, sem er í 6. gr. þessa frv., að póstmálastjórnin geti ákveðið, að fargjöldunum skuli skipt milli sérleyfishafa eftir tölu sætakílómetra bifreiða þeirra, sem þar eru í förum. Ég sé ekki, að þetta geti verið hættulegt, því það er sett í frv., að ekki megi gera þetta nema með samþykki nefndar, sem kosin er af sérleyfishöfum sjálfum.
Hv. þm. minntist á það, að bifreiðastjórar gerðu misjafnlega mikið fyrir viðskiptavini sína. Það er vitanlega rétt. Þeir eru mjög misjafnlega vinsælir, en sumt af því, sem þeir gera, er þess eðlis, að það kostar mikla peninga. En ef þeir álíta það sjálfir, að það borgaði sig að skipta fargjöldunum niður eftir vissum reglum, þá sé ég ekki annað en að löggjöfin geti heimilað það.