15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2793 í B-deild Alþingistíðinda. (3929)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég vil segja fáein orð út af ummælum hv. 1. þm. Eyf., enda þótt hann sé ekki viðstaddur. Í öllum aðalatriðum var það rétt, sem hann sagði um afskipti n. af þessu máli gagnvart honum, að því viðbættu, að þau ummæli, sem hann flutti eftir mér, að ég óskaði eftir, að hann kæmi fram með þá hugmynd í brtt., sem n. gæfist kostur á að kynna sér. Þetta var ekki gert, og n. var þess vegna ókunnugt um hans brtt. fyrr en þær komu fram á þskj. hér í hv. deild.
N. hafði í öllum aðalatriðum óbundin atkv. um þær. — Um hv. þm. N.-Ísf. er það að segja, að hann mun að sjálfsögðu geta fylgt sumu þar, því að efni til eru þær shlj. brtt., sem hv. þm. flutti við 2. umr.
Ég skal eigi fjölyrða um 3. n.-manninn. Meiri hl. var á þeirri skoðun, að rétt væri, að engin breyt. yrði gerð á frv., og mun hann með sínu atkv. um brtt. sýna, hvort hann telur, að við höfum haft rétt að mæla. Ég fyrir mitt leyti get ekki greitt brtt. á þremur þskj. atkv. Öðru máli er að gegna um skrifl. brtt. frá hv. þm. S.-Þ. Ef hún gæti orðið til þess að sætta menn, þá mun ég greiða henni atkv. Ég lít þannig á, að hæpið sé, hvort þetta frv., ef að lögum verður, nær til þessara bifreiða, sem hér eru mest bornar fyrir brjósti, þ. e. flutningabifreiða í ýmsum héruðum landsins, sem ekki fara í langar ferðir, en taka undir sérstökum kringumstæðum fólk til flutnings, meira fyrir fólkið sjálft en til hagnaðar fyrir bifreiðarnar. Ég er viss um, að þetta er gert víða á landinu, en ég er líka viss um, að bifreiðarnar eru ekki að jafnaði til slíkra flutninga, enda að mínum dómi að ýta undir slíkt með löggjöfinni, því með tilliti til slysahættunnar ætti þessi siður að leggjast niður. Hinsvegar er mér ókunnugt um það, hvort tekið er gjald fyrir þessa flutninga, enda skiptir það minnstu máli í þessu sambandi.
Ég minntist á það við 2. umr. málsins, að hér á Suðurlandi væri það orðin föst venja, að flutningabifreiðar, sem yfirleitt taka fólk til flutnings undir vissum kringumstæðum, hefðu sérstakan útbúnað á palli fyrir þá farþega, sem þær flytja. Sé sú regla tekin upp, sem felst í þessari brtt., þá er hætt við, að sú skoðun yrði ofan á í þessu sambandi, að þessi regla skyldi löggilt um land allt.
Reynslan hefir sýnt það, a. m. k. á lengri leiðunum, að nauðsynlegt er, að nokkurnveginn örugg vissa fáist fyrir farþega þessara bifreiða fyrir því, að ekki hljótist slys af ófullnægjandi útbúnaði bifreiðanna. Ég ímynda mér, að þeir, sem samið hafa þetta frv., hafi talið, að þetta væri nauðsynlegt, en ég tel mjög vafasamt, að þetta nái yfirleitt til flutningabifreiða innan héraða í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslum og annarsstaðar á landinu innan héraðs. Því hefir áður verið haldið fram hér, að til væri ákvæði í bifreiðalöggjöfinni, sem bannaði þetta í raun og veru. Ég hefi ekki getað fundið þetta ákvæði, en til munu þó vera einhverjar settar reglur, sem segja til um, hvernig útbúnaður bifreiða skuli vera, sem einnig nái til þess, sem við ræðum hér um. Vitanlega er nauðsynlegt, að vélaútbúnaður sé í fullkomnu lagi, svo að þessi farartæki séu nógu ábyggileg. Um það eru til ákveðnar reglur. En ég hygg, að ekki finnist nein ákvæði þar á meðal, sem tryggja öryggi farþeganna sjálfra beinlínis.
Ég get ekki betur séð en að hægt verði að halda uppi þeirri venju, að fólki sé lofað að skjótast með flutningabifreiðum á stuttum leiðum innan héraðs, enda þótt frv. verði samþ. óbreytt. Frá því sjónarmiði tel ég óhætt, áð þetta frv. fari í gegn breytingalaust.
Skal ég svo láta í ljós afstöðu mína til till. hv. 1. þm. Reykv. viðvíkjandi því að fella niður 7. gr. Það er rétt hjá hv. þm., að þetta ákvæði var sett í frv. í hv. Nd. og kom frá hv. meiri hl. samgmn. þeirrar deildar og fékk samþ. hv. deildar. Ég býst við, að fyrir þeim, sem þetta gerðu, hafi vakað það eitt, að þessar bifreiðar, sem vitanlega fara líka langar leiðir, gætu ef til vill orðið nokkuð skæðir keppinautar stærri bifreiða, sem fara fastar ferðir, og gæti ef til vill, ef reynslan sýndi, að það væri nauðsynlegt, verið ástæða til þess að binda þetta langferðalag líka við fólksflutningsbifreiðar af þessari stærð. Því fjársterkir bifreiðaeigendur geta notað slíkar bifreiðar til óeðlilegrar samkeppni gegn hinum stærri, sem ferðunum eiga að halda uppi, og á þann hátt gert þeim ókleift að halda ferðunum uppi. Ég hygg, að eitthvað slíkt hafi vakað fyrir þessum mönnum. Sú skoðun á líka við nokkur rök að styðjast, og tel ég hana rétta. Þess vegna tel ég rangt að fella þessa breyt. burt úr frv.
Ég tel óþarft að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég mun greiða atkv. með þeirri skrifl. brtt., sem hér hefir fram komið, sökum þess að mér skilst, að með samþ. hennar verði aðrar till. teknar aftur, en þeim mundi ég ekki greiða atkv.