13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2740 í B-deild Alþingistíðinda. (3879)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Frsm. meiri hl. (Jónas Guðmundsson):

Um þetta mál hefir samgmn. klofnað, og meiri og minni hl. skila hvor sínu áliti og till. og skal ég víkja örfáum orðum að till. meiri hl.

1. brtt. er við 1. gr. frv. Þar er haldið hinni sömu stefnu og í frvgr. upphaflega felst, sem er, að fólksflutningabifreiðar, sem stærri eru en 6 farþega, skuli þurfa sérstakt leyfi frá ríkisstj. Við höfum eiginlega fellt efni 8. gr. frv. inn í 1. gr., þar sem okkur þótti betra að hafa þetta í einu lagi, þó önnur gr. fjalli um póstmálastjórnina, en hin um ríkisstj., sem að nokkru leyti hafa þetta sama verkefni með höndum. En svo höfum við bætt við nýrri málsgr. um það, að slíkt leyfi, sem þarna er gert ráð fyrir, þurfi ekki hvað snertir vörubifreiðar, sem fara í smáferðir og flytja fólk, eins og allir kannast við að gert er í kaupstöðum og annarstaðar þar, sem bifreiðar eru. Þessi er þá aðalbreyt., sem við höfum gert við 1. gr. frv.

Við 3. gr. er næsta breyt., um það, að í stað 2 ára komi 3 ár, og að orðið „ávallt“ í stafl. b. verði fellt burt úr gr. Þá er gert ráð fyrir, að nýr liður komi þarna inn, þar sem ráðh. er heimilað að fyrirskipa, að sérleyfishafar skuli nota vissar tegundir og gerðir bifreiða, sem fullnægi skilyrðum um útbúnað og öryggi bifreiða. Síðan koma breytingar á liðum, sem af þessum breyt. leiðir, og vona ég, að hv. dm. átti sig á þeim. Þá kemur nýr liður, og á samkv. honum að reyna að tryggja það, að þeir, sem fást við akstur stærri bifreiða, hafi nægilega þekkingu og reynslu í því að fara með bifreiðar og kunni nægilega skil á öllu, sem að því lýtur.

Þá er 3. brtt. n., að ráðh. sé heimilt að láta þessi ákvæði frv. einnig ná til smærri bifreiða en þeirra stóru fólksflutningsvagna, sem um er talað, ef þessar smáu bifreiðar hafa fastar áætlunarferðir á ákveðnum leiðum. Það má nefnil. hugsa sér þann möguleika, að litlar bifreiðar taki upp slíkar ferðir á sömu slóðum og sérleyfi hefir verið veitt til. Ætti þá með þessari heimild að vera hægt að fyrirbyggja tjón það, sem sérleyfishafi ella myndi hljóta af þessu. Annars er ekki meiningin, að ákvæði þessara l. nái til bifreiða fyrir 6 menn og færri. Ég vil vekja athygli á því, að það er illa að orði komizt í brtt., þar sem sagt er „sem rúma færri en 6 farþega“, og væri betra að segja: sem rúma 6 farþega og færri. — Ófullnægjandi eru ákvæðin um brot gegn l., og höfum við úr því bætt. Við leggjum til, að 7. gr. færist aftur og verði 9. gr., en eins og nú er, eru ákvæðin um brot gegn l. í 7. gr. frv. Þær refsingar, sem lagðar eru við brotum á l., eru, eins og sjá má, fyrst og fremst sektir, og ef sérleyfishafi brýtur l., þá hafi hann fyrirgert sérleyfisréttindum sínum.

Þá leggjum við til, að 8. gr. sé felld burt, þar sem efni hennar hefir verið fært í 1. gr. En í stað 8. gr. komi ný gr., sem er sérstæð, og ekkert af efni hennar í frv. upphaflega, nfl. að ef kaupstaðir vilja taka í sínar hendur flutninga með strætisvögnum innan síns lögsagnarumdæmis og nágrennisins, þá sé ríkisstj. skylt að veita viðkomandi bæjarstj. einkaleyfi í því skyni. Þetta er gert með það fyrir augum, að bæirnir geti komið þeirri skipun á þessi mál, sem þeim þykir bezt henta, og að ríkisstj. geti ekki leyft neina samkeppni við þau fyrirtæki innan lögsagnarumdæmisins. Seinasta brtt. fjallar um það, að l. öðlist ekki gildi fyrr en 1. marz 1935. Er það gert með tilliti til þess, að nokkurn undirbúning muni þurfa í málinu, en nú komið langt fram á haust. Enda alveg óþarft, að þetta gangi í gildi fyrr en í vor, svo að allt verði komið í fast horf áður en aðalbifreiðasamgöngur hefjast.

Ég vil taka það fram, að þessar brtt. eru meiri að fyrirferðinni en verulegum breyt., því að anda hins upphaflega frv. er alstaðar fylgt, nfl. að reyna að skipuleggja fólksflutninga með stórum bifreiðum í landinu. Við höfum engar járnbrautir hér á landi, eins og flestar aðrar þjóðir hafa. Járnbrautirnar eru víðast hvar kostaðar af ríkinu og reknar af félögum með meiri eða minni ríkisstyrk. Þær eru hið skipulagsbundna samgöngukerfi á landi í þessum löndum. Ekkert slíkt er hér til. Hér eru allt einstaklingar, sem þennan rekstur, fólksflutningana, annast, og hver notar sína aðstöðu eins og hann hefir vit og tök á í gróðaskyni. Með þessum l. er reynt að koma þessu í skipulagsbundið kerfi, svo að almenningur geti reiknað með þessum landferðum, eins og menn geta nú orðið reiknað með skipaferðum meðfram ströndum landsins. Frv. er fyrst og fremst borið fram til að tryggja þetta, og í öðru lagi til þess, að á þeim erfiðu tímum, sem við lifum á, þegar okkur veitir sannarlega ekki af öllum okkar gjaldeyri, verði ekki dembt inn á markaðinn allt of miklu af bifreiðum, því að það eru stór og dýr tæki, heldur verði reynt að hagnýta á sem hagkvæmastan hátt það, sem fyrir er í landinu. bæði fyrir eigendur farartækjanna og almenning, sem þarf að nota þau. — Skal ég svo ekki fjölyrða frekar um málið.