06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2779 í B-deild Alþingistíðinda. (3913)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég mun ekki eyða löngum tíma til þess að svara hv. 1. þm. Reykv. Ég vil benda honum á orðin í niðurlagi 1. gr.: „ef þær hafa fastar áætlunarferðir.“ Nú er það allur fjöldi bíla, sem ekki hefir fastar áætlunarferðir, og þeir koma ekki til greina samkv. þessu ákvæði. — Hv. 1. þm. Eyf. spurði um skilning n. á ákvæðum 1. gr., með tilliti til ástands þess í sínu héraði, sem hann lýsti. Eftir því, sem ég þekki til hér á Suðurlandi, er bannað að flytja fólk lengri leiðir á bifreiðarpalli. Hinsvegar er oft afþiljað farþegarúm í flutningsbifreiðunum, svo að fólkið getur alveg verið óháð vöruflutningunum. Ég veit ekki, hvort nokkrar reglur gilda um þetta, það er komið inn í meðvitund fólks, að þessir flutningar eigi að vera aðskildir frá farþegarúmi, en það skal verða athugað fyrir næstu umr. Hinsvegar eru slíkir mannflutningar á palli algengir hér, þegar bílar flytja menn til og frá vinnustað. En þetta hefir reynzt hættuleg aðferð, og hafa hlotizt stórslys af hér í Reykjavík. Það er því ástæða til að athuga, hvort rétt sé að leyfa slíka flutninga, öryggis vegna. En hv. þm. getur auðvitað borið fram brtt. um þetta atriði, ef hann telur þess þörf, og mun n. taka henni með velvilja.
Mér þykir hafa kennt málþófs frá andmælendum þessa frv., og bersýnilegt er, að þeir beita öllum gáfum sínum og rökfimi til þess að gera málið tortryggilegt. Hvort þeir ná tilgangi sínum, að koma frv. fyrir kattarnef, verður reynslan að sýna.