20.12.1934
Neðri deild: 65. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (3958)
66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum
Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:
Ég vil taka undir það með hæstv. atvmrh., að engin þörf er á að samþ. brtt. hv. þm. G.-K. í þeim tilgangi að hreinsa mig af áburði hv. 8. landsk., og finnst mér það satt að segja nokkuð einkennileg aðferð til þess að hnekkja meiðandi ummælum um ákveðinn mann, að fara að breyta lögum í þeim tilgangi. Ummæli þessara hv. þm. í minn garð í sambandi við þetta mál mun ég hinsvegar láta mér í léttu rúmi liggja að öðru leyti en því, að ég mun stefna þeim til ábyrgðar fyrir þau, ef þeir gefa mér færi til þess með því að endurtaka þau utan þings. Hinsvegar er ég samþykkur hæstv. atvmrh. um það, að skipulagið sé bezt eins og það er í frv. óbreyttu, og ég hefi leyft mér að fylgja þessu frv. fast fram hér í þinginu, eins og ég geri um öll þau mál, er ég álít, að horfi til bóta. Ég býst við, að hv. þm. kannist við, að þetta er rétt. Eftir hugsunarhætti hv. 8. landsk. ætti hver ákveðinn flokksmaður að vera kominn á þing og starfa þar aðeins vegna ákveðinna eiginhagsmuna. Við jafnaðarmenn lítum ekki svo á, og skilur þar með okkur og hv. 8. landsk. En út af dylgjum hv. þm. í minn garð vil ég aðeins benda á það, að hann læzt hvergi vilja koma nærri hinum ómerkilegu sögum sjálfur. Ég er ekki að segja þetta sjálfur, segir hann, „en ólyginn sagði mér“, og ég segi þetta bara í þinghelginni. Hvað ætli þessi hv. þm. segði, ef ég færi að tala um það, að hann sem málaflm. hefði átt í fjárhættuspili og grætt á opinberum gjaldþrotamálum, eða ef ég talaði um hv. þm. í sambandi við fjárdrátt og segði síðan: Ég staðhæfi þetta aðeins í þinghelginni, en til þess að hreinsa hv. 8. landsk. af þessum orðrómi verður Sjálfstfl. að samþ. brtt. við eitthvert ákvæði frv., sem ég tilnefni. En þetta ætla ég ekki að gera. (JakM: Og gerir það þó samt). Það kann að vera, að þessir hv. þm. séu í ákveðnum flokki í þeim eina tilgangi að verja sína eigin hagsmuni, en jafnaðarmenn líta svo á, að allt annað eigi að vera markmið þingmanna.