15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2795 í B-deild Alþingistíðinda. (3930)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Magnús Jónsson:

Ég vil leyfa mér að bera fram stutta fyrirspurn um þingsköp. Verður fundi haldið áfram, þar til umr. um þetta mál er lokið? Eigi að fresta umr., vil ég frekar bíða með mína ræðu. Ég býst við að koma fram með till., sem ég óska, að lagðar verði fyrir hv. deild, svo að ég geti mælt fyrir þeim eftir að þær eru komnar fram.