20.12.1934
Neðri deild: 65. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2803 í B-deild Alþingistíðinda. (3949)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:

Ég hefi borið fram á þskj. 917 þrjár brtt. við þetta frv. eins og það er nú hingað komið frá Ed.

1. brtt. er við 2. málsgr. 1. gr. Í þeirri gr. stendur, að ekki þurfi sérleyfi til fólksflutninga með þeim vörubifreiðum, sem flytji fólk endrum og sinnum. Í Ed. kom fram brtt. um það, að þessi orð „endrum og sinnum“ væru felld burt, en hún náði ekki samþykki þar. Það eru þessi orð, sem ég með þessari fyrstu brtt. óska, að séu felld burt. Ég sé ekki, að það sé ástæða til að fá leyfi til þess, að bifreiðar, sem eru skráðar til vöruflutninga og flytja vörur yfirleitt eða framleiðsluvörur bænda, og þannig einnig notaðar sem vörubifreiðar, því að það er kunnugt, að í fólksmörgum sveitum eru vörubifreiðar notaðar til þess að flytja fólk til og frá kaupstöðunum jafnframt vörunum og hafa sæti fyrir 1—2 farþega. Þetta eru helzt bifreiðar, sem flytja mjólk daglega og vörur til baka, og virðist því ástæðulaust að vera að gera nokkra skerðingu á því, að þessar bifreiðar megi flytja farþega, sem annaðhvort vill fara í kaupstað eða úr kaupstað út í sveitirnar, þar sem þessir mjólkurbílar ganga. Þessar bílferðir eru líka miklu tíðari en ferðir fólksbílanna, og þess vegna er þægilegt fyrir fólk að geta fengið þarna ferðir svo að segja hvenær sem það vill.

Þá er líka þess að gæta, að þetta er nokkurt fjárhagsatriði fyrir þessa menn og þær sveitir, sem eiga þessa bíla, vegna þess að þessir mannflutningar gefa þó dálitlar tekjur. Nú virðist mér í sambandi við þessa frvgr., að annaðhvort verði þessar bifreiðar að fá sérleyfi til þessara fólksflutninga í hvert sinn eða vera alveg undanþegnar að þurfa að sækja um sérleyfi. Ég fæ því ekki skilið, hvað þessi orð „endrum og sinnum“ eiga að þýða, og því rétt, að þau séu felld burt strax.

Það er líka svo, að það dettur engum í hug að halda, að það sé aðalmeiningin að meina þessum mjólkurbílum að flytja fólk. Þetta frv. er eins og allir vita flutt af hv. 2. þm. Reykv. til þess að hann geti þannig náð undir sig meiri benzínsölu, því að hann mun gera það að skilyrði fyrir sérleyfunum, að bifreiðarnar kaupi benzín af honum. (HV: Ég vil óska, að hv. þm. endurtaki þessi orð utan þinghelginnar). Ég get gert það, og þetta mun þá sýna sig, þegar þar að kemur, og það er meira að segja sannanlegt, að hann er þegar búinn að ráðstafa sumum þessum ferðum, og hann gerir það áður en þessi l. eru gengin í gildi. (HV: Þetta er haugalygi. — Forseti hringir). Það er gott, að allur þingheimur fær að heyra, hversu þinglega hv. þm. hagar sér. Það má þar segja, að sannleikanum er hver sárreiðastur. Og þegar hv. þm. Eyf. fluttu í Ed. till. í svipaða átt, gekk þessi hv. þm. þar um eins og grenjandi ljón, svo að flm. þorðu ekki, þegar til kom, að greiða sinni eigin till. atkv. Svona mikla áherzlu lagði hann á, að þetta yrði ekki samþ., og má nærri geta, hvort það er aðalatriðið að koma í veg fyrir, að mjólkurbílar fái að flytja fólk. Nei, tilgangurinn er vitanlega sá, að ná völdum á þessu sviði eins og öðrum, því að hann vill alstaðar öllu ráða. En hann þarf ekki að vera svona reiður yfir þessu, því að hann veit, að það er rétt. Og ég gæti nefnt honum menn, sem eru búnir að fá loforð fyrir ákveðnum „rútum“, en þeir menn, sem þar um ræðir, hafa ekki verið sér þess meðvitandi, að þetta væri eins mikið launungarmál eins og hv. 2. þm. Reykv. gefur í skyn, þar sem hann kallar það haugalygi.

2. brtt. er um það, að ekki þurfi sérleyfi til fólksflutninga með bifreiðum til skemmtiferða. Þetta er einnig brtt., sem var flutt í Ed., en náði þar ekki samþ., því að hv. 2. þm. Reykv. agiteraði svo mikið á móti henni. Þessi till. gengur út á það eitt, að þótt eitthvert félag hafi sérleyfi fyrir fólksflutningum á einhverri leið, þá megi þó aðrir flytja fólk á þeirri leið, ef það er að fara í skemmtiferðir. Við skulum t. d. hugsa okkur, að haldin sé héraðsskemmtun, sem margir vilja sækja. Þá fer því vitanlega fjarri, að það félag, sem hefir sérleyfi til flutninga á þeim leiðum, sem þangað eru farnar, geti fullnægt allri þeirri flutningaþörf. Hér er því farið fram á það, að í slíkum tilfellum sé öðrum heimilt að flytja fólk á þeirri leið. Ég fæ ekki heldur séð, hvaða hætta er í sambandi við þetta. Það er ekki einn sinni nein hætta fyrir sérleyfishafann, því að samkv. þessari brtt. yrði öðrum því aðeins leyft að flytja á þessari leið, að svo mikill fjöldi manna sækti á einn stað, að leyfishafi gæti hvergi nærri fullnægt flutningaþörfinni.

3. brtt. er um það, að þeir, sem hafa haldið uppi föstum áætlunarferðum á ákveðnum leiðum áður en l. gengu í gildi, skuli sitja fyrir sérleyfunum, enda fullnægi þeir vitanlega þeim skilyrðum, sem annars eru gerð fyrir veitingu slíkra sérleyfa. Þessi till. er í fullu samræmi við það, sem áður hefir verið látið almennt gilda í öllum viðskiptum, sem sé að sá, sem vegna síns eigin framtaks öðlast einhverja sérstöðu, hann fái að njóta hennar. Það virðist ekki sanngjarnt, að þeir bifreiðaeigendur, sem hafa ef til vill árum saman haldið uppi ferðum milli ákveðinna staða, fyrst kannske með tapi, en síðan með árangri, séu nú látnir afhenda þau verðmæti til annara. Það er því fullkomlega réttmætt, að slíkir menn sitji að öðru jöfnu fyrir þeim leiðum, sem þeir áður hafa stundað akstur á. Ég get því ekki séð frá neinu sjónarmiði, hvernig þeir, sem sérleyfin veita, geta gengið á móti slíkum ívilnunum til þessara manna, sem þannig er ástatt um.

4. brtt. er aðeins orðabreyt.