06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2781 í B-deild Alþingistíðinda. (3916)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Mér fannst það koma mjög skýrt fram í ræðum hv. frsm. og hv. 1. þm. N.-M., að þeir botna ekkert í því, hvernig eigi að skilja ákvæði fyrri málsgr. 1. gr. Hv. 1. þm. N.-M. vill skilja þau svo, að þetta taki aðeins til mannflutnings með bifreiðum í atvinnuskyni, og aðallega sé átt við flutninga á langleiðum, þar sem um áætlunarferðir er að ræða. En víða eru notaðar stærri bifreiðar en 7 manna á langleiðum, og það eru til fleiri ferðir en áætlunarferðir. (PHerm: Aðalatriðið eru langferðirnar). Já, það má vera, að sú sé meiningin. En segjum svo, að einhver bílstöð auglýsi bíla til leigu fyrir ákveðna borgun á dag, og þeir taki 6—7 farþega. Fellur þetta undir ákvæði l., má taka þessa bila á leigu í nokkra daga án þess að hafa sérleyfi? Eftir orðanna hljóðan finnst mér, að það ætti ekki að vera, en skildist á hv. 1. þm. N.-M., að hann mundi telja þetta heyra undir l. — Það er eftirtektarvert, að engin tilraun hefir verið gerð til að sýna fram á, að þessi atvinnurekstur sé í því ólagi, sem geri slíka löggjöf sem þessa nauðsynlega. Og það er hreint og beint raunalegt, ef á að fara að knýja fram svona löggjöf og skapa kyrrstöðu í jafnblómlegum atvinnurekstri og þessi hefir verið. Ég er alveg hissa á því, að hv. þm. skuli byrja á slíku gerræði. Öllum er kunnugt það vandræðaástand, sem ríkti hér í flutningum á landi áður en bílarnir komu til sögunnar. Og þessi atvinnurekstur hefir vaxið upp og þróazt og vel verið til hans vandað. Með bifreiðaflutningunum hefir ein sú merkilegasta breyting orðið í þjóðlífi voru síðustu 20 árin, þó að margar hafi þær orðið þýðingarmiklar. — En bifreiðaferðirnar hafa komið því til leiðar, að fjarlægðirnar mega heita að hafa horfið hér á landi.