24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (3989)
87. mál, bæjargjöld á Akureyri
Páll Zóphóníasson:
Það er eitt atriði í þessu máli, sem mig langar til að benda á um leið og málið fer í n.
Mál sem þetta tel ég í eðli sínu varhugavert að samþ., af þeirri ástæðu, að þarna er um að ræða vörugjald, sem á að leggjast á vöru, sem seld er í kaupstaðnum og aðrir en þeir, sem eiga heima í kaupstaðnum, nota. Með frv. er farið inn á þá braut, sem í þessu tilfelli veitir Akureyri möguleika til að velta útsvörum af íbúum bæjarins yfir á vöru, sem flutt er að og verzlað er með í bænum. Nú kaupa þessa vöru og borga því óbeint þetta vörugjald ekki aðeins bæjarbúar, heldur einnig íbúar sveitanna í kring. Útkoman verður því sú, ef frv. verður samþ., að íbúar þeirra héraða eru látnir bera að nokkru byrðar bæjarins, og útsvör Akureyrarbúa að því leyti flutt yfir á menn í sveitum, sem hinsvegar hafa enga aðstöðu til að taka neitt slíkt vörugjald.
Ef frv. yrði samþ., álít ég, að með því yrði skapað mjög varhugavert fordæmi, og vona, að n. athugi það vel áður en hún kemur aftur með málið fyrir hv. d.