06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2781 í B-deild Alþingistíðinda. (3917)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls nú við þessa umr., en það hefir hvað eftir annað verið lýst eftir ástæðum fyrir því, að þetta frv. er fram komið, og því haldið fram, að n. hafi ekki borið fram nein þau rök, er réttlæti það, að frv. er fram borið. Ég mun ekki fara mörgum orðum um frv. sjálft, hv. n. hefir lofað að athuga það fyrir 3. umr., hvort ekki má gera orðalag greinilegra á stöku stað, sem misskilningi hefir valdið. Annars held ég, að ekki geti orðið miklar deilur um það, hvernig skilja beri ákvæði 1. gr. Hv. 2. þm. Rang. talaði um það, hvort leyfilegt væri að taka stóran bíl á leigu um stuttan tíma. Ég játa það, að ég tel ekki hægt að skilja orðalag frv. svo, að ákvæðið „að hafa á hendi mannflutninga“ nái yfir svona tilfelli. En leiki vafi á einstökum atriðum frv. vegna ógreinilegs orðalags, má vafalaust úr því bæta. — Hv. þm. sagði, að engin rök hefðu fram komið, sem réttlættu flutning þessa frv. Ég vil þá fyrst benda á það, að Norðurlandaþjóðirnar hafa þegar gert svipaðar ráðstafanir hjá sér, og þó hafa þær járnbrautirnar, sem fara ákveðnar áætlunarferðir, sem sérstaklega er hagað með tilliti til fólksflutninga, og hafa sambærilegar ferðir og þessar stóru bifreiðar, sem hér um ræðir. Og því meiri þörf er á því að taka þessa flutninga undir hið opinbera, þar sem það hingað til hefir engin áhrif getað haft um fyrirkomulag mannflutninga, þar sem járnbrautirnar eru engar til. Það hefir verið sagt, að það ætti að knýja þetta frv. fram af flokkslegum þráa, og annað slíkt. Ég vil í því sambandi benda á, að vegamálastjóri hefir í samtali við mig viðurkennt, að full nauðsyn væri á því að taka þessi mál til rækilegrar athugunar, ekki síður hér en annarsstaðar, og eins og ég hefi bent á, frekar hér en annarsstaðar, vegna þess, að við höfum hér engar járnbrautir undir ríkiseftirliti. — Ég vil taka það fram, að frv. þetta er ekki síður borið fram með hagsmuni þeirra manna fyrir augum, sem bifreiðareksturinn hafa, en fólksins, sem notar þessa flutninga. Og það sýnir glögglega, að hv. 2. þm. Rang. hefir ekki sett sig vel inn í afkomu þessa atvinnurekstrar, að hann skuli halda, að þetta sé eitthvað sérstaklega blómlegur atvinnurekstur. Nei, undanfarin ár hefir hvert fyrirtækið eftir annað farið á hausinn vegna skipulagsins, sem á þessum ferðum hefir verið. Á sumum leiðum hefir samkeppnin verið svo hörð, að bifreiðarnar fara stundum tómar fram og aftur. Þetta vita allir. T. d. á línunni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar hefir verið svo hörð samkeppni milli tveggja bifreiðastöðva, að fjöldinn allur af bifreiðunum gengur tómur þarna á milli, og stórmikið fé eyðist til einskis vegna þessarar vitlausu samkeppni. Þarna er bara um það að ræða, hvor geti svælt hinn út. Samkeppnin hefir verið svo hörð, að bifreiðastjórar þessara félaga hafa borið það hver á annan fyrir rétti, að keppinautarnir hafi keyrt á sig viljandi af tómri vonzku. Þetta er mjög arðsöm lína, og samkeppnin þar verður því óvægin og hlífðarlaus, en það hélt ég, að allir gætu orðið sammála um, að svona skipulag, eða réttara sagt skipulagsleysi, getur ekki gengið til lengdar. Ég mótmæli því eindregið, að frv. sé fram komið af flokkslegum þráa. Hitt viðurkenni ég, að vandi er að semja l. sem þessi, og tel ég vissara að athuga frv. nú enn rækilega fyrir 3. umr. Það getur lengi komið ýmislegt fram í sambandi við svona löggjöf, sem að er gætandi, t. d. eins og aths. hv. 1. þm. Eyf. Að því ber vitanlega að gæta, að l. grípi ekki yfir atriði, sem engin þörf er á og geta ef til vill orðið til skaða. — Skoðun mín er sú, að stóru bílarnir verði járnbrautir okkar Íslendinga. Þessar bifreiðar, sem taka allt að 15 farþegum, eru í reyndinni að verða okkur nokkuð í líkingu við það, sem járnbrautir eru öðrum þjóðum. Það er því engu síður þörf á að skipuleggja þessa flutninga en járnbrautarreksturinn erlendis, og það nær því ekki nokkurri átt að segja annað eins og það, að það sé raunalegt, ef frv. nái samþ. — Það er svo langt frá því, að skipulagning þessara mála er að verða óhjákvæmileg nauðsyn.