06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2762 í B-deild Alþingistíðinda. (3901)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Magnús Guðmundsson:
Ég vildi aðallega fá skilgreiningu hjá hv. n. um 1. gr. frv. Þar stendur, að engum sé „heimilt að hafa með höndum fólksflutninga með bifreiðum, sem stærri séu en svo, að þær rúmi 6 farþega, nema hafa fengið til þess sérleyfi frá ríkisstjórninni“. Mér finnst þetta svo rúmt orðað, að jafnvel sé óheimilt að flytja fólk t. d. til skemmtana, sem er þó algengt, í bílum, sem tjaldað er yfir. Mér þykir ólíklegt, að slíkir fólksflutningar eigi að falla undir þetta ákvæði, og vildi því spyrja hv. n., hvernig hún skilur þetta. (SÁÓ: Þetta er skýrt í 2. málsgr. 1. gr. frv.). Ég sé, hvað stendur þar, en er í efa um, að það sé fullnægjandi, og sé því ekki ástæðu til að falla frá fyrirspurn minni.