06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2777 í B-deild Alþingistíðinda. (3911)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Bernharð Stefánsson:
Aðeins lítil fyrirspurn til hv. n. um það, hvernig beri að skilja 2. málsgr. 1. gr. frv. Það er nfl. svo í mínu héraði, og e. t. v. víðar, að það eru daglegar ferðir með vörubifreiðum úr sveitinni til kaupstaðarins og svo aftur upp í sveitina á kvöldin. Þessar bifreiðar taka svo fólk jafnframt, og stundum margt fólk. Nú er það svo með þessar bifreiðar, að þær hafa ekki beint farþegarúm fyrir fleiri en e. t. v. einn mann, en sumar þó fyrir 4—5 menn. En þrátt fyrir það fer miklu fleira fólk með þessum bifreiðum, og stendur þá uppi á pallinum. Nú vildi ég spyrjast fyrir um það, hvort n. liti svo á, að þessar ferðir fólksins yrðu heimilar, ef ákvæði 2. málsgr. 1. gr. verða samþ. óbreytt. Mér skilst í fljóta bragði, að þessir fólksflutningar myndu ekki heimilir nema með sérleyfi. Og þótt það fengist, þá yrðu þær samt ekki heimilar á sama hátt og verið hefir, því að vitanlega væri ekki hægt að koma við útbúnaði til öryggis og þæginda, a. m. k. ekki þæginda, sem sjálfsagt yrðu settar kröfur um í reglugerðinni. Ef skilningur minn á þessari málsgr. er réttur, þannig að þessar ferðir, sem ég hefi getið um og bráðnauðsynlegar eru, séu óheimilar samkv. þessu ákvæði, þá vildi ég mælast mjög til þess, að n. tæki þetta til athugunar til 3. umr. Þarna er einungis um mjög stuttar ferðir að ræða, og finnst mér, að vel geti komið til mála að veita undanþágur fyrir stuttar innansveitarferðir. Nú kynni það að vera, að þetta gilti ekki nema um ákveðnar leiðir, sem sérleyfi hefðu verið veitt til, en að því er til míns héraðs kemur, þá verður ein sérleyfisleiðin áreiðanlega leiðin frá Akureyri til Reykjavíkur, og vegurinn frá Akureyri og upp sveitina heyrir alveg þarna undir. Það er nú svo, að í öllu því moldviðri af þingskjölum, sem daglega berst til manns, hefi ég ekki veitt þessu þá athygli sem skyldi fyrr en nú undir umr., annars hefði ég e. t. v. flutt brtt. hvað þetta atriði snertir. Og það getur verið fleira í þessu frv., sem mér, við nánari athugun, finnst athugavert. Mun ég þó greiða atkv. með frv. nú við þessa umr., því að það væri e. t. v. af ástæðulausri tortryggni, ef ég færi að greiða atkv. á móti frv. nú, þar sem ég hefi ekki athugað málið nægilega vel. En þá endanlegu ákvörðun geymi ég mér til 3. umr.