20.12.1934
Sameinað þing: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í B-deild Alþingistíðinda. (389)
1. mál, fjárlög 1935
Jakob Möller [óyfirl.]:
Jafnvel þótt niðurstaðan af æfingunum yrði sú, að ekki væri hægt að senda menn héðan á mótið til keppni, væri þessu fé þó ekki á glæ kastað, því að æfingarnar ættu þó alltaf að gera íslenzka íþróttamenn hæfari undir næsta mót. Ég benti á það áður, að fyrsta skilyrðið fyrir þroska íslenzkra íþrótta væri að vekja áhuga fyrir þeim, og ég veit, að styrkveiting sem þessi, myndi verða til þess að auka áhugann alveg stórkostlega. Þótt enn kunni að vera ágreiningur um það meðal íþróttamannanna sjálfra, í hvaða greinum skuli keppa, þá geri ég ráð fyrir, að menn komist fljótlega að niðurstöðu um það við undirbúninginn. Vel má vera, að það yrði aðeins sýning, en mér finnst rétt að láta reynsluna skera úr. Þetta er ekki stór upphæð, og henni er ekki á glæ kastað, jafnvel þótt ekki væri hægt að taka þátt í mótinu að þessu sinni.
Ólán íslenzkra íþrótta er það, að sá áhugi, sem ríkti hér fyrir íþróttum, þegar leikarnir í Stokkhólmi fóru fram, hefir fallið niður. Þann áhuga þarf aftur að vekja og efla, ef mönnum er nokkur alvara með það að efla íslenzkar íþróttir.